Morgunblaðið - 23.05.2016, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. MAÍ 2016
Rafmagnshjól.is • Fiskislóð 45 • Sími 534 6600
Hollensk
rafmagnshjól
vönduð og margverðlaunuð
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Síðustu farfuglarnir koma til lands-
ins á næstu dögum, en venju sam-
kvæmt kemur þórshani síðastur far-
fugla. Komutími hans er gjarnan
undir lok maí-
mánaðar, en
nokkru fyrr á
ferðinni er ná-
frændi hans,
óðinshaninn. Ís-
land er á suður-
mörkum varp-
stöðva þórs-
hanans og er
syðsta varp þórs-
hana í heiminum
á Suðurlandi.
Fuglinn kann betur við sig enn norð-
ar, á stöðum eins og á Svalbarða og
Grænlandi.
Talið er að vetrarstöðvar þórs-
hana séu á sjó úti vestur af ströndum
Afríku, nærri miðbaug, jafnvel úti á
reginhafi, en ýmislegt er óljóst um
vetrardvölina. Hins vegar var sam-
svarandi spurningum um óðinshana
svarað í fyrrasumar með aðstoð vís-
indanna. Um það fjallar Jóhann Óli
Hilmarsson fuglafræðingur í grein á
vef Náttúruminjasafn Íslands [nmsi-
.is]:
Agnarlítill gagnarita hjálpaði
„Vetrarstöðvar óðinshana voru
hjúpaðar leynd þar til í fyrra, en þá
endurheimtist fugl norður í Aðaldal,
sem bar agnarlítinn gagnarita eða
ljósrita. Hann gat sagt okkur að
vetrarstöðvarnar væru útaf strönd-
um Perú og suðaustur af Galapagos-
eyjum. Ótrúlegt hvernig þessi litli
fugl getur lagt slíkar vegalengdir að
baki. Varpheimkynni hans eru víða
um norðanvert norðurhvelið.“
Í samtali segir Jóhann Óli að áætl-
að sé að 50 þúsund pör óðinshana
verpi hér á landi, en hingað komi að-
eins um 200-250 þórshanar. Pör
þeirra teljist því aðeins í nokkrum
tugum og skekkt kynjahlutfall auki
óvissuna, þar sem karlfuglarnir séu
fleiri en kvenfuglarnir.
Óðinshani og þórshani koma seint
og fara í byrjun ágúst þegar ung-
arnir eru fleygir, þannig að dvöl
þeirra hér á landi er tiltölulega stutt,
enda um langan veg að fara í vetrar-
stöðvarnar. Kvenfuglinn er skraut-
legri en karlinn og fyrirkomulagið á
fjölskyldulífinu á margan hátt sér-
stakt, en um það fjallar Jóhann Óli í
fyrrnefndri grein:
Stundum í tygjum
við fleiri en einn karl
„Í tilhugalífinu á kvenfuglinn
frumkvæðið og það er karlfuglinn
sem sér um álegu og ungauppeldi, en
kerlan lætur sig hverfa strax eftir
varpið og getur stundum verið í tygj-
um við fleiri en einn karl. Dömurnar
safnast saman í hópa og frílista sig
meðan karlarnir streða við uppeldið.
Þessi femínismi er líka við lýði hjá
hinum sundhönunum: þórshana og
freyshana.“ Við þetta er að bæta að
heimkynni freyshana eru í Ameríku
en hann slæðist hingað endrum og
sinnum. Sundhanar eru af snípuætt,
sem er stór ætt vaðfugla.
Þórshani finnst einkum í eyjum og
á útkjálkum og er mikið í fjörum.
Hann er rauður og nokkuð skraut-
legur og það sama má segja um
Óðinshana, sem er aðeins minni.
Óðinshani er nokkuð algengur um
allt land, einkum á láglendi, en finnst
einnig víða á hálendinu. Uppáhalds-
búsvæði hans eru lífrík votlendi og
er þéttbýli mikið, t.d. í Mývatnssveit.
Utan varptíma er hann einkum við
ströndina á sjávarlónum og tjörnum
en stórir hópar sjást einnig á sjó við
landið.
Skoppa á vatnsborðinu
Sundhanarnir hringsnúast á sundi
og skoppa á vatnsborðinu. Þeir þyrla
upp fæðu, dýfa gogginum ótt og títt í
vatnið og tína upp smádýr. Úti á sjó
éta þeir svif, en þeir eru úthafsfuglar
að vetrinum. Þeir fljúga hratt og
flökta mikið. Samkvæmt upplýs-
ingum Jóhanns Óla er óðinshani
sums staðar kallaður skrifari vegna
þess hvernig hann hringsnýst á poll-
um og tjörnum og virðist skrifa á
vatnsborðið með goggnum.
Sundhanar koma síðastir farfugla
Þórshani kemur yfirleitt undir lok maímánaðar Óðinshani eða skrifari er fyrir nokkru kominn
Vetrarstöðvar óðinshana voru ráðgáta Sérstakt fjölskyldulíf sundhana Skekkt kynjahlutfall
Morgunblaðið/Jóhann Óli Hilmarsson
Á góðri stundu Þórshanar stinga saman nefjum, kvenfuglinn er með svartan koll. 200-250 fuglar koma hingað árlega.
Jóhann Óli
Hilmarsson
Komutími
» Talið er að meðalkomutími
þórshana sé 25. maí og kemur
hann síðastur farfugla til
landsins.
» Meðalkomudagur óðinshana
er 7. maí en í ár sáust fyrstu
fuglarnir 8. maí á Garðskaga.
» Krían er líka seint á ferðinni,
fyrstu kríurnar sjást kringum
22. apríl, en hún fer ekki að
sjást að ráði fyrr en í maí.
» Hún fer eins og sundhan-
arnir um langan veg til sumar-
landsins, enginn fugl í heim-
inum fer eins langt og krían, á
milli heimskauta.
» Rauðbrystingur var frekar
seint á ferðinni í ár og kom
ekki fyrr en 21. apríl.
» Svo einn farfugl enn sé
nefndur til sögunnar er með-
alkomutími heiðlóu um mán-
aðamótin mars-apríl.
» Komutími lóunnar hefur
færst framar eins og margra
annarra fugla.
Skúli Halldórsson
sh@mbl.is
Fimm prósentum stúlkna í 8.-10.
bekk líður illa eða mjög illa í skól-
anum. Þetta kemur fram í niður-
stöðum rannsóknar Olweusaráætl-
unarinnar á einelti í íslenskum
grunnskólum. Árið 2011 var hlut-
fallið mun lægra, eða 1,9%.
Segir í niðurstöðunum að tæp 11%
stúlknanna óttist einelti af hendi
samnemenda sinna. Aðeins 6,5%
sögðust óttast það í rannsókn
Olweusar árið 2011.
Einstaka skólar hafi slakað á
Þorlákur H. Helgason, fram-
kvæmdastjóri verkefnisins á Íslandi,
segist í samtali við Morgunblaðið
ekki kunna neina skýringu á hinni
skyndilegu aukningu.
„Á einstaka skólum sér maður þó
að þeir hafa slakað á. Þar þarf að slá
í klárinn eða hreinlega endurnýja
eineltisáætlunina. Maður sér það um
leið og skólarnir slá eitthvað af, þá
segja börnin strax frá því,“ segir
Þorlákur.
Því til stuðnings bendir hann á að
nemendur séu í könnuninni spurðir
hvernig þeim finnist umsjónar-
kennarinn bregðast við einelti.
„Oft sést mjög greinileg fylgni á
milli virkni kennara og tíðni eineltis.
Til dæmis má nefna einn stóran
skóla í Reykjavík þar sem áhrifin
sjást svart á hvítu, en þar segja
krakkarnir að kennararnir geri ekki
nóg til að hindra einelti. Allt helst
þetta í hendur.“
Rannsóknin er aðeins gerð í þeim
skólum sem notast við Olweusar-
áætlunina. Gæti einelti verið enn tíð-
ara í öðrum skólum, en erfitt hefur
reynst að fá gagnlegan samanburð.
„Ég hef boðið öllum grunnskólum
á Íslandi að taka þátt í könnuninni
en þá tóku einungis tíu aðrir skólar
því boði. Þátttakan hefði ekki kostað
þá neitt.“
Einelti nemenda í 5.-7. bekk
Hlutfall nemenda sem segjast verða fyrir einelti tvisvar í mánuði eða oftar
5,1%
5,2%
6,6%
7,7%
5,8%
6,9%
Strákar - landsmeðaltal
Stelpur - landsmeðaltal
Strákar - Reykjavík
Stelpur - Reykjavík
2011 2012 2013 2014 2015
Heimild: Rannsókn Olweusaráætlunar
8%
6%
4%
2%
0%
Unglingsstúlkum líður
sífellt verr í skólanum
11% stúlkna óttast
einelti af hálfu sam-
nemenda sinna
Vanlíðan nemenda í 8.-10. bekk
Hlutfall nemenda sem líður illa eða mjög illa í skólanum
1,9%
4%
1,4%
4,2%
5%
4%
4,7%
Strákar - landsmeðaltal
Stelpur - landsmeðaltal
Strákar - Reykjavík
Stelpur - Reykjavík
2011 2012 2013 2014 2015
Heimild: Rannsókn Olweusaráætlunar
5%
4%
3%
2%
1%
Innanríkisráðuneytið tilkynnti á
laugardag þau framboð til embættis
forseta Íslands sem borist höfðu áður
en fresti til þess lauk, á miðnætti 20.
maí.
Tíu frambjóðendur skiluðu inn
gögnum: Andri Snær Magnason, Ást-
þór Magnússon Wium, Davíð Odds-
son, Elísabet Kristín Jökulsdóttir,
Guðni Th. Jóhannesson, Guðrún
Margrét Pálsdóttir, Halla Tómas-
dóttir, Hildur Þórðardóttir, Magnús
Ingberg Jónsson og Sturla Jónsson.
Ráðuneytið mun nú fara yfir þau
gögn sem hafa borist og auglýsa í síð-
asta lagi næstkomandi föstudag, 27.
maí, hverjir frambjóðenda verða
formlega kjörgengir í kosningunum
25. júní nk.
Misvísandi upplýsingar
Magnús Ingberg hafði beðið ráðu-
neytið um frest til þess að skila inn til-
skildum fjölda undirskrifta en ráðu-
neytið taldi sig ekki geta heimilað
slíkt. Í samtali við mbl.is sagði Magn-
ús sig hafa fengið misvísandi upplýs-
ingar sem ollu töfum á söfnun undir-
skrifta og urðu til þess að honum
tókst ekki að safna nægilegum fjölda.
Hann segist munu kæra fram-
kvæmdina eftir helgi.
Tíu skiluðu inn fram-
boðum til forseta
Magnús hyggst kæra framkvæmdina