Morgunblaðið - 23.05.2016, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. MAÍ 2016
Bryggjan brugghús | Grandagarði 8 | 25. maí kl. 14 -16
Fundur um þýska matvælamarkaðinn, með áherslu á sjávarafurðir, verður
haldinnmiðvikudaginn 25. maí kl. 14 á Bryggjunni brugghúsi, Grandagarði 8.
Dr. Matthias Keller framkvæmdastjóri helstu samtaka í fiskiðnaði og
upplýsingamiðstöðvar sjávarafurða í Þýskalandi mun fjalla um neysluvenjur
á sjávarafurðum þar í landi og kröfur markaðarins. Björgvin Þór Björgvinsson
verkefnastjóri hjá Íslandsstofu mun segja frá útflutningi til Þýskalands og
Ruth Bobrich viðskiptafulltrúi í sendiráðinu í Berlín fjallar um þýska markaðinn,
ný tækifæri og matvælasýningar. Þá munu fulltrúar fyrirtækja sem flytja út
sjávarafurðir og áfengi segja frá reynslu sinni af þýska markaðinum.
Léttar veitingar í lok fundar.
Skráning og nánari upplýsingar á vef Íslandsstofu, www.islandsstofa.is
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
Að grafa horfna fjársjóði upp úr
jörðu, gull og gersemar, er sveipað
ævintýraljóma en gerist ekki bara í
ævintýrum sögubókanna. Í sumar
hefst leit að nýju að hollenska gull-
skipinu, Het Wa-
pen van Amst-
erdam, sem fórst
á Skeiðarársandi
árið 1667. Talið
er að skipið, sem
var á leið frá Ind-
landi til Hollands,
hafi verið hlaðið
af ýmsum verð-
mætum varningi;
gulli, gimsteinum
og ýmsum góðmálmi.
Tvisvar hefur verið reynt að
grafa skipið upp úr sandinum án
árangurs.
Komin með leyfi
„Við erum komin með leyfi frá
Minjastofnun til að hefja leit úr lofti
með drónum sem senda niður loft-
bylgjur sem varpa upp 30 sinnum
30 þrívíddarmyndum í tölvu. Með
þessum hætti er hægt að staðsetja
hlutina í sandinum nákvæmlega og
hefja leit. Það hefur vægast sagt
margt gerst í tæknimálum frá árinu
1983, þegar síðast var gerð leit að
skipinu,“ segir Gísli Gíslason, fram-
kvæmdastjóri verkefnisins.
Hann tekur fram að á þessu
svæði, Skeiðarársandi, hafi um 100
skip farist í aldanna rás. „Það á
margt og mikið eftir að koma í ljós
því ýmislegt leynist í sandinum.“
Gísli er samt vongóður um að leitin
beri árangur og reiknar með að
hefjast handa í sumar ef allt gengur
að óskum.
Eins og staðan er núna verður
samt ekki lagt af stað í leitina að
skipinu fyrr en viljayfirlýsing ligg-
ur fyrir frá forsætisráðuneytinu,
sem beðið er eftir. Síðasta tilraun
til að ná skipinu úr sandinum var
með ríkisábyrgð, en kostnaður við
að ná skipinu upp úr sandinum er
mikill.
Allar fornminjar sem munu finn-
ast í jörðu eru í eigu ríkisins, eins
og lög um menningarminjar kveða
á um. Gísli tekur skýrt fram að
verkefnið verði unnið í nánu sam-
starfi við fornleifafræðinga, Minja-
stofnun og Forsætisráðuneytið.
Sjálfbært verkefni
„Það verður ekki sótt um styrk
fyrir þetta kostnaðarsama verkefni
heldur ætlum við að hafa það sjálf-
bært. Við ætlum að nýta okkur þær
góðu aðstæður sem við búum við
núna í samfélaginu með þennan
fjölda ferðamanna. Við stefnum að
því að setja upp safn um skipið og
sýna sögu leitarinnar í máli og
myndum sem ferðamenn geta
skoðað. Eins erum við byrjuð að
gera heimildarmynd og stefnum
einnig að sjónvarpsþáttagerð til að
fjármagna þetta,“ segir Gísli. Leyfi
fyrir skemmu undir safnið er í höfn.
Gísli er með ýmsar hugmyndir
um að ná inn tekjum þegar fram-
kvæmdir hefjast. „Við munum óska
eftir að fá leyfi fyrir svifnökkva
sem hægt verður að nota til að
skoða svæðið og þeir munu ekki
skilja eftir sig för í sandinum.“
Gísli bendir á að það vanti sár-
lega eitthvað fyrir túrista til að
gera á Íslandi og þetta yrði góð við-
bót við þá afþreyingu. Safnið yrði
skammt vestan við Jökulsárlón.
Gísli bendir á að sagan um skipið
frá því það sökk ofan í sandinn og
björgunaraðgerðirnar sé mögnuð
og fróðleg. Hún ein og sér standi al-
farið undir því að henni séu gerð
góð skil á safni. Bendir hann á að
þegar björgunaraðgerðirnar voru
árið 1980-1983 hafi „öll þjóðin
fylgst með og við viljum að það
verði einnig núna, að ferðamenn
geri það líka. Ævintýrið er þegar
byrjað,“ segir hann.
Meðal þeirra sem koma að verk-
efninu ásamt Gísla eru Rob McE-
wen fjárfestir, Allan J Grey frum-
kvöðull, jarðeðlisfræðingurinn
Johannes Douma og ævintýramað-
urinn Gunnar A. Birgisson.
Svifnökkvar flytji ferðamenn
Leit hefst senn að nýju að skipi sem fórst á Skeiðarársandi á 17. öld hlaðið gulli og gimsteinum,
segir sagan Nýjustu tækni beitt í leitinni, drónum úr lofti Hyggjast reisa safn um söguna
Skip Í sumar hefst leit að nýju að gullskipinu Het Wapen van Amsterdam.
Gísli Gíslason
Með skipinu Het Wapen van Amsterdam fórust 200 menn en 70 komust lífs
af þegar það strandaði á Skeiðarársandi árið 1667. Skipið hvarf sjónum og
sökk á mjög skömmum tíma. Sögur af því sveipuðust dulúð þegar stundir
liðu fram enda hermdu þær að skipið væri hlaðið glóandi gimsteinum og
skíragulli.
Ýmsar kenningar eru um hvort það hafi varðveist í heilu eða hálfu lagi. Ef
það finnst í sandinum er talið nokkuð líklegt að það sé heillegt því slíkar
minjar varðveitast ágætlega í sandi.
Í tvígang hefur verið reynt að finna skipið og grafa upp. Fyrstur reyndi
Bergur Lárusson að finna það, árið 1960. Hann var með leyfisbréf frá Ólafi
Thors forsætisráðherra, þar sem kveðið var á um að hlutur íslenska ríkisins
skyldi vera 12 prósent af þeim verðmætum sem fyndust.
Á árunum 1980-1983 var reynt að finna skipið, en forsprakkinn var Krist-
inn Guðbrandsson, forstjóri Björgunar. Leitin var fjármögnuð með láni á
ríkisábyrgð. Grafið var að flaki skips sem reyndist vera járnbrak úr þýskum
togara sem nefndist Friðrik Albert og strandaði í kringum árið 1900.
Mannskætt sjóslys 1667
FYRST LEITAÐ AÐ SKIPINU HET WAPEN VAN AMSTERDAM 1960
„Ljóst er að EFLA verkfræðistofa
getur ekki haldið því fram að um-
rædd skýrsla sé unnin samkvæmt
reglugerð um flugvelli þar sem að-
eins er reiknaður nothæfisstuðull
fyrir einn flokk flugvéla,“ segir m.a. í
svari Sigurðar Inga Jónssonar, full-
trúa Framsóknar og flugvallarvina í
umhverfis- og skipulagsráði Reykja-
víkurborgar. Í Morgunbaðinu á laug-
ardag birtust athugasemdir frá
EFLU við frétt sem byggði á skoð-
unum Sigurðar Inga og birtist fyrr í
vikunni.
Svar Sigurðar Inga er eftirfarandi:
„EFLA verkfræðistofa sendi innan-
ríkisráðherra bréf 1.10.2015, „Varð-
ar: Mat á nothæfisstuðli Reykjavík-
urflugvallar“. Þar leitast EFLA við
að svara athugasemdum öryggis-
nefndar Félags íslenskra atvinnu-
flugmanna vegna skýrslu EFLU,
„Mat á nothæfisstuðli Reykjavíkur-
flugvallar samkvæmt viðmiði ICAO“.
Í umræddu bréfi staðfestir EFLA að
ekki var farið að kröfum reglugerðar
um flugvelli nr. 464/2007, eða ICAO
Annex 14, sem reglugerðin byggir á.
Eftirfarandi tilvísun í umrætt bréf
staðfestir þetta: „Þær forsendur sem
voru lagðar fyrir EFLU voru að
reikna nothæfisstuðul Reykjavíkur-
flugvallar fyrir flugvélar sem hafa
viðmiðunarflugtaksvegalengd á
bilinu 1200 – 1499 m. Skýrsla EFLU
byggir því einungis á 13 hnúta hlið-
arvindshámarki.“
Í reglugerð um flugvelli segir í
grein 3.1.1 „Fjöldi og stefna flug-
brauta á flugvelli ætti að vera slíkur
að notkunarstuðull flugvallarins sé
ekki minni en 95% fyrir flugvélarnar
sem flugvöllurinn þjónar.“
Flugvélum er í reglugerð skipt í
þrjá flokka eftir viðmiðunarflugtaks-
vegalengd þeirra, sbr. grein 3.1.3 í
reglugerð „Val á mesta leyfilega
hliðarvindsstuðli“. Óumdeilt er að
Reykjavíkurflugvöllur þjónustar
flugvélar í öllum þremur flokkum.
Flugvélar eins og King Air-sjúkra-
flugvélar, Dash 8 Q200 Flugfélags Ís-
lands og vitaskuld allar kennsluflug-
vélar, eru í flokki undir 1200 m
viðmiðunarflugtaksvegalengd. Fyrir
þann flokk ber að reikna nothæfis-
stuðul með 10 hnúta hámarkshliðar-
vindsstuðul.
Því lægra sem hámarkið er, því
lægri er nothæfisstuðullinn. Það er
útilokað að Reykjavíkurflugvöllur nái
95% viðmiði reglugerðar ef reiknað
er með 10 hnúta hámarki. Í skýrslu
Veðurstofu Íslands „Veðurmælingar
á Hólmsheiði 11. janúar 2006 – 31.
október 2009“ má finna útreikninga
fyrir Reykjavíkurflugvöll miðað við
10 hnúta hámarkshliðarvindsstuðul.
Niðurstaðan er að nothæfisstuðull
miðað við tvær flugbrautir er aðeins
77%, sem er víðsfjarri þeim 97% sem
EFLA reiknaði út.
Ljóst er að EFLA verkfræðistofa
getur ekki haldið því fram að um-
rædd skýrsla sé unnin samkvæmt
reglugerð um flugvelli þar sem að-
eins er reiknaður nothæfisstuðull
fyrir einn flokk flugvéla.“
Segir ekki unnið
samkvæmt reglu-
gerð um flugvelli
Morgunblaðið/RAX
Reykjavíkurflugvöllur Horft er eft-
ir hinni umdeildu NA/SV-flugbraut.