Morgunblaðið - 23.05.2016, Qupperneq 13
sjálfur séð að mestu leyti um viðhald
vélanna.
Eftir fyrsta baslárið fór prjóna-
skapurinn að ganga ljómandi vel og
salan líka. „Við seljum beint til
stórra aðila og heildsala,“ segir Vil-
borg, „aðalviðskiptavinir eru bænd-
ur, byggingarverktakar og hesta-
fólk. Á þessum sex árum höfum við
farið úr því að selja eitt þúsund pör
upp í 6.500 pör en fyrsta árið var það
heilmikil vinna að prjóna og senda
frá sér fimmtíu pör. En í dag er
þetta mjög skemmtilegt verkefni.“
Léttir og hlýir
Þessi söluaukning má kallast
góð og vettlingarnir reynast vel.
Þeir eru úr ullarblöndu; léttir, slit-
sterkir og hlýir.
Prjónastofan Vanda hóf
reksturinn í húsnæði í eigu bróður
Jóns Rúnars en er nú komin í annað
húsnæði í hjarta bæjarins, sem er að
sjálfsögðu hafnarsvæðið.
Vilborg og Jón Rúnar vinna
bæði fulla vinnu utan heimilis og
prjónaverkefnið bætist við það. Allt
gengur það vel og samhent fjöl-
skylda hjálpast að. Foreldrar Vil-
borgar eru meðeigendur í fyrirtæk-
inu og Hólmfríður móðir hennar
vinnur þar líka við frágang á vett-
lingum, saumaskap og fleira. Auk
þess er hún ómetanlega góð amma
sem gott er að eiga að og börnin eiga
alltaf vísan samastað hjá henni og
afa í sveitinni í Laxárdal í Þistilfirði.
Barnalánið fylgir hjónakorn-
unum Vilborgu og Jóni Rúnari því
þau eignuðust litla dóttur á öðrum
degi hvítasunnu, þann 16. maí. Það
er þriðja barn þeirra saman en fyrir
á Jón Rúnar önnur þrjú svo að börn-
in eru nú sex alls. Bæði Jón og Vil-
borg koma úr stórum fjölskyldum,
hvort um sig úr sjö systkina hópi,
„barnaafmælin hér eru bæði fjöl-
menn og fjörug,“ segja þau hlæjandi.
Eitt barn enn?
„Það er samt spurning hvort við
þurfum ekki að eignast eitt barn enn
til að ná sömu fjölskyldustærð og við
komum úr sjálf,“ segir Jón Rúnar
kíminn, alsæll með nýfæddu dóttur-
ina og eiginkonuna. Litla stúlkan
fæddist á Akureyri, aðeins fyrr en
Þúsundþjalasmiður Jón Rúnar sér að mestu um viðhald véla. Með Hólmfríði ömmu Systurnar og frænka, Katrín Svala.
Nýfædd Vilborg ásamt dætrum sínum sem nú eru orðnar þrjár, sú lita er aðeins 12 tíma gömul þarna.
hennar var vænst, en fjölskyldan var
búin að koma sér fyrir á Akureyri
örfáum dögum áður. Konur á lands-
byggðinni eru ekki jafn vel settar og
þær sem búa á svæði þar sem fæð-
ingarþjónusta er fyrir hendi.
„Hér þurfum við, líkt og margar
aðrar konur, að fara að heiman um
það bil viku fyrir áætlaða fæðingu,
jafnvel fyrr yfir vetrartímann í
vondri tíð. Flestar konur hér fara til
Akureyrar, sem er næst okkur.
Þetta þýðir kostnað vegna leiguhús-
næðis þann tíma sem beðið er eftir
barninu og það er jú alltaf fyrirhöfn
að flytja, oftast með alla fjölskyld-
una, og koma sér fyrir annars stað-
ar. Því fylgir líka tilheyrandi kostn-
aður sem taka þarf með inn í
fjárhagsáætlun,“ segja þau.
Vilborg og Jón Rúnar segjast
samt nokkuð vel sett og kvíða ekki
framtíðinni. Þau keyptu sér gamalt
hús á Þórshöfn og eru að gera það
upp í rólegheitunum. „Við tókum
aldrei þátt í neinu kapphlaupi eða
„þensludansi“ á sínum tíma og
skuldsettum okkur ekki, þess vegna
kom hið margumtalaða hrun ekki við
okkur,“ segja Vilborg og Jón Rúnar,
sem eru ánægð með tilveruna og
alltaf með ýmislegt á prjónunum.
Mæðgur Vilborg ásamt dætrum sínum í Prjónastofunni Vöndu.
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. MAÍ 2016
Prjónastofan Vanda er í húsi
sem í daglegu tali kallast
Villahús, byggt af Vilhjálmi
Sigtryggssyni fyrir tæpum
sextíu árum sem fiskverk-
unar- og útgerðarhús. Prjóna-
stofan er á rúmgóðri efri
hæðinni ásamt þægilegri
setustofu sem einnig er skrif-
stofa fyrirtækisins. Neðri
hæðinni er skipt í tvö rými og
í öðru þeirra hefur hand-
verksgalleríð Beitan aðsetur. Í
hinum hlutanum er beitninga-
hús Ísfélagsins, svo að sá
hluti hússins gegnir ennþá
upphaflegu hlutverki.
Líður vel á
annarri hæð
í Villahúsi
GAMALT FISKVERKUNAR-
OG ÚTGERÐARHÚS
Gefðu þér séns
og njóttu þess sem er
Vorið er tími umskipta. Náttúran
er að vakna til lífsins og við erum
hluti af náttúrunni. Enginn býst við
því að björninn komi spriklandi út úr
vetrarhíðinu. Honum er eðlilegt að
byrja að teygja úr sér, hreyfa sig ró-
lega og píra aðeins augun til að venj-
ast sólarljósinu. Líkami okkar er að
aðlagast árstíðarbreytingunni, auk-
inni birtu og hlýnandi veðri. Við er-
um eins og aðrar lífverur á þessari
jörð að aðlagast og finna nýjan takt.
Gefðu þér tíma til að slaka á,
hlusta, njóta og vera. Gefðu þér tíma
til að upplifa sannarlega hvert
augnablik eins og það birtist og eins
og þú upplifir það án þess að skil-
greina, dæma eða mynda þér skoð-
un.
Gróandinn Gott er að liggja í grænu grasi og leika sér með gerberur.
Heilsustöðin, sálfræði- og ráðgjafarþjón-
usta, Skeifunni 11a, Rvk.
www.heilsustodin.is
Háaleitisbraut 58-60 • 108 Reykjavík • haaleiti@bjorg.is • Sími 553 1380
Eru fötin
HREIN
fyrir næsta
viðburð?