Morgunblaðið - 23.05.2016, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. MAÍ 2016
Hjólavagnar
Fást í verslun okkar að Bíldshöfða 10
Stilling hf. | Sími 520 8000 | www.stilling.is/hjolavagnar | stilling@stilling.is
Í forsetatíð Barack Obama hafa
samskipti Kúbu og Bandaríkjanna
skánað töluvert. Þykjast margir
eygja að Bandaríkjaþing muni senn
aflétta viðskiptabanninu sem lagt
var á Kúbu á 7. áratugnum. Myndi
það boða gott fyrir kúbverska
vindlaframleiðendur enda vindlar
ein þekktasta útflutningsvara
landsins og vindlamarkaðurinn í
Bandaríkjunum sá stærsti í heim-
inum.
Í úttekt Wall Street Journal um
helgina kemur hins vegar fram að
kúbverski vindlageirinn sé fjarri því
undirbúinn fyrir opnun Bandaríkja-
markaðar. Á tímabilinu 2009 til
2014 dróst tóbaksræktun saman um
65% og frá 2006 hefur útflutningur
á vindlum minnkað um 58%.
Mislukkuð miðstýring
Vandi tóbaksplöntubænda er tví-
þættur: Hagkerfið er miðstýrt og
gengur stjórnvöldum illa að skaffa
bændunum áburð og annað sem
þarf til ræktunarinnar. Þá kaupir
ríkið alla uppskeruna en greiðir lítið
fyrir laufin.í samanburði við aðrar
nytjaplöntur. Er því svo komið að
ekki er fyrirhafnarinnar virði fyrir
marga bændur að rækta tóbakið
sem eyjan er rómuð fyrir.
Kúbversk stjórnvöld vilja snúa
þróuninni við og auka vindlafram-
leiðsluna á ný. Er ætlunin að hækka
greiðslur fyrir tóbakslauf og einnig
að þjálfa fleira fólk í að vefja vindla.
Markmiðið er að framleiðslan auk-
ist um 20% á ári næstu fimm árin.
Fleiri binda miklar vonir við af-
nám viðskiptabanns. Þannig gætu
kúbverskir rommframleiðendur selt
vöru sína til Bandaríkjanna og eins
hægt að vænta straums banda-
rískra ferðamanna til landsins.
Hafa meðal annars Starwood Hot-
els og franski áfengisframleiðand-
inn Pernod Ricard nýlega fjárfest í
verkefnum í Kúbu með það fyrir
augum að grípa tækifærin sem
kunna að skapast.
Aðrir tekið fram úr í gæðum
Ekki er þó víst að vindlaframleið-
endur í öðrum löndum þurfi að hafa
miklar áhyggjur af aukinni sam-
keppni frá Kúbu á Bandaríkjamark-
aði. Hafa vindlar frá löndum á borð
við Hondúras og Níkaragva tekið
stöðugum framförum og þykja orðið
síst síðri en þeir kúbversku. Á síð-
asta lista vindlatímaritsins Cigar
Aficionado yfir 25 bestu vindlateg-
undir síðasta árs rötuðu þannig að-
eins þrjár tegundir frá Kúbu á
listann. Þykir gæðaeftirlitinu áfátt
hjá ríkisreknu vindlaverksmiðjun-
um og getur verið mikill breytileiki
í gæðum vindla sem koma úr einu
og sama boxinu. ai@mbl.is
Búa í haginn
fyrir afnám
viðskiptabanns
Kúbverskir vindlaframleiðendur ekki
reiðubúnir fyrir Bandaríkjamarkað
AFP
Klípa Raúl Castro forseti Kúbu.
Miðstýringin truflar vindlagerð.
Hárnákvæmir pakkar
Eldum rétt sendir viðskiptavinum sínum
heim að dyrum matarpakka sem hefur að
geyma hráefni fyrir þrjár máltíðir. Er allt
nákvæmlega skammtað og ekkert sem vant-
ar, utan að gert er ráð fyrir að viðskiptavin-
urinn eigi til salt, pipar, olíu, sykur, hveiti og
smjör sem stundum þarf að bæta út í upp-
skriftirnar. Uppskrift með nákvæmum leið-
beiningum fylgir hverjum rétti og á matseld-
in að vera bæði fljótleg og viðráðanleg.
„Viðskiptavinirnir geta skoðað matseðil
hverrar viku áður en þeir gera pöntun og eru
tvenns konar pakkar í gangi: klassískur ann-
ars vegar og „paleo“ hins vegar,“ útskýrir
Kristófer. Pakki með þremur réttum fyrir
tvo kostar frá 7.490 kr.
Í stórborgum víða um heim má finna fyr-
irtæki sem bjóða upp á sams konar þjónustu.
Kristófer segir viðskiptavinina kunna að
meta að geta haft minna fyrir matarinnkaup-
unum og þurfa ekki að skipuleggja matseld-
ina frá grunni. „Verðið þykir líka hagkvæmt
og ekkert sem fer til spillis.“
Eftirspurnin eftir þessari þjónustu er til
marks um breyttar þarfir hjá ákveðnum hóp-
um í samfélaginu. Neytendur vilja komast
hjá því að gera matarinnkaupin sjálfir og
mörgum veitir heldur ekki af leiðbeiningum
við eldamennskuna. „Viðskiptavinir okkar
hafa sumir haft á orði við okkur að þjónustan
okkar geri mataræðið þeirra hollara og fjöl-
breyttara. Það er svo auðvelt að festast í
þeim sporum að elda yfirleitt sömu réttina,
og ekki endilega alltaf það hollasta sem borið
er á borð.“
Hagræði í heimsendingu
Eldum rétt þurfti að glíma við nokkrar
áskoranir. Til að byrja með var t.d. við-
skiptavinahópurinn nokkuð gisinn svo að
sendlar fyrirtækisins þurftu að aka lengri
vegalengdir á milli heimila. „Nú þegar pakk-
arnir eru orðnir svona margir deilist dreif-
ingin á mun minna svæði fyrir hvern sendil,“
segir Kristófer.
Einnig þurfti að láta neytendur vita af
þessari nýju þjónustu. Þar notaðist Eldum
rétt við Facebook og tölvupóstlista en Krist-
ófer segir allt benda til að það hafi einkum
verið viðskiptavinirnir sjálfir sem hafi verið
duglegir að breiða út hróður fyrirtækisins.
Einn vandi sem stjórnendur Eldum rétt
hafa þurft að glíma við er að skortur getur
verið á sumu hráefni. „Við reynum að prófa
nýja rétti og framandi með reglulegu milli-
bili og rekum okkur þá á að ekki er alltaf
hægt að stóla á nægilegt framboð af öllu hrá-
efninu sem þarf,“ útskýrir Kristófer.
Þó réttirnir séu ekki for-eldaðir þarf að-
komu matreiðslumeistara við val á upp-
skriftum og skömmtun á hráefni. Þar hefur
Eldum rétt rekið sig á að samkeppnin um
menntað matreiðslufólk hefur harðnað mjög.
„Með auknum ferðamannastraum og upp-
gangi í veitingahúsageiranum eru margir
sem vilja næla í hæfasta matreiðslufólkið.“
VIÐTAL
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Fyrstu vikuna sem Eldum rétt starfaði seldi
fyrirtækið aðeins 23 matarpakka. Rösklega
tveimur árum síðar útbúa starfsmenn fyr-
irtækisins hráefnið í
nokkur þúsund máltíðir í
viku hverri og eru um 40
manns á launaskrá.
Kristófer Júlíus Leifs-
son er einn af stofnefnd-
um Eldum rétt og var
hann meðal þátttakenda í
ráðstefnunni Matur er
mikils virði sem Samtök
iðnaðarins héldu á
fimmtudag.
Kristófer segir að vext-
inum fylgi töluverð stærðarhagkvæmni s.s.
við innkaup og heimsendingu. „Við finnum að
við erum núna komin á þann stað að ákveðið
jafnvægi er í sölunni. Flókið er að lesa í
markaðinn og sjá hvar tækifærin eru til að
vaxa enn frekar, en einn hópur sem þrýstir
mjög á okkur eru grænmetisæturnar sem
vilja gjarnan nýta sér þjónustuna.“
Senda út þúsundir máltíða á viku
Eldum rétt sendir hráefni sem dugar í þrjár
máltíðir heim að dyrum Minna umstang
og aukin fjölbreytni fyrir viðskiptavininn
Morgunblaðið/ÞÖK
Þjónusta Eldum rétt skammtar hráefnið af
nákvæmni og sparar ferð út í stórmarkað.
● Útlit er fyrir að samanlögð greiðslukortaskuld Banda-
ríkjamanna muni fara yfir 1.000 milljarða dala markið á
þessu ári. Hæst nam greiðslukortaskuldin 1.020 millj-
örðum sumarið 2008.
Að sögn WSJ skýrir það stöðuna að hluta að banda-
rískir bankar hafa markaðssett greiðslukort sín af miklu
kappi. Eins er mögulegt að vaxandi greiðslukortaskuld
sé til marks um að neytendur séu farnir að venja sig af
þeirri sparsemi sem fjármálakreppan neyddi þá til að til-
einka sér. Fólk með gott lánstraust kann að vera viljugra
en áður að safna skuldum í ljósi batnandi ástands at-
vinnulífs og vinnumarkaðar, en bankarnir hafa einnig
slakað á kröfum sínum svo að milljónir manna með lé-
legt lánstraust hafa getað fengið kort.
Þá fóru lán vegna bílakaupa yfir 1.000 milljarða dala
markið á fyrsta ársfjórðungi og er það met. ai@mbl.is
Kortaskuld Bandaríkjamanna nálægt fyrra meti
Bankar í BNA hafa mark-
aðssett kort af kappi.
Kristófer
Leifsson
● Bandaríska landbúnaðarráðuneytið
hefur sektað líftæknifyrirækið Santa
Cruz Biotechnology um 3,5 milljónir
dala vegna slæmrar meðferðar á dýr-
um. Að sögn AP gengst fyrirtækið
hvorki við né neitar ásökunum ráðu-
neytisins um að hafa m.a. látið kanínur
í sinni umsjá lifa við hörmulegar að-
stæður.
Dýraverndarsamtök segja sektina
marka tímamót en hæsta sektin sem
ráðuneytið hefur áður beitt vegna
slæmrar meðferðar á dýrum nam að-
eins tæpum 300.000 dölum. ai@mbl.is
Metsekt vegna illrar
meðferðar á dýrum