Morgunblaðið - 23.05.2016, Síða 17

Morgunblaðið - 23.05.2016, Síða 17
17 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. MAÍ 2016 Gæludýramessa Í messu í Seltjarnarneskirkju í gær var viðhöfð sérstök gæludýrablessun að erlendri fyrirmynd. Hundarnir stilltu sér upp og hlustuðu á Bjarna Þór Bjarnason sóknarprest. Ófeigur Áhugavert var að hlusta á hugleiðingar Gylfa Zoëga prófess- ors í hagfræði í sunnudagsþætti Æv- ars Kjartanssonar sunnudaginn 17. apríl. Hann leitaðist við að fara ofan í saumana á hinum dýpri gildum samfélagsins, svo sem trausti manna á með- al, hugsjónum um réttlátt sam- félag, um samfélagsvitund og síð- ast en ekki síst um fyrirmyndarsamfélögin í norðri þar sem velferðarríkið hefur blómstrað og aðrar þjóðir hafa lit- ið upp til. Hvernig varð þetta velferð- arþjóðfélag til, á hverju byggist það? Í því sambandi velti hag- fræðingurinn fyrir sér guðfræði og þá bárust böndin strax að Lúther, rætt var um hinn „al- menna prestsdóm“, um aflagningu klaustra, um samfélagslega ábyrgð einstaklingsins. Allt var það áhugavert og rétt og hlaut að leiða að þungavigtarspurningunni: hvað yrði um allt þetta góða kerfi hyrfi undirstaðan? Getur velferð- arþjóðfélag staðist án þess að ein- dregin sannfæring þegnanna sé að baki? Getur kerfi, sem upphaflega var mótað af trúarlegum mann- úðarhugsjónum, staðist án þeirra? Og hvað tæki hugsanlega við að öðrum kosti? Sagan varpar ljósi á eitt og annað sem setur svip á líðandi stund um leið og hún vekur spurningar um framtíðina. Tíminn kann að leiða í ljós að kerfið standist þótt engar séu forsend- urnar. Til eru þær kenningar, sem segja að hinar trúarlegu forsendur hafi leitt af sér mannúðlegt vel- ferðarkerfi og það muni standast þótt forsendurnar hverfi hægt og sígandi út úr myndinni; hið „veraldlega“, upp- lýsta samfélag sé rökrétt afleiðing af kristinni trú, segja sumir guð- fræðingar. Tíminn einn mun leiða í ljós hvort það sjónarmið stenst. Í þættinum var minnst á Max Weber (1864-1920) félagsheim- speking við háskólann í Heidel- berg fyrir einni öld og kenningar hans um rætur velferðarsam- félagsins í siðbótarkristninni, kalv- ínisma og lútherskri kristni. We- ber mótaði skoðanir um evrópsk samfélög og setti fram fyrir því sem næst einni öld (Die Protest- antische Ethik und der Geist des Kapitalismus, 1905). Kenningar hans ganga út á að skilgreina muninn á samfélögum sem mótuð eru af siðbót Lúthers og Kalvíns annars vegar en hins vegar af kaþólskri hefð. Weber gerði sér far um að horfa undir yfirborðið, til mótunar samfélaganna, til djúpra róta í dagsins önn. Pólitíkin snýst ekki um söguna eða ræturnar heldur um líðandi stund og það sem er skammt framundan. En hagfræðingurinn vill horfa dýpra og spyrja um rök og rætur og kastar sér út í djúpu laugina: hvað býr í djúpinu í þessu efni? Hvaðan er velferðarkerfið komið, hver verður framtíð þess í breyttum heimi? Svarið er áreið- anlega flókið en til að spinna þráð- inn aðeins áfram frá þessu áhuga- verða samtali í útvarpinu finnst mér rétt að minna á eitt atriði. Í huga mínum rifjuðust upp fyr- irlestrar Günters Brakelmanns, prófessors í félagslegri siðfræði við háskólann í Bochum á 8. ára- tugnum, þar sem hann rakti upp- runa velferðarkerfisins til píetist- ans Ottos von Bismarck (1815-1898), kanslara Wilhjálms Þýskalandskeisara og samstarfs hans við annan píetista, Theodor Lohmann (1831-1905), háttsettan lögfræðing og leyndarráð í stjórn- kerfi Prússaveldis. Til hugsjóna og samstarfs þessara tveggja manna hefur Günter Brakelmann – auk annarra – rakið rætur vel- ferðarkerfisins í Prússaveldi sem varð síðan fyrirmynd sama kerfis annars staðar. Þetta var á árunum 1880-1883. Þarna voru ræturnar að hans mati (Sjá bók Brakel- manns, Zwischen Widerstand und Mitverantwortung, 1994). Iðnbyltingin hafði ekki aðeins í för með sér auð og allsnægtir sumra, heldur einnig misrétti, sjúkdóma og örbirgð. Píetistarnir voru ekki byltingarmenn heldur umbótamenn sem sáu mannúðlegt samfélag þróast markvisst ef rétt væri á spöðunum haldið. Píetism- inn var ein merkasta umbóta- hreyfing í sögu kristninnar á hinu félags-pólitíska sviði, afsprengi siðbótarinnar og upplýsingarinnar. Meðal frumkvöðlanna í hópi um- bótasinnaðra píetista var August Hermann Francke greifi (1663– 1727) í Halle, fæðingarborg Frie- drichs Händels, við fljótið Saale á Saxlandi í austanverðu Þýska- landi. Fyrir Francke vakti stofn- anavæðing trúarinnar á hinu fé- lagslega sviði. Hann vitnaði áreiðanlega oft – eins og Gylfi Zoëga í þættinum – í gullnu regl- una: „Allt sem þér viljið að aðrir menn gjöri yður það skuluð þér og þeim gjöra.“ Allt miðaði að því að svara kalli samtímans um að jafna kjör fólks og að allir gætu lifað mannsæmandi lífi. Menntun emb- ættismanna Prússaveldis fór fram við háskólann í Halle sem kenndur er við Martein Lúther. Í Halle og víðar risu félagslegar stofnanir fyrir alþýðu manna, skólar, munaðarleysingjahæli, sjúkrahús, hvaðeina sem nú er partur af því fyrirkomulagi sem við nefnum velferðarþjóðfélag. Áhrifa frá öðrum forföður píetism- ans, Zinzendorf greifa, gætti m.a. í danska konungsríkinu snemma á 18. öld og þar með á Íslandi, hann var í góðu sambandi við æðstu veraldleg yfirvöld og beitti sér fyrir því að félagslegar stofnanir risu í Kaupmannahöfn og víðar. Hugsjónir sínar um almanna- tryggingar og annað, sem miðaði að félagslegu réttlæti, sóttu þeir Bismarck og Lohmann til píetist- anna þar sem þeir voru sjálfir heimamenn. Fyrirmyndina var m.a. að finna í Halle og víðar í sambærilegum stofnunum, þar voru brautryðjendurnir og þar var reynslan – framtíðarsýnin um mannúð og jafnrétti var þar einnig þótt tíðarandinn væri slíkum hug- sjónum ekki alltof velviljaður. Spurning hagfræðinnar hlýtur að beinast að rótunum, hvernig varð velferðarkerfið til og í hvaða tilgangi og hvernig verður því við haldið? Mun það þrífast án rót- anna, mun það þrífast án innri hvata einstaklinganna til að gera mannúðarhugsjónir að veruleika, mun það þrífast án hugsjóna? Ég heyrði ekki betur en slíkar hugs- anir leituðu á huga þeirra Gylfa og Ævars og þær eru sannarlega tilefni til að varpa sér á kaf í djúpu laugina og komast aðeins undir yfirborðið í þessu efni. Eftir Gunnar Kristjánsson » Spurning hagfræð- innar hlýtur að beinast að rótunum, hvernig varð velferð- arkerfið til og í hvaða tilgangi og hvernig verður því við haldið? Gunnar Kristjánsson Höfundur er prófastur emeritus. Kafað í djúpu laugina – um velferðarkerfið

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.