Morgunblaðið - 23.05.2016, Page 26
26 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. MAÍ 2016
»Alþjóðlegu kvik-
myndahátíðinni í
Cannes lauk í gær-
kvöldi en hún hófst 11.
maí. Að venju var mikið
um dýrðir og vandaðar
kvikmyndir og kvik-
myndastjörnur og -leik-
stjórar mættu í sínu fín-
asta pússi á rauða
dregla fyrir frumsýn-
ingar. Gleðilæti og
kossaflens voru áber-
andi að vanda enda
ástæða til að gleðjast.
Stjörnurnar nutu athyglinnar á rauða dreglinum á kvikmyndahátíðinni í Cannes
Senjorítur Spænsku leikkonurnar Inma Cuesta, Emma Suarez, Rossy de Palma, Adriana Ug-
arte og Michelle Jenner stilltu sér upp fyrir ljósmyndara vegna kvikmyndarinnar Julieta sem
þær leika í, þeirrar nýjustu eftir leikstjórann Pedro Almodóvar sem mætti einnig á hátíðina.
Gleði Leikstjórinn Jodie Foster með Juliu Roberts og George Clooney sem
leika í kvikmynd Foster, Money Monster, sem var frumsýnd 12. maí.
Strokið Spænska leikkonan Adriana Ugarte strauk leikstjóranum Pedro
Almodóvar blíðlega fyrir frumsýningu kvikmyndar hans Julieta, 17. maí sl.
AFP
Svalir Rokkarinn Iggy Pop og leikstjórinn Jim Jarmusch mættu á frumsýningu heimild-
armyndar Jarmusch um Iggy og hljómsveitina The Stooges, Gimme Danger, 19. maí.
Breski leikstjórinn Ken Loach hlaut
Gullpálmann, helstu verðlaunin á
kvikmyndahátíðinni í Cannes, í
gærkvöldi. Ken Loach fékk verð-
launin fyrir myndina I, Daniel
Blake. Þetta er í annað sinn sem
Bretinn, sem er 79 ára, fær verð-
launin, en hann var einnig útnefnd-
ur árið 2006 fyrir myndina The
Wind That Shakes the Barley.
Íranska myndin The Salesman
eftir Asghar Farhadi var verðlaun-
uð fyrir besta kvikmyndahandritið
auk þess sem Shahab Hosseini var
útnefndur sem besti leikarinn í að-
alhlutverki. Jaclyn Jose var kjörin
besta leikkonan fyrir leik sinn í Ma
Rosa.
Sundáhrifin, hin fransk/íslenska
gamanmynd Sólveigar Anspach
heitinnar, vann til SACD-verð-
launanna fyrir bestu kvikmyndina á
frönsku á hátíðinni.
Þetta er í þriðja sinn sem kvik-
mynd eftir Sólveigu er tilnefnd á
Cannes. 2001 var franska heimild-
armyndin Made in the USA tilnefnd
og vann François Chalais-
verðlaunin. Árið 2003 var leikna
kvikmyndin Stormviðri (einnig gerð
í samvinnu við Frakka) tilnefnd í Un
Certain Regard-hluta hátíðarinnar.
Bretinn Ken Loach
hlaut Gullpálmann
AFP
Gullpálminn Breski leikstjórinn Ken Loach með verðlaunin.
www.danco.is
Heildsöludreifing
skyflite
london
55 cm 2,9 kg
Elan
Top quality
3 stk. sett
Silfur
70 cm 4 kg
80 cm 4,9 kg
52 x44 x27 cm 62 x39 x24 cm
72 x 34 x 20 cm
Escort
3 stk. sett
Til í svörtu
og rauðu
Fyrirtæki og verslanir
Ný sending af Skyflite ferðatöskum