Morgunblaðið - 23.05.2016, Qupperneq 27
Glæsileg Breska fyrirsætan Kate
Moss mætti á frumsýningu kvik-
myndarinnar Loving 16. maí.
Sjarmör Kanadíski leikarinn og hjartaknúsarinn Ryan Gosling veifaði
aðdáendum sínum fyrir frumsýningu kvikmyndarinnar The Nice Guys, 15.
maí sl. Gosling fer með eitt af aðalhlutverkum kvikmyndarinnar.
Hnefaleikakappar Venesúelski leikarinn Edgar Ramirez tók létta æfingu með panamska hnefaleikakappanum
fyrrverandi Roberto Duran. Ramirez leikur Duran í kvikmynd um boxarann, sem nefnist Hands of Stone.
MENNING 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. MAÍ 2016
Börkur Gunnarsson
borkur@mbl.is
Í dag mánudaginn 23. maí, verður
leikritið Sími látins manns frumsýnt
í Tjarnarbíói kl. 20:30.
Nánd er mikilvæg
Leikritið fjallar um nándina sem
allir þrá en eiga ekki alltaf auðvelt
með. Tæki eins og snjallsími, með
öllum sínum upplýsingum og tengi
möguleikum getur virkað eins og
gereyðingartól í mannlegum sam-
skiptum og búið til þrúgandi tóma-
rúm. Verkið fjallar á gamansaman
hátt um hina einangruðu Nínu sem í
gegnum síma ókunnugs látins
manns reynir eftir bestu getu að búa
til nánd milli fólks sem allt er tengt
fjölskyldu- eða vinaböndum en er
með stóra gjá á milli sín. Tilraunir
Nínu hafa ófyrirséðar afleiðingar.
Og eins og kemur í ljós þá var hinn
látni kannski ekki afbragðs drengur
á meðan hann bjó á meðal vor.
Brooklyn skáld
Sími látins manns er fyrsta verk
leikskáldsins Söruh Ruhl sem sett er
upp á Íslandi. En hún er eitt vinsæl-
asta nútímaleikskáld Bandaríkjanna
um þessar mundir. Verk hennar eru
mikið leikin og hefur hún í tvígang
verið tilnefnd til hinna virtu Pulitzer
verðlauna.
Varð að koma sýningunni á
koppinn hér á Íslandi
Aðal leikkonan og prímusmót-
orinn í verkinu, María Dalberg, seg-
ir að hún hafi heillast að verkinu
þegar hún las það á meðan hún
stundaði nám í New York. „Ég er
framleiðandinn og leik aðal-
hlutverkið,“ segir María Dalberg.
„Þetta verk talaði sterkt til mín. Að-
alpersónan er einmana sál í stór-
borg. Þótt það sé mikið líf í kringum
mann þá er maður einmana, því
maður nær oft ekki að tengja við
aðra. Svo er það þessi sími. Hann er
þessi dónalegi karakter í verkinu
sem er alltaf að trufla. Hún finnur
þennan síma sem heldur lífi í þess-
um látna manni. Þessi nútímatækni
er alltaf að trufla. Það er mikið um
það að fólk sé ekkert að tala saman
og er bara í samskiptum í gegnum
sms. Mér fannst ég þurfa að setja
þetta upp og varð mér úti um rétt-
indin.“
Kvennasýning á kvennahátíð
„Þetta er kvennasýning,“ segir
María. „Sagan er eftir kvenmann,
leikstýrt af kvenmanni henni Char-
lotte Böving, aðalhlutverkin eru í
höndum kvenmanna okkar Elvu
Óskar og Halldóru Rutar, en jú það
er eitt hlutverk karlmanns þarna, en
hann deyr, þannig að við kvenmenn-
irnir erum mest á sviðinu og reyndar
er bróðir dauða mannsins þarna líka.
En þetta er kvennasýning og small
inní þema Listahátíðarinnar sem
gengur svolítið út á raddir kvenna.
Það er geggjað að fá svona konur
til liðs við sig einsog Charlotte Bö-
ving og Ragnhildi Gísladóttur sem
semur frábæra tónlist við verkið.“
Svarað í síma
látins manns
Dauðinn er ekki endir á neinu
Ljósmynd/Óli Magg
Dauðinn Þegar einhver deyr fyrir framan þig þá er góð hugmynd að eigna sér síma mannsins og svara í hann.
5511200 | Hverfisgata 19 | leikhusid.is | midasala@leikhusid.is
Í hjarta Hróa hattar (Stóra sviðið)
Lau 28/5 kl. 19:30 76.sýn Lau 4/6 kl. 19:30 78.sýn Lau 11/6 kl. 19:30 Lokasýn
Sun 29/5 kl. 19:30 77.sýn Sun 5/6 kl. 19:30 79.sýn
Sýningum lýkur í vor!
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 25/5 kl. 19:30 Mið 1/6 kl. 19:30
Ný sýning í hverri viku - Ekkert ákveðið fyrirfram!
Play (Stóra sviðið)
Þri 31/5 kl. 19:30
Listahátíð í Reykjavík
AUGLÝSING ÁRSINS –★★★★ – M.G. Fbl.
MAMMA MIA! (Stóra sviðið)
Þri 24/5 kl. 20:00 Þri 7/6 kl. 20:00 Fim 23/6 kl. 20:00
Mið 25/5 kl. 20:00 Mið 8/6 kl. 20:00 Fös 24/6 kl. 20:00
Fim 26/5 kl. 20:00 Fim 9/6 kl. 20:00 Lau 25/6 kl. 20:00
Fös 27/5 kl. 20:00 Fös 10/6 kl. 20:00 Sun 26/6 kl. 20:00
Lau 28/5 kl. 20:00 Lau 11/6 kl. 20:00 Fös 9/9 kl. 20:00
Sun 29/5 kl. 20:00 Sun 12/6 kl. 20:00 Lau 10/9 kl. 20:00
Þri 31/5 kl. 20:00 Mið 15/6 kl. 20:00 Sun 11/9 kl. 20:00
Mið 1/6 kl. 20:00 Fim 16/6 kl. 20:00 Fös 16/9 kl. 20:00
Fim 2/6 kl. 20:00 Lau 18/6 kl. 20:00 Lau 17/9 kl. 20:00
Fös 3/6 kl. 20:00 Sun 19/6 kl. 20:00 Sun 18/9 kl. 20:00
Lau 4/6 kl. 20:00 Þri 21/6 kl. 20:00 Lau 24/9 kl. 20:00
Sun 5/6 kl. 20:00 Mið 22/6 kl. 20:00
Uppselt út leikárið! Sýningar haustsins komnar í sölu.
Auglýsing ársins (Nýja sviðið)
Sun 29/5 kl. 20:00 síðasta
sýn.
Ærslafullur og andstyggilegur gleðileikur eftir Tyrfing Tyrfingsson
Njála (Stóra sviðið)
Fim 29/9 kl. 20:00 Mið 5/10 kl. 20:00
Kenneth Máni (Litla sviðið)
Lau 28/5 kl. 20:00 109.sýn
Kenneth Máni stelur senunni
– með morgunkaffinu