Einn Helsingi - 01.03.1946, Síða 6

Einn Helsingi - 01.03.1946, Síða 6
4 EINN HELSINGI yfirflacða tæra lind sjálfstæðra skynj- ana og stöðva alla vaxtarmöguleika andlegs þroska einstaklingseðlis síns; — hinn voðalega aldeyðudóm, sem hver og einn fellir yfir verandi sinni, með því að láta hið tónlausa, vitfirringslega halilújaöskur þessa þúsund höfða skrímslis algerlega dauðsefja eigin hugheitingu og einstaklingsvitund. En það var þetta, sem ég hafði ætlað mér að reyna að draga fram í þessu eina dæmi af mörgum frá persónulegri reynslu. Sýna með því og sanna, svo langt sem það næði, að það er einmitt þessi óhugnanlegi veruleiki, sem stefn- ir með allt lifandi, mannlegs eðlis á fleygiferð til helvítis, — eða út í al- deyðu, og voru þó hinir æðandi tröll- sjóar heildarsefjana og múgvitfirring- ar ekki búnir að eignast þá slíka möguleika, sem siðar hafa fram komið til öreyðingar þessari mannkynssköp- unartilraun, — atomsprengjuna, kjarn- orkusundrunina, möguleikann til upp- lausnar á efnisheiminum og í raun réttri fullnaðar afsönnun allrar til- veru hans og alls þess, sem hugtakið „efni“ hefur náð yfir. Skal svo forspjallsorðum mínum lok- ið, enda hafa þau þegar tekið of mikið rúm, þar sem of þröngt var fyrir. Eg hefi og reynt til að láta efni rits- ins 'tala Sínu máli það sem það nær. Kristneshæli, í marzmánuði 1946. Steindór Sigurðsson. -----------<—<♦>!<♦>—*----------■— Hví byrja mennirnir út í ómæli hugtakaleysisins í leit að uppruna eðlisins? Þeir hafa upphafið i sjálfum sér. Mennirnir eru fáir, sem reyna að kynnast upphafinu. Langflestir stinga sér strax á kaf ofan í botnlaus ómælisdjúpin til að leita að endinum. Ekkert getur frelsað manninn nema maðurinn sjálfur. Leit sína að upphafi og endis alls getur maðurinn hvergi fundið nema i sjálfum sér og meðal samferðamannanna. í þeim kynnist hann sjálfum sér bezt — en sjálfum sér í þeim. En þegar hann er kominn nokkuð áleiðis í þeirri leit, má vera að birtist ný viðhorf. Það er betra að hugsa rétt en hugsa mikið. Það er betra að hugsa af nákvæmni um hið smáa, en að hugsa um allt í einu á yfirborði þess stóra. Ein mauraþúfa í landareigninni kennir manninum meira um jörð- ina og jarðlífið og alla þróun þessarar tilveru en skyndiferð um- hverfis hnöttinn. Llfsskilyrði er að sjá ávallt það broslega i hverju erfiðu augnabliki og í aðdraganda og orsökum hvers sársauka.

x

Einn Helsingi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Einn Helsingi
https://timarit.is/publication/1212

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.