Einn Helsingi - 01.03.1946, Blaðsíða 12
10
EINN HELSINGI
sinni samfélagslegu réttlætiskröfu
framgengt.
Eins og hagir þessa rits standa
nú, og þeirrar hugsjónar, sem að
baki því vakir, — og sem hér verð-
ur ekki rætt frekar en gert hefur
verið hér að framan, — þá mundi
það á engan hátt svara tilgangi, að
birta nú hér nöfn hinna 200 fyrstu
heyrenda, sem skráðir verða inn í
stofnendaskrá „minningarsjóðs
frjálsrar og fordómalausrar hugs-
unar“, þegar til þess kemur, að
þeim fyrsta viðleitnisáfanga verði
náð. En að svo verði, fyrr eða síð-
ar, vil ég ekki missa trúna á, —
því með henni færi öll önnur trú
mín á mannvilja og mannsvit, lífs-
möguleika og lífstilgang, því að sú
trú hefur liðið svo mörg skipbrot,
og hlotið svo stór áföll um dagana,
að hún má ekki við miklu. Og eins
og viðhorfin framundan eru í dag, í
hvaða átt sem litið er yfir heims-
sviðið, blóðvelli þess og beina-
gryfjur, þar sem hin helóða hring-
iða mannlegs lífs snýzt, hatandi og
ráðþrota, — þá eru þar fáir þeir
sólskinsblettir, sem sú trú gæti
leitað sér styrktar hjá. —
En þó að hvorki sé tímabært né
rúm í þessu riti nú, fyrir þessi
200 nöfn á væntanlegri skrá, — þá
tel ég samt réttara að birta hér 20
—30 þeirra, vegna ummæla minna
hér annars staðar í ritinu, um þjóð-
félagslegt gildi þeirra nafna, eða
eins og það er orðið: „að þau séu
mér hin fyllsta trygging fyrir „að
fordómalaus hugsun og skilnings-
vilji hafi átt að skipa einvalaliði á
íslandi 1944".“ — Og að ég fari
þar ekki með staðlausar staðhæf-
ingar eða fullyrðingagaspur, ættu
eftirfarandi nöfn að nægja, til að
sanna, — nöfn, sem gripin eru af
handahófi hér og þar úr nafnaskrá
„Eins helsingja" yfir þessa 200
heyrendur ákallsins.
En ég vil biðja alla hina, sem
eftir verða að misvirða það ekki
við mig. Ekkert mat af nokkru tagi
hefur ráðið fyrir því hvaða nöfn
eru í þessarri ígrips-upptalningu
— þjóðfélagslegt gildi þeirra, sem
eftir eru, stendur fyllilega jafnfæt-
is þessum, — og er sízt minna við-
urkennt, hvað sumum þeirra við-
víkur. — Fyrir mig og þann til-
gang þessarar upptalningar, sem
fyrr getur, hafði það nákvæmlega
sömu þýðingu, þó að ég felldi öll
þessi burt og tæki önnur 20—30 í
þeirra stað.
Arnfxnnur Jónsson, skólastjóri, Rvlk.
Björn Franzson, rithöfundur, Rvík.
Bjarni Guðmundsson, fulltrúi, Rvík.
Eiríkur Brynjólfsson, ráðsm., Kristnesi.
Friðrik Ólafsson, skólastjóri, Rvik.
Guðrún Stefánsdóttir, skáld, Rvik.
Gunnar M. Magnúss, rithöf., Rvík.
Guðmundur Pétursson, útg.m., Ak.
Hannes Jónsson, Núpsstað, Skaftafellsi.
Halldór Sigurðsson, úrsmiður, Rvík.
Jens Benediktsson, blaðamaður, Rvík.
Jakob Kristinsson, frv. fraeðslumstj. R.
Jakob Thorarensen, skáld, Rvik.
Jakob Líndal, Laekjamóti, Húnavatnss.
Jóhannes úr Kötlum, skáld.
Ingibjörg Ingólfsd., Fjósatungu, S.-Þ.
Karl Kristjánsson, oddviti, Húsavík.
Kristmann Guðmundsson, rithöf.
Karl O. Runólfsson, tónskáld.
Methúsalem Stefánsson, skrifstofustj.
Magnús Ásgeirsson, ríthöfundur.
Lárus H. Blöndal, bókavörður.
Oddur Ágústsson, útvegsbóndi, Hrisey.
Rögnv. Þórðarson, bóndi, Daeli, Svaif.