Einn Helsingi - 01.03.1946, Qupperneq 32
so
EINN HELSINGI
ALL hin himinhrópandi rang-
hverfa árekstrar og öfug-
streymi í lífi mannanna og sam-
búð, sem gert hefur sögu okkar
óslitinn harmleik frá öndverðu og
jörðina samfelldan blóðvöll, — á
allar sinar orsakir í því, að þroski
og þróun einstaklingsins helzt ekki
í hendur við þróun samfélagsskipu-
lagsins sem hann lifir í.
Og því hefir þessi hrunadans
vitfirringarinnar orðið óskaplegri
og óviðráðanlegri með hverri öld
og hverjum áratug, meðan hin
hraðstígandi þróun skipulagning-
anna óx út yfir heiminn.
Það ætti ekki að vera erfitt fyrir
ótruflaða skynsemi að gera sér
grein fyrir því, að nú þegar öll hin
ytri skipulagning þjóðfélaganna
færist í sócialistiska átt — þeirrar
skipulagstilraunar mannanna, sem
á breiðustum grundvelli hefur
byggt — og tekur meira og meira
upp hið hagræna kerfi hennar, þá
verðuur óumflýjanlega afleiðingin
sú, að aldrei hefur þvílik vá staðið
fyrir dyrum mannkynsins.
Því undir sócialistisku eða hálf-
sócialistisku skipulagi, nær ein-
staklingurinn sem n.úgmenni svo
mikilli þjálfaðn starfshæfni í efnis-
legri tækni, en jafnframt aðeins
starblinda og innilokaða sérþekk-
ingu og yfirsýn alla sviðbundna, að
þeir verði á skömmum tíma aðeins
hlutur í vélrænum dauðkerfum,
ægilegri og voldugri í meðferð
hinna efnislegu orkulinda, en nokk-
'irn hefur dreymt.
Svo hlýtur að fara ef persónu-
legum vaxtarþroska þeirra verður
ekki gefinn öll skilyrði að sama
skapi, sem skipulagsþróun vex.
Og hin óumflýjanlega afleiðing
slíkrar efnislegra dauðkerfa þróun-
ar með blinduðum vélmennum
yrði tortýming og aleyðing mann-
kynsins ótrúlega miklu fyrr en
okkur varir.
*
Allar vorar yfirsjónir, breysk-
leikar og afbrot eru eingöngu
metnar, mældar og vegnar eftir
því, hvað aðrir einstaklingar tapa,
eða telja sig geta tapað á slíkum
gjörðum hinna einstöku.
Hvert eitt afbrot, hver vor mis-
gjörð, verður stór eða smá, verður
aðeins til sem veruleiki samkvæmt
því mati, samkvæmt þeim eina
mælikvarða, þeirri einu vog, því,
hve hið fjárhafeslega tap annarra,
beint eða óbeint, kann að geta orð-
ið fyrir þá sök.
Ef afbrotið hefir ekki í för með
sér nein töp á veraldlegum verð-
mætum fyrir aðra, eða skapar