Einn Helsingi - 01.03.1946, Síða 40

Einn Helsingi - 01.03.1946, Síða 40
38 EINN HELSINGI verður að vera nacr lágmarksáætlun minni (4 arkir = 64 bls.) eða hámarks- áætlun (6 arkir = 96 bls.), né heldur hvað kostnaðarhliðin og söluhorfur leyfa upptöku mangra einraddaðra laga o. s. frv.. Og að síðustu er það verð- lagsstjóri ríkisins, sem ákveður verðlag bókarinnar samkvæmt kostnaðarreikn- ingum. En óhætt mun að fullyrða, að verð hennar óbundinnar verður einhver* staðar á milli 10 og 20 kr., og þó hún næði hámarksáætlun i stærð aldrei fram úr þvi. Og svo i bandi það hærra sem því nemur, en það vildi eg helzt geta haft tvenns konar — shirting og alskinn — og þá með tilsvarandi verðmun. Eg tel því líklegt, út frá meðaltali þessara áætlana, yrði verð hennar um ’5 krónur óbundin ag 25—30 krónur í skinnbandi. Að svo mæltu sný ég máli mínu tU ykkar allra, sem ánægju hafið af þvi að raula ykkur í sátt við hversdagsamann, og sem þá ekki síður finnið skemmtun í því að „taka lagið“ í glöðum hóp, og mælist tU að þið athugið lagaskrána og sýnishom textanna. Og fari svo, að ykkur félli valið vel og textamir fyndust ykkur þolanlega -viðfelldnir og stórgallalausir, þá em það vinsamleg tilmæli miín, að þið útfyllið annan hvom áskriftarmiðann sem fylgir hér á eftir, og sendið tnér hið fyrsta. Miðana klippið þið svo úr og látið í póst við fyrsta tækifæri. Hér á eftir er skrá eða upptalning nokkrum vinsælum sönglögum.ersöng- textar þeir eru ortir undir eða þýddir, sem nú liggja hjá mér í handriti, auk hinna 9, sem fylgja textasýnishornum þeim, sem hér eru birt. Er þaS saman- lagt um það bil helmingur þeirra laga, sem textar eru nú tilbúnir við. Lögin eru hér skráð með þeim kenn- ingarheitum, sem alþýðu manna mun vera þau kunnust undir, í þeim til- fellum, sem hið upprunalega heiti þeirra og frumtextans mun vera lítið þekkt manna á meðal. 1. Beautiful Dreamer (St. Foster). 2. My Old Kentucky Home (Foster). 3. I dream of Jeannie tvith the light bröwn hair (Foster). 4. The Old Folks at Home. 5. Home on the Range. 6. Amapola. 7. La Cucaracha. 8. Hann flækist víða fullur. 9. Litli vin. 10. Nu tror jag det kan vara tid 11. Hár ar gudagott at vara. 12. O jánta o jag. 13. Dar gingo tre jenter i solen. 14. Jungmann Jansson. 15. Vora du skjön som den adela roi. 16. Ein yngismeyjan gekk út 1 skógi. 17. Der björkorna susar 18. Til Austurheims vil eg halda. 19. Husker du i Höst (Lille Karen). 20. Det var en Lördagsaften. 21. Ak, kæreste Hr. Guldsmed 22. Den siste reis (Sing, Sailor, Oh). 23. Millom bakker og berg. 24. Briiderlein, trink (þýzkt). 25. La donne e mobile (ítalskt). 26. Santa Lucia (Heilaga Hulda) — 27. Stenka Rasin (russneskt). 28. Flökkumaður, spila þú 29. Æ, æ, æ, ungmeyjan grætur 30. Spinn, spinn, Hulda min 31. Ingalill. Frekari upptalning verður að bíða bókarinnar sjálfrar, eða nálægt því 50 önnur. Þar á meðal allmörg islenzk lög, sem textar hafa myndazt við hjá mér undir ýmsum stemningum — frekar en af þörf fyrir nýja texta. I>á og vinsæl danslög, gömul og ný, m. a. við hið gamla söngva-danslag „Nú vefum við mjúka, — þá dýrindii dúk»".

x

Einn Helsingi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Einn Helsingi
https://timarit.is/publication/1212

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.