Fréttablaðið - 21.01.2017, Page 8
Mörgum sinnum hafa borist fréttir um voðaverk utan úr heimi. Órói hefur sett
mark á okkur. Spilum vel úr okkar fé hér á Íslandi. Ást og friður allt árið.
Landvarðanámskeið
Umhverfisstofnun auglýsir námskeið í landvörslu.
Þátttaka í námskeiðinu veitir landvarðaréttindi.
Námskeiðsgjald er kr. 155.000.
Námskeiðið hefst 9. febrúar og lýkur 5. mars.
Kennt er um helgar og á kvöldin á virkum dögum.
Hluti námskeiðsins verður kenndur í fjarkennslu.
Námskeiðið er háð því að næg þátttaka náist.
Dagskrá námskeiðsins má finna á heimasíðu
stofnunarinnar www.umhverfisstofnun.is., og
þar er einnig umsóknareyðublað. Skilyrði er
að umsækjendur séu fæddir 1997 eða fyrr.
Umsóknarfrestur er til og með 31. janúar.
Nánari upplýsingar veitir Jón Björnsson hjá
Umhverfisstofnun, jonb@ust.is
*Ath, öll kennsla og námsgögn eru á íslensku.
Skemmtileg störf í náttúru Íslands 9. febrúar til 5. mars
Sjá nánar á
umhverfisstofnun.is
Námskeiðið spannar rúmar 100 klst.
og megin umfjöllunarefni er:
» Landverðir, helstu störf
» Náttúruvernd og stjórnsýsla
náttúruverndarmála
» Verðmæti friðlýstra svæða, náttúra,
menning og saga
» Gestir friðlýstra svæða
» Mannleg samskipti
» Náttúrutúlkun, fræðsla á friðlýstum
svæðum, bóklegt og verklegar
æfingar
» Vinnustaður landvarða
» Öryggisfræðsla
Styrkir úr Lýðheilsusjóði 2017
Lýðheilsusjóður óskar eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum til
heilsueflingar og forvarna á sviði geðræktar, næringar, hreyfingar
og tannverndar auk áfengis-, vímu- og tóbaksvarna.
Áhersla er lögð á eftirfarandi:
Aðgerðir sem miða að því að efla geðheilsu.
Árangursríkar áfengis- og vímuvarnir.
Aðgerðir sem miða að heilbrigðu mataræði og hreyfingu.
Aðgerðir til að draga úr tóbaksnotkun.
Verkefni sem beinast að minnihlutahópum til að stuðla að jöfnuði til heilsu.
Forvarnir gegn sjálfsvígum.
Við úthlutun verður tekið mið af lýðheilustefnu velferðarráðuneytisins, sbr. skjalið
Lýðheilsustefna og aðgerðir sem stuðla að heilsueflandi samfélagi –
með sérstakri áherslu á börn og ungmenni að 18 ára aldri. (Útg. 2016)
Verkefni sem uppfylla eftirtalin skilyrði hafa forgang:
- Verkefni sem unnin eru í víðtæku samstarfi hagsmunaaðila í samfélaginu.
- Verkefni með eigin fjármögnun og/eða aðra fjármögnun.
Verkefnin eiga að byggja á faglegum grunni og hafa raunhæf og skýr markmið.
Gera þarf grein fyrir því hvernig árangur verkefnis verður metinn og skal skila
framvinduskýrslu að verkefni loknu.
Umsóknarfrestur er til og með 20. febrúar 2017 og skal sótt um á vefsvæði
Lýðheilsusjóðs, http://lydheilsusjodur.sidan.is/pages/.
Nánari upplýsingar í síma 510 1900 eða á vef Embættis landlæknis.
Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum í gegnum vefsvæði sjóðsins.
Embætti landlæknis - Barónsstíg 47 - 101 Reykjavík - Sími 5101900 - lydheilsusjodur@landlaeknir.is - www.landlaeknir.is
Hafnarfjörður Meirihluti bæjar-
stjórnar Hafnarfjarðar ákvað á bæj-
arstjórnarfundi síðastliðinn mið-
vikudag að hækka laun sín um 44
prósent og fylgja þar með ákvörðun
kjararáðs um hækkun þingfarar-
kaups. Meirihlutinn telur að fyrst
þingmenn ætli ekki að aðhafast um
sína launahækkun sé það óráðið
að bæjarfulltrúar hlutist til um sín
laun.
Eftir launahækkun kjörinna fulltrúa
reiknast Fréttablaðinu til að oddviti
Bjartrar framtíðar verði með rúmar
900 þúsund krónur í mánaðarlaun
fyrir stjórnunarstörf og setu í hinum
ýmsu nefndum og oddviti Sjálf-
stæðisflokksins verði með um 850
þúsund krónur.
Gunnar Axel Axelsson, oddviti
Samfylkingar, gagnrýnir launa-
hækkunina. „Við lögðum það til
strax í október að þessi dæmalausa
ákvörðun kjararáðs myndi ekki hafa
áhrif á laun bæjarfulltrúa. Var mál-
inu frestað þar til að Alþingi hefði
tekið málið fyrir sem enn hefur ekki
verið gert. Samt sem áður er þessi
hækkun keyrð í gegn,“ segir Gunn-
ar Axel.
Laun kjörinna sveitarstjórnar-
fulltrúa eru í langflestum sveitar-
félögum hlutfall af þingfararkaupi
þingmanna. Önnur sveitarfélög
á höfuðborgarsvæðinu hafa ekki
tekið ákvörðun um að fara eftir
hækkun kjararáðs en heimildir
Fréttablaðsins herma að önnur
sveitarfélög muni fylgja í humátt
á eftir Hafnarfirði og hækka laun
bæjarfulltrúa um 44 prósent.
„Í rauninni ákváðum við í júlí
síðastliðnum að tengja laun bæjar-
fulltrúa við þingfararkaup einmitt
til að taka þetta úr höndum kjör-
inna bæjarfulltrúa að ákveða laun
sín sjálfir,“ segir Rósa Guðbjarts-
dóttir, formaður bæjarráðs Hafnar-
fjarðar. „Það er óeðlilegt að kjörnir
fulltrúar ákvarði sín laun sjálfir. Í
kjölfar ákvörðunar kjararáðs þann
1. nóvember frestuðum við gildis-
töku þeirrar hækkunar til að sjá
hvort Alþingi ætlaði að gera eitt-
hvað í málinu. Þingmenn ákváðu
fyrir jól að breyta ekki sínum
launum og því afturkölluðum við
frestunina og höldum sama striki
og Alþingi,“ segir hún.
„Bæjarfulltrúastarfið er auka-
starf en launin í dag eru í mörgum
tilvikum umtalsvert hærri en þau
mánaðarlaun sem bæjarstarfsmenn
fá fyrir fulla vinnu,“segir Gunnar
Axel. sveinn@frettabladid.is
Laun bæjarfulltrúa
hækka um 44 prósent
Hafnarfjarðarbær hefur riðið á vaðið meðal sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu
og ætlar að hækka laun kjörinna fulltrúa sem nemur hækkun kjararáðs. Minni-
hlutinn gagnrýnir hækkunina. Önnur sveitafélög eiga eftir að ákveða sig.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar hefur samþykkt 44 prósenta launahækkun kjörinna full-
trúa. FréttaBlaðið/GVa
Lausn á myndagátu Fréttablaðsins
lausn Svöfu arnardóttur var dregin úr þeim réttu og mætti hún á ritstjórn Frétta-
blaðsins og tók við tíu þúsund króna bankagjafakorti í verðlaun.
2 1 . j a n ú a r 2 0 1 7 L a u G a r D a G u r8 f r é t t i r ∙ f r é t t a B L a ð i ð
2
1
-0
1
-2
0
1
7
0
4
:4
1
F
B
0
9
6
s
_
P
0
8
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
8
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
0
3
-5
1
8
C
1
C
0
3
-5
0
5
0
1
C
0
3
-4
F
1
4
1
C
0
3
-4
D
D
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
9
6
s
_
2
0
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K