Fréttablaðið - 21.01.2017, Blaðsíða 24
Ég heiti því að gegna embætti forseta Banda-ríkjanna af trúfestu og að framfylgja, verja og vernda stjórnarskrá Bandaríkjanna eftir
minni bestu getu.“
Þessi orð lét Donald J. Trump, for-
seti Bandaríkjanna, loks falla í gær á
tröppum þinghússins í Washington,
höfuðborgar Bandaríkjanna. John
Roberts, forseti hæstaréttar Banda-
ríkjanna, fór með Trump yfir forseta-
eiðinn.
Varð Trump þar með 45. forseti
Bandaríkjanna og tók hann við af Bar-
ack Obama sem yfirgaf svæðið í þyrlu
stuttu síðar með konu sinni Michelle.
Skömmu áður hafði Mike Pence
svarið varaforsetaeiðinn og tók hann
þar með við af Joe Biden.
„America first“
Innsetningarræða Trumps kallaðist
á við þær fjölmörgu framboðsræður
sem hann flutti í harðri kosninga-
baráttu. Kom hann í ræðunni inn
á það leiðarstef sitt að Bandaríkin
og bandaríska þjóðin ættu að vera í
fyrsta sæti í forgangsröð forseta.
„Við höfum gert aðrar þjóðir ríkar á
meðan auður okkar, styrkur og sjálfs-
traust hefur horfið. Ein af annarri hafa
verksmiðjur yfirgefið landið. Auður
millistéttarinnar hefur verið rifinn af
heimilum þeirra og honum dreift um
hnöttinn. Frá og með deginum í dag
munu Bandaríkin verða í fyrsta sæti,“
sagði forsetinn.
Hann sagði að áhersla yrði lögð á
að koma fólki af bótum og út á vinnu-
markaðinn. Farið yrði eftir tveimur
einföldum reglum. Að kaupa banda-
rískt og ráða Bandaríkjamenn.
Trump kom einnig inn á þau skila-
boð sem ef til vill skiluðu honum
sigri í Michigan, Pennsylvaníu og
Wisconsin: „Yfirgefnar verksmiðjur
standa á víð og dreif eins og legsteinar
um landið. Þetta bandaríska blóðbað
hættir hér og nú.“
Af ræðunni virðist ljóst að Trump
hyggst ekki víkja frá þeirri einangrun-
arstefnu sem hann boðaði í kosninga-
baráttunni. Hann hyggst koma í veg
fyrir að verksmiðjur yfirgefi Banda-
ríkin og ætlar þannig að sjá verka-
mönnum í Miðvesturríkjunum fyrir
atvinnu. Þá hefur hann boðað háa
tolla á vörur fyrirtækja sem yfirgefið
hafa Bandaríkin.
Þess ber einnig að geta að þau
tvö orð sem heyrðust oftast í ræðu
Trumps voru annars vegar Banda-
ríkin og hins vegar Bandaríkjamenn.
Næst á eftir komu hugtök á borð við
ríki og þjóð.
Í lokaorðum ræðunnar fór Trump
fyrirsjáanlega með slagorð sitt úr
kosningabaráttunni: „Make America
great again!“
Vill sameina sundraða þjóð
Hinn nýi og umdeildi forseti leitaðist
í ræðu sinni við að græða sár and-
stæðinga sinna og sameina þjóðina
eftir einstaklega sundrandi kosninga-
baráttu. Hundruð þúsunda Banda-
ríkjamanna hafa mótmælt kjöri hans
frá því í nóvember, meðal annars í
höfuðborginni í gær. Þó var ekki að
merkja neina truflun á athöfninni
sjálfri þegar horft var á útsendingar
bandarískra sjónvarpsstöðva.
Í sameiningarskilaboðum sínum
höfðaði Trump til föðurlandsástar-
innar. „Þegar þið opnið hjarta ykkar
fyrir föðurlandsást er ekkert pláss
eftir fyrir fordóma,“ sagði forsetinn.
„Endurnýjað þjóðarstolt mun lyfta
okkur upp og lækna sárin. Núna er
tíminn til að hafa í huga þau spak-
mæli sem hermenn okkar gleyma
aldrei. Hvort sem við erum svört,
brún eða hvít blæðir okkur öllum
sama rauða föðurlandsvinarblóðinu.“
Höfðaði til þeirra gleymdu
Forsetinn var umkringdur stjórn-
málamönnum á sviðinu. Honum á
vinstri hönd voru meðal annars fyrr-
verandi forsetarnir Barack Obama,
George W. Bush, Bill Clinton og
Jimmy Carter. Með Bill var andstæð-
ingur Trumps í kosningabaráttunni,
Hillary Clinton.
Þrátt fyrir félagsskapinn veigraði
Trump sér ekki við því að gagnrýna
stjórnmálamenningu Bandaríkjanna.
„Við munum færa völdin frá Wash-
ington og aftur til fólksins. Undan-
farið hefur Washington blómstrað en
almenningur ekki fengið sinn skerf,“
sagði Trump.
„Þetta er ykkar dagur, ykkar fögn-
uður. Þetta land, Bandaríkin, er ykkar
land. Hinir gleymdu menn og konur
þessa lands munu ekki lengur falla í
gleymsku. Nú hlusta allir á ykkur. Það
sem skiptir mestu máli er ekki hvaða
flokkur fer með völdin. Heldur hvort
almenningur fái að stjórna.“
Trump sagðist ætla að berjast til
síðasta blóðdropa fyrir þjóð sína.
Bandaríkin myndu sigra á ný og sigra
sem aldrei fyrr. „Við munum sameina
hinn vestræna heim gegn hryðju-
verkum öfgaíslamista. Við munum
uppræta þau af yfirborði jarðar,“
sagði hann enn fremur.
Stríðsöxin grafin
Undanfarin átta ár hafa Trump og fyr-
irrennari hans, Barack Obama, eldað
grátt silfur. Í gær mátti þó ekki sjá
annað en velvild þeirra hvor í annars
garð á þessum síðasta degi Obama í
embætti og fyrsta degi Trumps.
Á árum áður hefur Obama sagt
Trump stórkostlega vanhæfan
og Trump sagt slíkt hið sama um
Obama. Aukinheldur var Trump einn
helsti forsprakki þeirra sem kröfðust
þess að fá að sjá fæðingarvottorð
Obama vegna gruns um að hann sé
ekki fæddur í Bandaríkjunum.
„Þau hafa verið stórkostleg,“ sagði
Trump um Obama-hjónin. „Vel gert,
vel gert,“ mátti lesa af vörum Obama
þegar Trump fór með lokaorð ræðu
sinnar.
Ólíklegt afrek kórónað
Innsetningin markaði lokapunkt
ótrúlegs kosningasigurs Trumps
og upphaf valdatíðar hans. Vegna
umdeildra ummæla um ólöglega
innflytjendur, múslima, konur og
aðra mætti Trump miklu mótlæti í
kosningabaráttunni.
Varla væri hægt að telja þann fjölda
frétta og skoðanagreina þar sem
bandarískir stjórnmálagreinendur
lýstu því yfir að Trump ætti enga
möguleika á því að hreppa útnefn-
ingu Repúblikana til forsetaframboðs,
hvað þá verða forseti.
Í hvert sinn sem Trump talaði af sér
birtust slíkar greinar. Það gerðist strax
í upphafi kosningabaráttunnar þegar
hann lýsti ólöglegum, mexíkóskum
innflytjendum sem glæpamönnum.
Einnig gerðist það þegar hann sagði
dómara vanhæfan til að dæma í máli
sínu vegna þjóðernis, þegar hann tal-
aði um að banna múslimum að koma
til Bandaríkjanna og þegar upptaka
birtist þar sem heyra mátti forsetann
tala um að grípa í kynfæri kvenna.
Að morgni kosningadags mátti svo
sjá reiknilíkön fjölmiðla spá Clinton
sigri. New York Times sagði 85 pró-
sent líkur á sigri Clintons, Huffington
Post gaf Clinton 98 prósent líkur og
FiveThirtyEight sagði 72 prósent líkur
á sigri Clintons.
Allt kom þó fyrir ekki og vann
Trump afgerandi sigur. Vann hann
stuðning 306 kjörmanna samanborið
við 232 kjörmenn Clintons þrátt fyrir
að hafa fengið mun færri atkvæði en
Clinton á landsvísu.
Fjölmargir mótmæltu Trump á strætum Washington-borgar. Sumir báru gömul
skilti frá kosningabaráttu Baracks Obama. FréTTABlAðið/EPA
Nýi forsetinn og forsetafrúin Melania Trump voru einkar hress við innsetningarat-
höfnina í gær. Hér má sjá forsetahjónin kyssast. FréTTABlAðið/EPA
Donald Trump, hér stuttu frá því að verða valdamesti maður heims, reisir hnefann á loft og heilsar almenningi. Margmenni var
við innsetningarathöfnina. Þó mættu mun færri en árið 2008 þegar Barack Obama tók fyrst við embætti. FréTTABlAðið/EPA
Donald John Trump varð 45. forseti Banda-
ríkjanna í gær. Í innsetningarræðu sinni
hvatti hann til sameiningar undir banda-
ríska fánanum. Dagar innantómra orða
væru taldir og tími aðgerða runninn upp.
Forsetinn
Bandaríkin
í fyrsta sæti
setur
Þórgnýr Einar
Albertsson
thorgnyr@frettabladid.is
Yfirgefnar verk-
smiðJur sTanDa á víð
og Dreif eins og leg-
sTeinar um lanDið.
ÞeTTa banDaríska blóð-
bað hæTTir hér og nú.
2 1 . j a n ú a r 2 0 1 7 L a U G a r D a G U r24 h e L G i n ∙ F r É T T a B L a ð i ð
2
1
-0
1
-2
0
1
7
0
4
:4
1
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
0
3
-5
B
6
C
1
C
0
3
-5
A
3
0
1
C
0
3
-5
8
F
4
1
C
0
3
-5
7
B
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
9
6
s
_
2
0
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K