Fréttablaðið - 21.01.2017, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 21.01.2017, Blaðsíða 26
Þeir lögreglumenn- og konur sem nú eru í eldlínunni í rannsókn og leit að Birnu Brjánsdóttur hafa fengið mikið lof fyrir framgöngu sína. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur að undanförnu veitt óvenju mikla innsýn í störf sín og það sem blasir við eru vönduð vinnubrögð og styrk stjórn. Grímur Grímsson yfirlögregluþjónn fer þar fremstur í flokki og hefur raunar brotið blað í sögu lögreglunnar hvað varðar samskipti við fjölmiðla og almennings með því að ræða oft og yfirvegað við þá. Góðir samskiptahæfi- leikar hans eru líklegir til þess að hafa síðustu daga aukið traust í garð lögreglunnar. Traust sem áður var í nokkru lágmarki sökum deilna, breytinga og ef til vill vegna þess að í mörgum málum lögreglu er ekki unnt að veita almenn- ingi jafn miklar upplýsingar og nú án þess að brjóta trúnað eða skaða rannsókn. Liðsheild og samkennd Rannsóknin hefur verið í algjörum forgangi hjá embættinu og stór hluti starfsmanna hefur komið að henni með einum eða öðrum hætti, bæði lögreglumenn og aðrir starfsmenn emb- ættisins. Í framlínunni eru Sigríður Björk Guðjóns- dóttir lögreglustjóri, Grímur sem stýrir rann- sókninni, Ásgeir Þór Ásgeirsson og Ágúst Svansson aðalvarðstjóri sem stýra leitinni í samstarfi við björgunarsveitir. Þá eru mikil- vægir stjórnendur og starfsfólk tæknideildar lögreglu, kynferðisbrotadeildar og stjórnandi sérsveitarinnar sem er Guðmundur Ómar Þráinsson. Sérsveitin aðstoðar við handtökur hættulegra brotamanna og aðstoðaði við það að handtaka þá grunuðu um borð í Polar Nanooq í vikunni. Sérsveitin er mikill liðsstyrk- ur fyrir lögregluna þegar neyðarástand skapast. Í viðtali við Fréttablaðið á síðasta ári nefndi Guðmundur Ómar þau gildi og kosti sem hann telur mikilvægust fyrir störf sérsveitarinnar, liðsheild og samkennd. Snöggur og nákvæmur Þótt lögreglu þyki vandasamt að ræða um sig sjálfa og framgöngu stjórnenda á viðkvæmum tíma í rannsókn máls þá eru þeir fjölmörgu sem rætt var við um stjórnendur rannsóknarinnar einhuga um að það sé bæði víðtæk reynsla þeirra og samskiptahæfileikar sem nýtist nú. Ásgeir var í sérsveitinni og hefur starfað hjá lögreglunni í meira en aldarfjórðung. Hann er sagður ósérhlífinn og duglegur. „Hann er alveg ótrúlega snöggur og nákvæmur,“ segir einn félaga hans sem segir reynsluna vega þungt í þeim efnum. Góður maður Ágúst hefur starfað hjá lögreglunni í þrjátíu og fimm ár og hefur víðtæka reynslu af mismun- andi starfssviðum. Hann er sagður yfirvegaður og rólegur en með sterkan vilja. „Honum verð- ur ekki haggað en á sama tími er hann virkilega góður maður og hefur þennan innri styrk sem þykir eftirsóttur hjá mönnum og konum innan okkar raða,“ segir góður félagi hans. Færasti lögreglumaður landsins Karl Steinar Valsson starfar um þessar mundir sem tengifulltrúi hjá Europol og stendur utan við teymið og rannsóknina. Hann þekkir Grím frá frá því þeir voru saman í Lögregluskólanum. „Grímur er mjög vel gefinn maður og einn- ig vel menntaður og víðsýnn. Ég er búinn að þekkja Grím lengi en við sátum saman í Lög- regluskólanum og lukum námi þar 1989 ef ég man rétt. Í mínum huga er hann einn færasti lögreglumaður sem starfar í lögregluliðinu í dag. Hreinn, beinn, einlægur og heiðarlegur. Hann er með mjög fastmótaðar skoðanir en er á sama tíma diplómat og hlustar á öll sjónar- mið. Hann er faglegur í alla staði og í þessu starfi af heilum hug. Grímur er sá maður sem mér hefur ávallt þótt best og skemmtilegast að vinna með. Sterk fyrirmynd fyrir aðra lögreglu- menn og langt út fyrir það. Þegar hann talar þá hlustar maður og veit að maður getur treyst því sem hann segir,“ segir Karl Steinar. „Þetta mál reynir mjög á andlegan styrk,“ segir lögreglumaður hjá lögreglunni á höfuð- borgarsvæðinu. Hann segir einnig athyglina sem lögreglan fær fyrir góða framgöngu óþægi- lega. Því lögreglufólki sem starfar að rannsókn málsins sé ofarlega í huga samkennd og nær- gætni við fjölskylduna.  Lögreglumenn eigi ekki  að láta haggast þegar almenningur hefur sterka skoðun á störfum þeirra. Það þurfi að gilda bæði þegar þeir eru umdeildir og lofaðir. Gott að leita til hans Grímur og fleiri lögreglumenn hafa nánast haldið til á skrifstofum sínum síðan málið kom upp og unna sér ekki hvíldar. Þórður, sonur hans, segir fjölskylduna styðja við hann. „Þetta er þannig mál og hann hefur sett fullan kraft í það. Við látum hann vita af því að hann stendur sig vel. Ég hringdi í hann eftir að hann sat fyrir svörum í Kastljósinu og var stoltur af honum. Við í fjölskyldunni þekkjum vel hans innri mann. Þetta er hlið á honum sem við þekkjum vel. Okkur finnst gott að samfélagið hafi fengið að kynnast honum því starfið getur verið óvægið. Það hefur verið deilt á hann og það fannst mér óþægilegt. Ég tók því per- sónulega þó ég sé nú auðvitað ekki að dvelja við það,“ segir Þórður. Hann segist alltaf hafa getað leitað til föður síns. „Þegar það koma upp vandamál þá finnst mér gott að leita til hans. Hann hefur þá sett hlutina í samhengi fyrir mig, sýnt mér fram á skynsamlega niðurstöðu. Fyrst og fremst hefur hann kennt mér að láta ekki skapið hlaupa með mig. Hann er mjög góður faðir og góð fyrirmynd, sanngjarn með réttlætiskennd. Svo er hann líka frábær afi,“ bætir Þórður við. Spilar á tennisspaða Systir Gríms, Vigdís, gefur skemmtilega inn- sýn í persónuleika litla bróður síns. „Hann var æðislega skemmtilegur strákur og sífellt brosandi, kunni meðal annars þá list að spila glimrandi lög á tennisspaða, sem ég efast um að margir geti leikið eftir. Mikill gleðigjafi og húmoristi og eiginlega besti gæi í heimi, vildi alltaf öllum í húsinu vel og vill enn,“ segir Vig- dís. Dóttur Vigdísar, Þórdísi Filipsdóttur, þótti gott að leita til frænda síns. „Fyrir mér hefur hann alltaf verið sá sterkasti í fjölskyldunni, róað hluti niður ef eitthvað bjátaði á. Hann gat horft á hlutina skynsamlega ef eitthvað var óskýrt. Þegar ég var lítil stelpa fannst mér hann risastór og sterkur." Víðtæk reynsla Grímur lauk stúdentsprófi frá Menntaskól- anum við Sund árið 1982 og prófi frá Lög- regluskóla ríkisins 1989. Tíu árum síðar klár- aði hann diplómu í opinberri stjórnsýslu og stjórnun við Endurmenntun Háskóla Íslands. Hann varð viðskiptafræðingur, B.Sc., frá Háskólanum í Reykjavík 2005 og lauk í fram- haldi af því meistaraprófi í reikningshaldi og endurskoðun frá Háskólanum í Reykjavík 2007. Þá tók hann löggildingu í verðbréfa- miðlun, 2015.  Hann starfaði fyrstu árin sem lögreglumað- ur, varðstjóri og aðalvarðstjóri hjá lögreglu- stjóranum í Reykjavík. Flutti sig til Ísafjarðar í sex ár þar sem hann var lögreglumaður og varðstjóri. Þá varð hann lögreglufulltrúi og aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá efnahagsbrota- deild ríkislögreglustjóra eftir að hann lauk við- skiptafræðinámi sínu í Háskólanum í Reykja- vík og þar til hann lauk meistaraprófi. Þá flutti hann sig um tíma og starfaði sem viðskipta- fræðingur á endurskoðunarsviði Deloitte. Þar starfaði hann aðeins í eitt ár þar til hann fór aftur til lögreglu og þá í rannsóknardeild hjá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu. Frá hruni til ársins 2016 starfaði Grímur sem yfirlögregluþjónn hjá héraðssaksóknara. Það var í nóvember á síðasta ári að hann var settur sem yfirlögregluþjónn hjá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu. Grímur tók við stöðunni í nóvember. Unna sér ekki hvíldar Stór hluti starfsmanna hjá embætti lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur með einum eða öðrum hætti komið að rannsókn á hvarfi Birnu Brjánsdóttur. Frammi- staðan vekur með almenningi traust. Grímur Grímsson yfirlögregluþjónn fer fremstur í flokki og hefur vakið athygli almennings fyrir framgöngu sína í rannsókninni. NærmyNd Leitin að Birnu Brjánsdóttur Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjana@frettabladid.is Liðsheild og samkennd eru góðir kostir sérsveitarmanna að sögn Guðmundar Ómars Þráinssonar yfirmanns sér- sveitarinnar. Hann var æðislega skemmtilegur strákur og sífellt brosandi, kunni meðal annars þá list að spila glimrandi lög á tennisspaða, sem ég efast um að margir geti leikið eftir. Vigdís Grímsdóttir Teymið SiGríður Björk Setti rannsóknina í algjöran forgang. Stór hluti starfs- manna embættisins  hefur komið  að henni. ÁGúSt Hefur starfað hjá lögreglunni í 35 ár, þykir góður maður með mikinn andlegan styrk. Grímur menntaður og víðsýnn. Er  sagður  traustur og   heiðarlegur af bæði fjölskyldu  og félögum. ÁSGeir Hefur starfað hjá lögreglunni í meira en aldarfjórðung. Var áður í sérsveit ríkislögreglu- stjóra, er sagður snöggur og nákvæmur. 2 1 . j a n ú a r 2 0 1 7 L a U G a r D a G U r26 h e L G i n ∙ F r É T T a B L a ð i ð 2 1 -0 1 -2 0 1 7 0 4 :4 1 F B 0 9 6 s _ P 0 7 4 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 7 1 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C 0 3 -5 6 7 C 1 C 0 3 -5 5 4 0 1 C 0 3 -5 4 0 4 1 C 0 3 -5 2 C 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 0 9 6 s _ 2 0 _ 1 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.