Fréttablaðið - 21.01.2017, Blaðsíða 26
Þeir lögreglumenn- og konur sem nú eru í eldlínunni í rannsókn og leit að Birnu Brjánsdóttur hafa fengið mikið lof fyrir framgöngu sína. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur að undanförnu veitt óvenju
mikla innsýn í störf sín og það sem blasir við
eru vönduð vinnubrögð og styrk stjórn.
Grímur Grímsson yfirlögregluþjónn fer þar
fremstur í flokki og hefur raunar brotið blað
í sögu lögreglunnar hvað varðar samskipti
við fjölmiðla og almennings með því að ræða
oft og yfirvegað við þá. Góðir samskiptahæfi-
leikar hans eru líklegir til þess að hafa síðustu
daga aukið traust í garð lögreglunnar. Traust
sem áður var í nokkru lágmarki sökum deilna,
breytinga og ef til vill vegna þess að í mörgum
málum lögreglu er ekki unnt að veita almenn-
ingi jafn miklar upplýsingar og nú án þess að
brjóta trúnað eða skaða rannsókn.
Liðsheild og samkennd
Rannsóknin hefur verið í algjörum forgangi
hjá embættinu og stór hluti starfsmanna hefur
komið að henni með einum eða öðrum hætti,
bæði lögreglumenn og aðrir starfsmenn emb-
ættisins.
Í framlínunni eru Sigríður Björk Guðjóns-
dóttir lögreglustjóri, Grímur sem stýrir rann-
sókninni, Ásgeir Þór Ásgeirsson og Ágúst
Svansson aðalvarðstjóri sem stýra leitinni í
samstarfi við björgunarsveitir. Þá eru mikil-
vægir stjórnendur og starfsfólk tæknideildar
lögreglu, kynferðisbrotadeildar og stjórnandi
sérsveitarinnar sem er Guðmundur Ómar
Þráinsson. Sérsveitin aðstoðar við handtökur
hættulegra brotamanna og aðstoðaði við
það að handtaka þá grunuðu um borð í Polar
Nanooq í vikunni. Sérsveitin er mikill liðsstyrk-
ur fyrir lögregluna þegar neyðarástand skapast.
Í viðtali við Fréttablaðið á síðasta ári nefndi
Guðmundur Ómar þau gildi og kosti sem hann
telur mikilvægust fyrir störf sérsveitarinnar,
liðsheild og samkennd.
Snöggur og nákvæmur
Þótt lögreglu þyki vandasamt að ræða um sig
sjálfa og framgöngu stjórnenda á viðkvæmum
tíma í rannsókn máls þá eru þeir fjölmörgu sem
rætt var við um stjórnendur rannsóknarinnar
einhuga um að það sé bæði víðtæk reynsla
þeirra og samskiptahæfileikar sem nýtist nú.
Ásgeir var í sérsveitinni og hefur starfað hjá
lögreglunni í meira en aldarfjórðung. Hann er
sagður ósérhlífinn og duglegur. „Hann er alveg
ótrúlega snöggur og nákvæmur,“ segir einn
félaga hans sem segir reynsluna vega þungt í
þeim efnum.
Góður maður
Ágúst hefur starfað hjá lögreglunni í þrjátíu og
fimm ár og hefur víðtæka reynslu af mismun-
andi starfssviðum. Hann er sagður yfirvegaður
og rólegur en með sterkan vilja. „Honum verð-
ur ekki haggað en á sama tími er hann virkilega
góður maður og hefur þennan innri styrk sem
þykir eftirsóttur hjá mönnum og konum innan
okkar raða,“ segir góður félagi hans.
Færasti lögreglumaður landsins
Karl Steinar Valsson starfar um þessar mundir
sem tengifulltrúi hjá Europol og stendur utan
við teymið og rannsóknina. Hann þekkir Grím
frá frá því þeir voru saman í Lögregluskólanum.
„Grímur er mjög vel gefinn maður og einn-
ig vel menntaður og víðsýnn. Ég er búinn að
þekkja Grím lengi en við sátum saman í Lög-
regluskólanum og lukum námi þar 1989 ef ég
man rétt. Í mínum huga er hann einn færasti
lögreglumaður sem starfar í lögregluliðinu í
dag. Hreinn, beinn, einlægur og heiðarlegur.
Hann er með mjög fastmótaðar skoðanir en er
á sama tíma diplómat og hlustar á öll sjónar-
mið. Hann er faglegur í alla staði og í þessu
starfi af heilum hug. Grímur er sá maður sem
mér hefur ávallt þótt best og skemmtilegast að
vinna með. Sterk fyrirmynd fyrir aðra lögreglu-
menn og langt út fyrir það. Þegar hann talar þá
hlustar maður og veit að maður getur treyst því
sem hann segir,“ segir Karl Steinar.
„Þetta mál reynir mjög á andlegan styrk,“
segir lögreglumaður hjá lögreglunni á höfuð-
borgarsvæðinu. Hann segir einnig athyglina
sem lögreglan fær fyrir góða framgöngu óþægi-
lega. Því lögreglufólki sem starfar að rannsókn
málsins sé ofarlega í huga samkennd og nær-
gætni við fjölskylduna. Lögreglumenn eigi
ekki að láta haggast þegar almenningur hefur
sterka skoðun á störfum þeirra. Það þurfi að
gilda bæði þegar þeir eru umdeildir og lofaðir.
Gott að leita til hans
Grímur og fleiri lögreglumenn hafa nánast
haldið til á skrifstofum sínum síðan málið
kom upp og unna sér ekki hvíldar. Þórður,
sonur hans, segir fjölskylduna styðja við hann.
„Þetta er þannig mál og hann hefur sett fullan
kraft í það. Við látum hann vita af því að hann
stendur sig vel. Ég hringdi í hann eftir að hann
sat fyrir svörum í Kastljósinu og var stoltur af
honum. Við í fjölskyldunni þekkjum vel hans
innri mann. Þetta er hlið á honum sem við
þekkjum vel. Okkur finnst gott að samfélagið
hafi fengið að kynnast honum því starfið getur
verið óvægið. Það hefur verið deilt á hann og
það fannst mér óþægilegt. Ég tók því per-
sónulega þó ég sé nú auðvitað ekki að
dvelja við það,“ segir Þórður.
Hann segist alltaf hafa getað leitað
til föður síns. „Þegar það koma upp
vandamál þá finnst mér gott að leita
til hans. Hann hefur þá sett hlutina í
samhengi fyrir mig, sýnt mér fram á
skynsamlega niðurstöðu. Fyrst og
fremst hefur hann kennt mér að
láta ekki skapið hlaupa með mig.
Hann er mjög góður faðir og
góð fyrirmynd, sanngjarn með
réttlætiskennd. Svo er hann líka
frábær afi,“ bætir Þórður við.
Spilar á tennisspaða
Systir Gríms, Vigdís, gefur skemmtilega inn-
sýn í persónuleika litla bróður síns. „Hann
var æðislega skemmtilegur strákur og sífellt
brosandi, kunni meðal annars þá list að spila
glimrandi lög á tennisspaða, sem ég efast um
að margir geti leikið eftir. Mikill gleðigjafi og
húmoristi og eiginlega besti gæi í heimi, vildi
alltaf öllum í húsinu vel og vill enn,“ segir Vig-
dís.
Dóttur Vigdísar, Þórdísi Filipsdóttur, þótti
gott að leita til frænda síns. „Fyrir mér hefur
hann alltaf verið sá sterkasti í fjölskyldunni,
róað hluti niður ef eitthvað bjátaði á. Hann
gat horft á hlutina skynsamlega ef eitthvað var
óskýrt. Þegar ég var lítil stelpa fannst mér hann
risastór og sterkur."
Víðtæk reynsla
Grímur lauk stúdentsprófi frá Menntaskól-
anum við Sund árið 1982 og prófi frá Lög-
regluskóla ríkisins 1989. Tíu árum síðar klár-
aði hann diplómu í opinberri stjórnsýslu og
stjórnun við Endurmenntun Háskóla Íslands.
Hann varð viðskiptafræðingur, B.Sc., frá
Háskólanum í Reykjavík 2005 og lauk í fram-
haldi af því meistaraprófi í reikningshaldi og
endurskoðun frá Háskólanum í Reykjavík
2007. Þá tók hann löggildingu í verðbréfa-
miðlun, 2015.
Hann starfaði fyrstu árin sem lögreglumað-
ur, varðstjóri og aðalvarðstjóri hjá lögreglu-
stjóranum í Reykjavík. Flutti sig til Ísafjarðar
í sex ár þar sem hann var lögreglumaður og
varðstjóri. Þá varð hann lögreglufulltrúi og
aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá efnahagsbrota-
deild ríkislögreglustjóra eftir að hann lauk við-
skiptafræðinámi sínu í Háskólanum í Reykja-
vík og þar til hann lauk meistaraprófi. Þá flutti
hann sig um tíma og starfaði sem viðskipta-
fræðingur á endurskoðunarsviði Deloitte. Þar
starfaði hann aðeins í eitt ár þar til hann fór
aftur til lögreglu og þá í rannsóknardeild hjá
lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu.
Frá hruni til ársins 2016 starfaði Grímur sem
yfirlögregluþjónn hjá héraðssaksóknara. Það
var í nóvember á síðasta ári að hann var settur
sem yfirlögregluþjónn hjá lögreglustjóranum á
höfuðborgarsvæðinu. Grímur tók við stöðunni
í nóvember.
Unna sér ekki hvíldar
Stór hluti starfsmanna hjá embætti lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur með
einum eða öðrum hætti komið að rannsókn á hvarfi Birnu Brjánsdóttur. Frammi-
staðan vekur með almenningi traust. Grímur Grímsson yfirlögregluþjónn fer fremstur
í flokki og hefur vakið athygli almennings fyrir framgöngu sína í rannsókninni.
NærmyNd Leitin að Birnu Brjánsdóttur
Kristjana Björg
Guðbrandsdóttir
kristjana@frettabladid.is
Liðsheild og samkennd eru góðir
kostir sérsveitarmanna að sögn
Guðmundar Ómars
Þráinssonar
yfirmanns sér-
sveitarinnar.
Hann var æðislega skemmtilegur
strákur og sífellt brosandi, kunni
meðal annars þá list að spila
glimrandi lög á tennisspaða,
sem ég efast um að
margir geti leikið
eftir.
Vigdís Grímsdóttir
Teymið
SiGríður Björk
Setti rannsóknina í algjöran
forgang. Stór hluti starfs-
manna embættisins hefur
komið að henni.
ÁGúSt
Hefur starfað hjá lögreglunni í
35 ár, þykir góður maður með
mikinn andlegan styrk.
Grímur
menntaður og víðsýnn. Er
sagður traustur og
heiðarlegur af
bæði fjölskyldu
og félögum.
ÁSGeir
Hefur starfað hjá lögreglunni
í meira en aldarfjórðung. Var
áður í sérsveit ríkislögreglu-
stjóra, er sagður snöggur og
nákvæmur.
2 1 . j a n ú a r 2 0 1 7 L a U G a r D a G U r26 h e L G i n ∙ F r É T T a B L a ð i ð
2
1
-0
1
-2
0
1
7
0
4
:4
1
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
0
3
-5
6
7
C
1
C
0
3
-5
5
4
0
1
C
0
3
-5
4
0
4
1
C
0
3
-5
2
C
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
9
6
s
_
2
0
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K