Fréttablaðið - 21.01.2017, Blaðsíða 16
Um helgina
Domino’s-deild kvenna
L 15.30 Keflavík - Grindavík Keflav.
L 15.30 Njarðvík - Snæfell Njarðvík
L 16.30 Skallagr. - Stjarnan Borgarn.
L 17.00 Valur - Haukar Valshöll
Olísdeild kvenna
L 13.30 Grótta - Fram Hertz-höllin
L 13.30 ÍBV - Stjarnan Vestmannae.
S 19.30 Fylkir - Selfoss Fylkishöll
Laugardagur
08.30 Abú Dabí HSBC Golfstöðin
12.20 Liverpool - Swansea Sport
12.25 QPR - Fulham Sport 2
14.25 Bremen - Dortmund Sport 2
14.50 Stoke - Man Utd Sport
15.10 Real Madrid - Malaga Sport 3
15.20 Keflavík - Grindavík Sport 4
17.20 Man. City - Tottenham Sport
20.00 CB Challenge Golfstöðin
Sunnudagur
08.30 Abú Dabí HSBC Golfstöðin
11.50 S’ton - Leicester Sport
14.05 Arsenal - Burnley Sport
16.20 Chelsea - Hull Sport
19.30 NFL: Upphitun Sport
19.40 Eibar - Barcelona Sport2
20.00 NFL: Falcons - Packers Sport
20.00 CB Challenge Golfstöðin
23.35 NFL: Patriots - Steelers Sport
2 1 . j a n ú a r 2 0 1 7 L a U G a r D a G U r16 s p o r t ∙ F r É t t a B L a ð i ð
C - r i ð i L L
Síle - Sádí-Arabía 25-26
Þýskaland - Króatía 27-21
Hv.-Rússland - Ungverjal. 27-25
Lokastaðan: Þýskaland 10, Króatía 8,
Hvíta-Rússland 4, Ungverjaland 4, Síle 2,
Sádí-Arabía 2.
D - r i ð i L L
Barein - Argentína 17-26
Svíþjóð - Egyptaland 33-26
Katar - Danmörk 29-32
Lokastaðan: Danmörk 10, Svíþjóð 8,
Egyptaland 6, Katar 4, Argentína 2, Barein 0.
HM 2017
HM-dagskráin
16-liða úrslit
L 15.00 Noregur - Maked. Albertv.
L 17.00 Frakkland - Ísland Lille
L 19.45 Rússland - Slóvenía París
L 19.45 Brasilía - Spánn Montp.
S 15.00 Hv.-Rússland - Svíþjóð Lille
S 15.00 Ungver. - Danmörk Albertv.
S 17.00 Þýskaland - Katar París
S 19.45 Króatía - Egyptal. Montp.
Þjálfararnir
Íslensku þjálfararnir á HM
Guðmundur Guðmundsson
Fullt hús
Danir unnu Katara
eftir góðan enda-
sprett og kláruðu því
D-riðilinn með fullu
húsi stiga.
Kristján Andrésson
Stórsigur hjá Svíum
Strákarnir hans
Kristjáns áttu ekki í
vandræðum með að
leggja Egypta. Þeirra
bíður leikur gegn Hvít-
Rússum á morgun.
Dagur Sigurðsson
Sigur í úrslitaleik
Lærisveinar Dags
unnu Króata í úrslita-
leik um toppsætið í
C-riðlinum og mæta
Katar í 16-liða úrslit-
unum á morgun.
Fullt hús hjá strákunum hans Dags
Vel gert, strákar Dagur Sigurðsson stýrði Þjóðverjum til sigurs á Króötum á HM í Frakklandi í gær. Evrópumeistararnir kláruðu því C-riðilinn með
fullu húsi stiga og mæta Katar í 16-liða úrslitunum í París á morgun. Þýskaland mætti Katar í 8-liða úrslitum á HM í Katar fyrir tveimur árum og
þurfti þá að sætta sig við tap, 26-24. Dagur og félagar eiga því harma að hefna gegn Köturum sem enduðu í 4. sæti D-riðils. FRéTTABLAðið/GETTy
Þór Þorl. - Haukar 94-84
Tobin Carberry 33 - Sherrod Wright 34.
Skallagr. - Þór Ak. 89-100
Flenard Whitfield 35 - Darrel Lewis 35.
Dominos-deild karla
Henry B. Gunnarsson
henry@frettabladid.is
HanDBoLti Það var létt yfir lands-
liðsfyrirliðanum Guðjóni Val
Sigurðssyni er hann var tiltölulega
nýkominn til Lille frá Metz þar sem
landsliðið spilaði í riðlakeppni HM.
Framundan er úrslitaleikur gegn
sjálfum Frökkum á þeirra heimavelli
og fyrir framan fleiri áhorfendur en
nokkurn tímann hafa mætt á leik á
HM.
Það er nefnilega búið að breyta
knattspyrnuvellinum glæsilega
Stade Pierre Mauroy í 28 þúsund
manna handboltavöll. Völlurinn
tekur 50 þúsund þegar spiluð er
knattspyrna þarna. Undirritaður
kom í höllina í gær og getur stað-
fest að umgjörðin er hrikalega flott.
Þetta verður svo sannarlega ekki
eins og bara einhver leikur. Mest
hafa 25 þúsund manns mætt á leik
á HM en það met fellur væntanlega
í kvöld.
„Það er óhætt að segja að þetta
sé stærsta sviðið í sögu HM. Við
höfum nokkrir tekið þátt í álíka
stórum viðburðum. Þetta er æðis-
legt og frábært. Flott svið til að fá
að sýna sig og sanna,“ segir Guðjón
Valur en hann spilaði meðal annars
handbolta á Parken er hann lék með
ofurliði AG frá Kaupmannahöfn á
sínum tíma.
„Þetta er heldur betur áskorun. Það
er væntanlega ekki hægt að mæta
sterkara liði. Maður verður betri á
því að spila við þá bestu. Það er bara
tilhlökkun fyrir þessu verkefni.“
Það finnast eflaust ekki margir sem
hafa trú á því að Ísland vinni þennan
leik en strákarnir trúa því að þeir geti
velgt Frökkunum undir uggum.
„Að sjálfsögðu eigum við mögu-
leika. Lið eiga alltaf möguleika en
ef maður á að vera hreinskilinn þá
myndum við kannski vinna einn
af 10 eða 20 leikjum gegn þeim en
maður hefur margoft hrifist af litla
liðinu í leikjum og það hafa verið
gerðar margar Hollywood-myndir
um lið sem hafa náð óvæntum
árangri. Það er mikilvægast að við
höfum trú á þessu. Þetta er vissu-
lega erfitt og risavaxið verkefni en
lykillinn hjá okkur er að hafa trú á
okkur,“ sagði fyrirliðinn ákveðinn
og tíndi til marga góða hluti í leik
íslenska liðsins.
„Ef sóknarleikurinn hjá okkur
verður þokkalegur og við náum að
stöðva hraðaupphlaupin þeirra þá
er allt hægt. Ég trúi því og lykilatriði
er að við trúum því allir.“
Guðjón Valur tók þátt í leiknum
ótrúlega gegn Frökkum á HM 2007
er enginn átti von á öðru en íslensku
tapi. Á endanum varð íslenska liðið
að passa sig á því að vinna ekki of
stórt. Þar má sækja innblástur.
„Við erum ekki enn farnir að
horfa á þann leik en það er gott
dæmi um hvar okkur tókst að koma
á óvart. Við erum kannski fáir eftir
sem spiluðum þar en menn fá inn-
blástur við að sjá og rifja slíka leiki
upp. Þá var búið að afskrifa okkur og
HSÍ örugglega búið að bóka okkur
heim,“ segir Guðjón Valur en heima-
menn ætlast til þess að þeirra menn
tæti íslenska liðið í sig.
„Það er jákvætt fyrir okkur. Þeir
mega vera með jákvæðan hroka
því þeir hafa efni á því. Þeir hafa
unnið fyrir því en það er ekki þar
með sagt að við ætlum að leggjast
niður og gefast upp. Við munum
mæta með baráttuna að vopni. Það
má segja ýmislegt um okkar leik
en að við gefumst upp skal aldrei
verða sagt um íslenska landsliðið.“
Allt undir á stærsta sviðinu
Það verður væntanlega sett áhorfendamet þegar Ísland spilar við Frakkland í 16-liða úrslitum á HM. Leikur-
inn fer fram á knattspyrnuleikvangi sem er búið að breyta í handboltahöll. Von er á um 28.000 manns.
Landsliðsfyrirliðinn Guðjón Valur Sigurðsson segir að Íslendingar þurfi að trúa á
sigur gegn heimsmeisturum Frakka. FRéTTABLAðið/EPA
sport
2
1
-0
1
-2
0
1
7
0
4
:4
1
F
B
0
9
6
s
_
P
0
9
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
8
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
0
3
-1
1
5
C
1
C
0
3
-1
0
2
0
1
C
0
3
-0
E
E
4
1
C
0
3
-0
D
A
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
9
6
s
_
2
0
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K