Fréttablaðið - 21.01.2017, Qupperneq 12
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir forStjóri: Sævar Freyr Þráinsson Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri.
Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000,
ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson
magnus@frettabladid.is lífið: Guðný Hrönn Antonsdóttir gudnyhronn@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@365.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Gunnar
Kristín
Þorsteinsdóttir
kristin@frettabladid.is
Mín skoðun Logi Bergmann
Móðir Birnu,
Sigurlaug
Hreinsdóttir,
lét hafa eftir
sér að lög-
reglan og
björgunar-
sveitirnar
væru með
hjartað í
leitinni að
dóttur sinni.
Er hægt að fá
fallegri eða
betri með-
mæli?"
KOMDU
Í
– dásamleg deild samfélagsins
OPIÐ UM HELGAR FRÁ KL. 11 – 17
Fá mál hafa rist jafn djúpt í sál okkar litlu þjóðar og hvarf Birnu Brjánsdóttur. Ung, góðleg og efnileg kona með allt lífið fram undan hverfur sporlaust, og ýmislegt bendir til þess að hvarf hennar hafi borið að með saknæmum hætti.
Allir, ungir sem aldnir, finna til samkenndar vegna
málsins. Þeir sem yngri eru hugsa til þess að heimur-
inn sé ekki jafn saklaus og hann á það til að virðast í
æskuljómanum. Eldri kynslóðir hugsa til eigin barna
eða ættingja sem svo auðveldlega hefðu getað verið í
sporum Birnu.
Hún var einfaldlega á röngum stað á röngum tíma.
Hvarf Birnu hefur hrist okkur saman. Samkennd
þjóðarinnar hefur verið nánast áþreifanleg, og gott
af því að vita að við stöndum saman sem einn maður
þegar bjátar á.
Þjóðin er stolt af lögreglu og björgunarsveitum.
Framganga lögreglu hefur verið aðdáunarverð undir
styrkri stjórn lögreglustjórans Sigríðar Bjarkar
Guðjónsdóttur og Gríms Grímssonar, yfirmanns
rannsóknarinnar. Fumlaus og vel máli farinn hefur
hann staðið upplýsingavaktina gagnvart þjóðinni í
gegnum fjölmiðla dag og nótt. Nærgætnin við fjöl-
skyldu og vini Birnu hefur skinið í gegn.
Móðir Birnu, Sigurlaug Hreinsdóttir, lét hafa eftir
sér að lögreglan og björgunarsveitirnar væru með
hjartað í leitinni að dóttur sinni. Er hægt að fá fallegri
eða betri meðmæli?
Hlutverk fjölmiðla er að upplýsa almenning. Sú
skylda er tekin alvarlega um leið og reynt er að sýna
nærgætni og ábyrgð. Oft svíður undan staðreynd-
unum sem greint er frá. Það er óhjákvæmilegt. En
leiðarljósið er að gæta sannleikans og fara einungis
fram með sannar og áreiðanlegar fréttir. Í máli eins
og þessu reynir á samspil við lögreglu því ekki má
spilla rannsóknarvinnunni. Það er vandratað einstigi
í hraðri atburðarás – enn frekar með tilkomu sam-
félagsmiðla, sem flest fólk fylgist með.
Vonandi hefur okkur tekist bærilega til – við
höfum að minnsta kosti vandað okkur eftir megni.
Margir hafa komið að atburðarásinni síðustu daga.
Hver á sinn hátt.
Lögreglan hefur stýrt rannsókninni af festu, björg-
unarsveitirnar bregðast aldrei, almenningur hefur
staðið vaktina, meðal annars á samfélagsmiðlum,
með þeim hætti að umhyggja og fallegar hugsanir
hafa skinið í gegn. Ekki er svo hægt að fyllast öðru
en aðdáun þegar fylgst er með fjölskyldu og vinum
Birnu sem hafa staðið sig eins og hetjur allt frá því
að móðir hennar steig fram og kallaði eftir aukinni
aðstoð vegna hvarfsins.
Tilfinningin er sú að allir hafi gert sitt besta.
Allt þar til upplýst verður hvað varð um Birnu
Brjánsdóttur bíðum við frétta í ofvæni og höldum í
vonina í lengstu lög.
Samstaða
þjóðar
Sameinuð í sorg
Mér finnst eins og ég hafi lært eitthvað um íslensku þjóðina síðustu daga. Þjóðin hefur í sameiningu upplifað
kvíða, ótta, vantrú, reiði en fyrst og fremst
sorg. Þannig hefur hún sameinast í viðbrögð-
um sínum við hvarfi Birnu Brjánsdóttur.
Sjaldan höfum við fengið að sjá jafn mikla
samkennd og náungakærleik. Á þessum erfiðu
dögum er huggun í að sjá hve mikla hluttekn-
ingu fólk sýnir. Ég veit um marga sem hafa ekki
fest svefn af áhyggjum. Aðrir hafa farið út að
leita og reynt að leggja sitt af mörkum.
Öll á sama stað
Manni finnst eins og öll þjóðin hafi verið
á sama stað. Andvaka af áhyggjum af ungri
stúlku, vonandi það besta en óttast það versta.
Vaknandi á hverjum morgni með von um
góðar fréttir sem ekki hafa komið.
Hvarf Birnu hefur kallað fram önnur og
meiri viðbrögð en ég man eftir. Meiri tilfinn-
ingu og umhyggju en við eigum að venjast.
Ótrúlega margir hafa deilt tilfinningum sínum
á einlægari hátt en við sjáum dags daglega.
En þessar miklu tilfinningar hafa líka aðrar
hliðar, sem eru ekki jafn fallegar. Það ætti ekki
að koma á óvart. Það er aldrei hægt að gera ráð
fyrir að allir bregðist við á sama hátt.
Reiðin hefur brotist út og fundið sér farveg.
Sumir beindu henni að lögreglunni, aðrir að
fjölmiðlum og nú síðast að Grænlendingum.
Reiði er eðlilegur hluti áfalls og ætti ekki að
koma óvart. Vissulega er tilefni til að reiðast
yfir fólskuverki sem þessu. En við verðum að
reyna að halda aftur af okkur.
Að sama skapi er ekki hægt að búast
við því að allt sem birtist á netinu
sé okkur til sóma. Margt af því sem
þangað hefur ratað átti ekkert erindi
við neinn. En þar, og miklu víðar, á það
við að yfirleitt er betra að hugsa aðeins
áður en maður lætur eitthvað frá sér.
Það er tilgangslaust að velta sér upp úr
því en sjálfsagt að reyna að læra af því.
Erfiðir tímar
Við höfum líka átt erfið samtöl við
börnin okkar. Reynt að útskýra fyrir
þeim hvað sé að gerast og svarað
spurningum sem við eigum ekkert
sérstaklega góð svör við. Ég hef faðmað
þau fastar en venjulega þessa síðustu
daga.
Við höfum sameinast í hugsunum
okkar um Birnu. Um fjölskyldu hennar
og vini. Okkur hefur liðið eins og við
þekktum öll þessa tvítugu, glaðlegu
stelpu sem fór út að skemmta sér með
vinkonum á föstudagskvöldi. En það
er ekki svo. Þó að við munum aldr-
ei gleyma henni og þessum dögum,
þar sem við höfum beðið milli vonar
og ótta, þá munum við ekki upplifa
lamandi sorg fjölskyldu hennar og vina.
Það er engin leið fyrir okkur hin að gera
okkur í hugarlund hvernig þeim líður.
Megi fjölskylda og vinir Birnu finna
styrk á þessum erfiða tíma.
En þar, og
miklu víðar,
á það við að
yfirleitt er
betra að hugsa
aðeins áður en
maður lætur
eitthvað frá
sér.
2 1 . j a n ú a r 2 0 1 7 L a U G a r D a G U r12 s k o ð U n ∙ F r É T T a B L a ð i ð
SKOÐUN
2
1
-0
1
-2
0
1
7
0
4
:4
1
F
B
0
9
6
s
_
P
0
9
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
8
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
0
3
-3
8
D
C
1
C
0
3
-3
7
A
0
1
C
0
3
-3
6
6
4
1
C
0
3
-3
5
2
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
9
6
s
_
2
0
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K