Fréttablaðið - 21.01.2017, Qupperneq 28
Litríkar myndir úr íslenskum
barnabókum sem gefnar voru út
á síðasta ári prýða nú neðri hæð
Gerðubergs í Breiðholti þar sem
sýningin Þetta vilja börnin sjá!
verður opnuð á morgun. Þetta er
fimmtánda árið sem sýningin er
haldin en í ár sýna 24 myndskreyt-
ar verk sín úr 33 barnabókum.
Inga María Leifsdóttir, verkefna-
stjóri viðburða í Gerðubergi, segir
þarfir barna sérstaklega hafðar í
huga við uppsetningu sýningarinn-
ar enda ljóst að viðfangsefni hennar
sé ætlað börnum frá byrjun. „Mynd-
ir sýnenda eru eins fjölbreyttar og
þær eru margar og getur að líta
verk bæði gamalreyndra teiknara
sem fyrir löngu eru vel þekktir í
heimi íslenskra barnabókmennta,
sem og glæný verk myndhöfunda
sem nú sýna í fyrsta sinn. Myndirn-
ar eru hengdar frekar lágt á vegg-
ina og hver bók hangir í bandi við
myndirnar svo auðvelt er fyrir litlar
hendur að skoða myndir og bækur
upp á eigin spýtur.“
Fjölbreytt úrval
Úrvalið af myndskreytingum á
sýningunni er mikið að sögn Ingu
Maríu enda ólíkur hópur sem
kemur að sýningunni. Bæði er stíll
viðkomandi myndlistarmanna og
viðfangsefni þeirra margbreytilegt,
sumt er litríkt og annað lágstemmt,
sumt er um kónga og prinsessur og
annað um dýr, fantasíu eða feimna
krakka. „Hér getur til dæmis að
líta myndir úr nýjustu Kuggs-bók-
unum hennar Sigrúnar Eldjárn,
sem í áratugi hafa verið fastagest-
ir í bókahillum íslenskra barna. Lóa
Hlín Hjálmtýsdóttir, sem skemmtir
landsmönnum reglulega með snjöll-
um teikningum sínum, hefur verið
að teikna Snuðru og Tuðru eftir Ið-
unni Steinsdóttur upp á nýtt síðustu
ár og á sýningunni eru myndir úr
tveimur bókum um þær. Við sýnum
líka myndir úr tveimur bókum
sem eru tilnefndar til Íslensku
bókmenntaverðlaunanna í flokki
barna- og ungmennabóka, Doddi:
bók sannleikans, sem er mynd-
skreytt af Elínu Elísabetu Einars-
dóttur og Íslandsbók barnanna, sem
er myndskreytt af Lindu Ólafsdótt-
ur, sem hlaut Barnabókaverðlaunin
í fyrra. En svo erum við líka með
myndir eftir myndlistarmenn sem
eru að myndskreyta sína fyrstu bók
og hafa aldrei sýnt hjá okkur áður
svo þarna má sjá allan skalann í ís-
lenskum, myndskreyttum barna-
bókum, bæði kunnugleg andlit og
glæný.“
Mikill Metnaður
Myndskreyttar íslenskar barna-
bækur eru ótrúlega fjölbreyttar að
sögn Ingu Maríu og mikill metnaður
lagður í gerð þeirra. „Það er ómet-
anlegt fyrir íslensk börn og íslenska
menningu að út séu gefnar vandað-
ar bækur sem eru myndskreyttar
af íslenskum myndlistarmönnum.
Þær gefa innsýn í heim sem talar til
barna hérlendis og er þeim kunnug-
legur. Í bókunum er oft verið að vísa
í íslensk dýr og jurtir, siði og menn-
ingu, og þó viðfangsefnið geti alveg
verið alþjóðlegt eða framúrstefnu-
legt leynast þar oftar en ekki stef
og vísanir sem endurspegla reynslu-
heim íslenskra barna.“
Sýningin verður opnuð kl. 14
á morgun en er að öðru leyti opin
gestum og gangandi á opnunartíma
Gerðubergs, virka daga frá kl. 8-18
og um helgar frá kl. 13-16. Henni
lýkur 5. mars og heldur þá í ferðalag
um landið. Nánari upplýsingar um
sýninguna og sýnendur má finna á
www.borgarbokasafn.is.
Myndir sýnenda
eru eins fjöl-
breyttar og þær eru
margar.
Starri Freyr
Jónsson
starri@365.is
„Það er ómetanlegt fyrir íslensk börn og íslenska menningu að út séu gefnar vandaðar bækur sem eru myndskreyttar af
íslenskum myndlistarmönnum,“ segir Inga María Leifsdóttir, verkefnastjóri viðburða Borgarbókasafns. MYNDIR/ERNIR
Stíll og viðfangsefni myndskreytanna er margbreytilegt eins og sjá má.
Sterkir litir einkenna margar mynd-
irnar á sýningunni.
ÓMetanlegar
Myndskreytingar
Myndir í íslenskum barnabókum gefa innsýn í heim sem talar til barna
hérlendis og er þeim kunnuglegur. Á morgun hefst sýning í Gerðubergi
í Breiðholti þar sem 24 myndskreytar sýna verk úr 33 barnabókum.
ÚTSALA
Út Janúar
HAMLAR KVÍÐI ÞÉR Í DAGLEGA LÍFINU?
Ef svarið er „já“ gæti þriggja kvölda fræðsla
Geðhjálpar um kvíða hjálpað þér að byrja að
takast á við vandann.
Fræðslan skiptist í þrennt:
• Eðli, ástæður og afleiðingar kvíða
Hugræn atferðlismeðferð
Hjálplegt lesefni
• Hvað heldur vítahring kvíða gangandi?
• Hvaða leiðir eru færar til að leysa upp
vítahringinn?
Fræðslan fer fram í húsakynnum Geðhjálpar við
Borgartún 30, 2. hæð, 8.,15. og 22. febrúar kl. 19.30 til 21.30.
Skráning fer fram í gegnum
verkefnisstjori@gedhjalp.is fyrir 1. febrúar.
2 1 . j a n ú a r 2 0 1 7 L a U G a r D a G U r2 F ó L k ∙ k y n n i n G a r b L a ð ∙ X X X X X X X XF ó L k ∙ k y n i n G a r b L a ð ∙ h e L G i n
2
1
-0
1
-2
0
1
7
0
4
:4
1
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
6
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
0
3
-4
2
B
C
1
C
0
3
-4
1
8
0
1
C
0
3
-4
0
4
4
1
C
0
3
-3
F
0
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
9
6
s
_
2
0
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K