Morgunblaðið - 29.06.2016, Side 15

Morgunblaðið - 29.06.2016, Side 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JÚNÍ 2016 H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 1 6 -2 0 4 4 ERT ÞÚ Í NÝSKÖPUN? Ný tækifæri með nýjum lögum Kynningarfundur um breytt umh verfi nýsköpunarfyrirtækja á Íslandi, Húsi atvinnulífsins í Borgartúni 35, föstudaginn 1. júlí kl. 8.30–10.00 Dagskrá Opnunarávarp – Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra Lög um fjármögnun og rekstur nýsköpunarfyrirtækja og smærri fyrirtækja í vexti – Steinar Örn Steinarsson og Ingibjörg Helga Helgadóttir, Fjármála- og efnahagsráðuneytið Endurgreiðslur r&þ kostnaðar – Sigurður Björnsson, Rannís Stuðningur við nýsköpunarfyrirtæki, lög nr. 152/2009 – Pétur Már Halldórsson, Nox Medical Skattalegir hvatar vegna fjárfestinga í hlutabréfum nýsköpunarfyrirtækja og umbætur í skattalegri meðhöndlun kauprétta og skuldabréfa – Íris Ólafsdóttir, Kúla 3D Skattalegir hvatar til erlendra sérfræðinga og hærri þök á endurgreiðslur r&þ – Hilmar Veigar Pétursson, CCP Umræður Fundarstjóri: Davíð Lúðvíksson, SI Fundurinn er öllum opinn. Skráning á www.si.is Framkvæmdir standa nú yfir í Sóltúni í Reykjavík við nýjar öryggis- og þjón- ustuíbúðir fyrir eldri borgara. Fyr- irhugað er að byggja upp alhliða þjón- ustu fyrir eldri borgara á svæðinu sem ber heitið Sóltúnsþorpið. Íbúðirnar verða afhentar vorið 2017 og er sala á þeim hafin. Í fréttatilkynningu um fram- kvæmdirnar kemur fram að Sóltún öryggis- og þjónustuíbúðir henti vel fyrir þá sem kjósa að búa á eigin heim- ili en þurfa margvíslega þjónustu. Stefnt er að því að bjóða upp á heima- hjúkrun og heimaþjónustu fyrir þá sem þess þurfa. Fyrsta skrefið í upp- byggingu Sóltúnsþorpsins var hjúkr- unarheimilið Sóltún. Nú standa til boða 44 öryggis- og þjónustuíbúðir að Sóltúni 1–3. Á milli beggja hjúkrunarheimilanna er fyrirhugað að reisa tengibyggingu sem verður þjónustumiðstöð fyrir eldri borgara sem búa í hverfinu. Þar verður að finna veitingastað, líkams- og hugarrækt, miðstöð heilbrigð- isþjónustu og heimahjúkrunar og að- stöðu fyrir félagsstarf. „Þjóðin er að eldast og það er að fjölga í elsta hópn- um, nú þegar er mikil eftirspurn eftir þjónustuíbúðum fyrir eldri borgara. Með uppbyggingu á Sóltúnsþorpinu er verið að bjóða upp á nýjan valkost sem býður upp á fjölbreytileika og aukna þjónustu við þá einstaklinga sem kjósa að búa á eigin heimili leng- ur,“ segir Halla Thoroddsen, fram- kvæmdastjóri Sóltúns öryggis- og þjónustuíbúða. Mikil uppbygging í Sóltúni Uppbygging Svæðið í Sóltúni þar sem Sóltúnsþorpið mun rísa. Þar verður m.a. að finna öryggis- og þjónustuíbúðir fyrir aldraða og þjónustumiðstöð.  Sóltúnsþorpið nefnist nýr þjónustukjarni fyrir eldri borg- ara  44 öryggis- og þjónustuíbúðir komnar í sölu Hugrún, félag nemenda í hjúkr- unarfræði, lækn- isfræði og sál- fræði við Háskóla Íslands, stendur fyrir „geðveiku bingói“ í Stúd- entakjallaranum í kvöld. Mark- miðið með bingó- inu er að afla fjár og vekja athygli á félaginu. Hugrún var stofnað með það í huga að standa fyrir fræðslu í menntaskólum landsins um andlega heilsu og geðræn málefni. Grínist- inn Þorsteinn Guðmundsson verður kynnir kvöldsins og eru tugir vinn- inga í boði, m.a. hótelgisting og ferðir út á land. Spjaldið mun kosta 1.000 krónur en þrjú spjöld verða á 2.000 krónur og allur ágóði mun renna til forvarnastarfsins. „Geðveikt bingó“ í Stúdentakjallaranum Bingó! Freistaðu gæfunnar í kvöld Milo Djukanovic, forsætisráðherra Svartfjallalands, heldur fyrirlest- ur undir yfir- skriftinni „Aðild Svartfjallalands að NATO og stöðugleiki á vesturhluta Balkanskaga“ á opnum fundi á vegum Alþjóðamálastofnunar Há- skóla Íslands í dag. Fundurinn hefst kl. 12 í stofu 101 í Odda í Háskóla Íslands og stendur yfir í um klukku- stund. Daði Már Kristófersson, forseti Félagsvísindasviðs Háskóla Íslands, verður fundarstjóri á fundinum, sem er opinn öllum. Fundurinn fer fram á svartfellsku, en túlkur mun þýða yfir á ensku samhliða fyr- irlestrinum. Nánari upplýsingar má finna á slóðinni www.ams.hi.is. Ræða aðild Svart- fjallalands að NATO Daði Már Krist- ófersson Verðlagsnefnd búvara hefur tekið samhljóða ákvörðun um að heildsöluverð á mjólk og mjólk- urafurðum hækki um 2,5% þann 1. júlí nk. Þetta kemur fram í frétta- tilkynningu frá Verðlagsnefnd búvara. Breytingin er einkum komin til vegna hækk- unar launa en undanrennu- og mjólkurduft lækkar aftur á móti um 20% til að mæta áhrifum nýs tollasamnings við ESB og lækkun heimsmarkaðsverðs á dufti. Vegin meðaltals hækkun er því 2,1%. Af- urðastöðvaverð til bænda hækkar um 1,77 kr. á lítra mjólkur og þá hækkar vinnslu- og dreifing- arkostnaður um 1,81 kr. Alls hækk- ar mjólkurlítrinn um 3,58 kr. Mjólkurverð til bænda hækkar Mjólk Heild- söluverð hækkar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.