Morgunblaðið - 29.06.2016, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 29.06.2016, Blaðsíða 31
MENNING 31 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JÚNÍ 2016 Smiðjuvegi 68-72, Rvk Hjallahrauni 4, Hfj Fitjabraut 12, Njarðvík Eyrarvegi 33, Selfossi Barðinn, Skútuvogi 2 Við tökum að okkur: Peruskipti, rafgeymaþjónustu, bremsuviðgerðir, stýrisenda, spindilkúlur, kerti, kertaþræði, hjólalegur, fjöðrunarbúnað, viftureimar, hjólastillingar og margt fleira. LAGFÆRUM BÍLINN VIÐ www.solning.is Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Hljómsveitin Samaris lýkur þriggja vikna tónleikaferð sinni um Evrópu með tónleikum á Húrra í kvöld sem hefjast kl. 20 og koma einnig fram á þeim þau Árni Skeng, DJ Flugvél og geimskip og DJ Bervit. Árni sér um upphitun, Dj Flugvél verður á reyk- vélinni og DJ Bervit spilar eftir tón- leikana. Tilefni tónleikaferðarinnar er þriðja plata Samaris í fullri lengd, Black Lights, sem kom út 10. júní sl., en á henni syngur hljómsveitin í fyrsta sinn frumsamda texta á ensku. Samaris skipa Áslaug Rún Magnúsdóttir, Þórður Kári Stein- þórsson (kallaður Doddi) og Jófríð- ur Ákadóttir og stofnuðu þau hljómsveitina ár- ið 2011, þá öll á táningsaldri. Fyrsta platan í fullri lengd, samnefnd sveitinni, kom út tveimur árum síðar og önnur, Silkidrangar, árið 2014. Hljóm- sveitin fór að vinna að Black Lights í janúar í fyrra og segir Áslaug að platan hafi verið tilbúin um ári síðar. Fóru hvert í sína áttina Spurð að því hvort þau séu að prófa eitthvað nýtt á plötunni segir Áslaug að það megi orða það svo. „Ég veit ekki hvort við höfum þrosk- ast eitthvað mikið frá síðustu plötu. Ég vona það. Við fórum að gera ólíka hluti, fluttum öll af landinu. Ég fór að læra meiri raftónsmíðar, Doddi var í Berlín að gera sitt og Jó- fríður að vinna mjög mikið í sínu sólóverkefni og öðrum verkefnum þannig að ég held að við höfum öll komið með nýjar hugmyndir. Við hittumst reglulega í London, Ír- landi, Berlín og Reykjavík og tókum upp og að því leyti er þessi plata ólík þeim fyrri,“ segir Áslaug, sem leikur á klarínett í tríóinu, Jófríður syngur og Doddi leikur á hljóðgervla. -Er þetta hljóðgervlapopp með klarínetti? Áslaug hlær að skilgreiningunni. „Jú, það má segja það. En núna heyrir fólk ekkert rosa „lead synth klarínett“-eitthvað með rosa popp- línu, það er búið að breytast. Það er komið miklu meira í bakgrunninn, meira „prósessað“ og það sama má segja með sönginn, lögin byggjast mikið á hljómdæmum frá röddinni og klarínettinu sem hefur verið „skramblað“ saman í eitthvert raf- haf og heyrist ekki nema rýnt sé vel í lögin,“ útskýrir hún. Sjálfstæðari vinnubrögð -Í tölvupósti sem þú sendir mér sagðir þú að þú vildir spjalla um erfiðleika, ást og örlög hljómsveit- arinnar. Ég verð því að spyrja: hefur mikið gengið á hjá ykkur undanfarin misseri? Áslaug hlær innilega. „Nei, það er kannski ekki hægt að segja það, ég vildi bara grípa athygli fréttamanns- ins og það hefur virkað. Ööö... erfið- leikar, ást og örlög ... jú, ætli við höf- um ekki öll gengið í gegnum einhverja ástarsorg í þessu ferli, ég held það. Þegar við vorum að byrja í Berlín var fólk búið að vera upp og niður í ástarmálum en það eru allir stabílir núna eða satt best að segja veit ég ekkert hvað er í gangi, það er sumar... en allt í góðu. Hvað erfiðleikana varðar held ég að við séum að vaxa dálítið burt frá hvert öðru. Þetta byrjaði sem ung- lingaband, við vorum bara 17 ára þegar við byrjuðum og höfðum ekki hugmynd um hvað við ætluðum að gera. Svo allt í einu vindur þetta upp á sig og þú ert kominn með fullt af fólki sem vinnur fyrir þig og þarft að fara að taka hlutina alvarlega. Við vorum kannski ekki tilbúin að taka hlutina alvarlega þegar við vorum bara unglingar en nú þarf maður að fara að taka almennilegar ákvarð- anir. Það var dálítið erfitt í þessu ferli. Að vaxa í sundur hefur þó líka jákvæð áhrif, fólk kemur inn með nýjar hugmyndir, við erum ekki eins hænd hvert að öðru inni í stúdíói, getum unnið meira sjálfstætt og er- um sterkari lagasmiðir hvert og eitt fyrir vikið,“ segir Áslaug, en þau Doddi voru 17 ára og Jófríður 16 ára þegar þau stofnuðu hljómsveitina. Samin um sumar -Það er kannski einhver vitleysa í mér en er ekki léttara yfir tónlist- inni á þessari plötu en þeirri sein- ustu? „Jú, kannski. Síðasta plata var dá- lítið drungaleg, svolítið dökk. Mig minnir að hún hafi verið samin að mestu að vetri til. Stór hluti nýju plötunnar er saminn síðasta sumar og þá sérstaklega að nóttu til og á hún þess vegna til að vera aðeins léttari og víraðri en hinar. Einnig urðum við fyrir miklum áhrifum frá því hvernig við spiluðum á tón- leikum. Þegar maður er búinn að túra plötuna í að verða ár, fara út um allt og kann lögin út og inn fer maður að breyta þeim og við fórum að koma hvert öðru á óvart. Ég held að það hafi verið að gerast á svip- uðum tíma og við vorum að byrja í stúdíói með nýju plötuna. Við fórum að gera það sem okkur finnst skemmtilegra, að spila „live“ og þannig vinnum við líka, prófum lög og sjáum hvernig tónleikagestir bregðast við þeim. Við tökum upp tónleikana og förum svo í stúdíó aft- ur,“ svarar Áslaug. Lög Samaris hafa fram að þessu verið sungin á íslensku og þá eink- um við ljóð þekktra skálda en á plöt- unni nýju eru textarnir á ensku. Ás- laug segir Jófríði hafa samið texta á ensku og íslensku til margra ára og þau hafi ákveðið að slá til, prófa að hafa lögin á ensku. „Það var líka miklu auðveldara að semja á ensku en að fara allt í einu að semja á ís- lensku þegar við vorum búin að vera með svona ótrúlega fallega íslenska texta. Ég held að ekkert okkar hafi þau tök á tungumálinu að geta keppt við þessi gömlu ljóðskáld. Og þetta bara kom hjá Jófríði og allt í einu var platan öll á ensku,“ segir Áslaug kímin. „Já, já, thank you very much!“ -Nú er rosa kúl í tónlistarbrans- anum að vera frá Íslandi. Finnið þið fyrir því á ykkar ferðalögum? „Já, það er allt annað að vera ís- lenskt band en t.d. band frá Austur- Evrópu. Það vekur strax meiri at- hygli að vera með þennan Íslands- stimpil, þökk sé Björk og Sigur Rós fyrir að koma okkur á kortið fyrir löngu. En það er líka pirrandi, fólk kemur með fyrirframgefnar hug- myndir á tónleika, vill fá ákveðið sánd og fer að lýsa því þegar það kom til Íslands og sá einhvern jökul og þá er það alveg málið þegar það heyrir tónlistina. Svo eru íslenskar söngkonur settar mikið í sama pott, Katrína Mogensen, Jófríður o.fl. og líkt við Björk en á endanum segir maður bara „já, já, thank you very much!“,“ segir Áslaug að lokum og hlær. Erfiðleikar, ást og örlög ... og þó! Tríó Samaris skipa Þórður Kári Steinþórsson, kallaður Doddi, Áslaug Rún Magnúsdóttir og Jófríður Ákadóttir.  Samaris fylgir eftir þriðju plötunni í fullri lengd, Black Lights  Sú fyrsta með enskum textum  Evrópuferð lýkur með tónleikum á Húrra í kvöld  Léttari og víraðri plata en sú síðasta

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.