Morgunblaðið - 08.07.2016, Page 1
F Ö S T U D A G U R 8. J Ú L Í 2 0 1 6
Stofnað 1913 158. tölublað 104. árgangur
FINNUR FYRIR
FRUMMANNINUM
VIÐ GRILLIÐ
VIÐ ERUM LISTAHÓPUR
SMITUÐUST AF
SÖNGBAKTERÍUNNI
HJÁ JÓNI STEFÁNS
REYKJAVÍKURDÆTUR 31 SYSTKINI SYNGJA SAMAN 12SÉRBLAÐ UM GRILL
Framtakssjóðurinn Horn III
stefnir að því að ljúka viðræðum
við núverandi eigendur eignar-
haldsfélagsins Basko um kaup á
umtalsverðum hlut í fyrirtækinu á
næstu vikum. Meðal dótturfélaga
Basko eru verslanakeðjurnar 10-11
og Iceland, ásamt kaffi- og kleinu-
hringjastöðunum Dunkin’ Donuts.
Núverandi eigandi Basko er
Árni Pétur Jónsson. Hann keypti
10-11 verslanirnar af dótturfélagi
Arion banka árið 2011 og árið 2013
bættist við meirihluti í Iceland-
keðjunni.
Ekki liggur fyrir á þessari
stundu með hvaða móti aðkoma
Horns verður að félaginu en heim-
ildir Morgunblaðsins herma að
Árni Pétur verði áfram leiðandi á
vettvangi þess sem stjórnandi og
eigandi þótt af kaupunum verði.
Horn III er í eigu 30 aðila; líf-
eyrissjóða, fjármálafyrirtækja og
fagfjárfesta, og er í rekstri hjá
Landsbréfum. Fjárfestingartíma-
bil sjóðsins er til ársins 2019 og
áætlaður líftími fjárfestinga er
hugsaður til ársloka 2025.
Velta dótturfélaga Basko hefur
aukist mjög að umfangi á síðustu
árum og er nú um 10 milljarðar
króna. » 16
Sækjast
eftir hlut
í 10-11
Viðræður við fjár-
festingarsjóðinn Horn
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Verslanir 10-11, Iceland og Dunkin’
Donuts eru dótturfélög Basko.
Þjóðgarðurinn á Þingvöllum hefur undanfarin
sumur haldið fimmtudagsgöngur um garðinn.
Gangan í gær var sú fjölmennasta frá upphafi og
komu 350 manns saman. Guðni Ágústsson, fyrrv.
landbúnaðarráðherra, ávarpaði göngumenn og tal-
aði eins og samtímamaður Skarphéðins og Njáls
um atburði Brennu-Njáls sögu. Með honum var
Jörmundur Ingi Hansen, fyrrum allsherjargoði,
ásamt skoskum, enskum og íslenskum víkingum.
Morgunblaðið/Eggert
Höfðingjar og glæsimenn fylktu liði á Njáluslóð
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Aðalsteinn Arnarson skurðlæknir
mun á næstunni innleiða nýja með-
ferð við offitu, en hann mun opna
skurðstofu við Klíníkina í Ármúla á
næstunni. Aðferðin er framkvæmd
með lækningatæki sem kallast
AspireAssist og var nýlega vottað af
FDA, matvæla- og lyfjaeftirliti
Bandaríkjanna, en hafði áður fengið
CE-vottun í Evrópu.
Hin nýja aðferð felur í sér mun
minna inngrip en hefðbundnar offitu-
aðgerðir og krefst t.a.m. ekki svæf-
ingar, heldur er sjúklingurinn slævð-
ur á meðan lækningabúnaðinum er
komið fyrir. Að sögn Aðalsteins gæti
verið að AspireAssist væri ákjósan-
legur kostur fyrir þann hóp sem hefur
hingað til ekki viljað gangast undir of-
fituaðgerðir vegna þess inngrips sem
í þeim felst.
Hann telur þó hjáveituaðgerð ár-
angursríkasta fyrir þá sem kljást við
offitu, enda batinn skjótur og áhrif
hennar mikil á þann heilsubrest sem
offita leiðir til. Þannig vinna þær til
dæmis bug á hjarta- og æðasjúkdóm-
um auk kæfisvefns, að sögn hans.
Hjáveituaðgerðir hafa einnig mikil
áhrif á sykursýki tvö, en tveir þriðju
hlutar þeirra sem undirgangast slíkar
aðgerðir og eru einnig með sykursýki
losna við sjúkdóminn með öllu. Áhrif-
anna gætir oft strax á annarri viku
eftir aðgerðina.
Ný lækning við offitu
Minna inngrip í líkamsstarfsemi og krefst ekki svæfingar Gæti höfðað til
þeirra sem ekki vilja aðgerð Hjáveituaðgerðir geta læknað sykursýki tvö
MNýr valkostur »10
Aníta Hinriksdóttir og Ásdís Hjálmsdóttir
sýndu í gær að þær eru meðal þeirra bestu í
Evrópu í greinum sínum þegar þær komust
báðar í úrslit á Evrópumeistaramótinu í
frjálsum íþróttum í Amsterdam í Hollandi.
Aníta keppir í úrslitum 800 metra hlaups
annað kvöld kl. 19.40, eftir að hafa náð fjórða
besta tímanum í undanúrslitum í gær. Átta
keppendur hlaupa í úrslitahlaupinu. Aníta
hljóp á 2:01,41 mínútu í gær og varð fjórða í
sínum riðli, en það reyndist hraðasti riðillinn
af undanúrslitariðlunum þremur. Tveir fljót-
ustu keppendur í hverjum riðli komust sjálf-
krafa í úrslitin en svo giltu tveir bestu tím-
arnir eftir það, þvert á riðla.
Ásdís Hjálmsdóttir keppir í úrslitum spjót-
kasts kl. 16.45 á morgun. Hún varð í 10. sæti í
undankeppninni eftir að hafa náð 58,83
metra kasti í annarri tilraun. Tólf keppendur
komust í úrslitin.
„Það er frábært fyrir sjálfstraustið að kom-
ast í úrslit. Við vorum alveg viss þegar ég
kastaði að þetta myndi duga,“ sagði Ásdís við
Morgunblaðið, en hún þurfti að bíða í dágóða
stund til að fá það endanlega staðfest að kast
sitt dygði til að komast í úrslitin. » Íþróttir
Aníta og Ásdís báðar
í úrslitum á EM
Morgunblaðið/Kristinn
Fljót Aníta Hinriksdóttir átti fjórða besta tím-
ann í undanúrslitum 800 metra hlaups á EM.
Morgunblaðið/Kristinn
Tíunda Ásdís Hjálmsdóttir er komin í úrslit á
EM. Hún náði 10. besta árangrinum í gær.