Morgunblaðið - 08.07.2016, Blaðsíða 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 2016
Svava Grímsdóttir, verslunareigandi og hönnuður, er fimmtug ídag. Hún rekur verslunina Ræmuna á Nýbýlavegi 6 ásamtHeiðrúnu Björk Jóhannesdóttur, en Svava hannar fatnað undir
nafninu Evuklæði og Heiðrún hannar fylgihluti og heimilislínu undir
nafninu Ísafold.
„Við erum búin að reka verslunina í á fjórða ár og það gengur bara
mjög vel, fullt af glæsilegum konum sem eru fastakúnnar hjá okkur
og stöðugt að bætast við nýir viðskiptavinir. Það er búinn að vera góð-
ur stígandi í þessu hjá okkur og við hlökkum til að takast á við vet-
urinn. Ég hanna fatnað fyrir íslenskar konur, þetta er „slow-fashion“
eins og maður segir á slæmri íslensku, þ.e. fatnaðurinn er ekki árs-
tíðaskiptur heldur kemur jafnt og þétt.
Við ætlum að kynna heimilislínu núna í haust sem er unnin úr leðri.
Þetta eru m.a. blaðakörfur, kertahlífar úr leðri og margt fleira.
Prótótýpurnar eru að rúlla í húsið ásamt fullt af nýjum fatnaði á
íslenskar konur fyrir veturinn.“
– Hvernig á að halda upp á daginn? „Ég verð með sveitaafmæli í
Þjórsárdal og það verður gleði í dalnum alla helgina, ca. 80 manns
ætla að mæta og halda upp á áfangann með mér. Svo ætlum við að
hjónin að klára afmælisvikuna með því að fara á golfvelli á Suður-
landinu, en við erum nýlega byrjuð í golfinu.“
Eiginmaður Svövu er Einar Benedikt Nåbye, söluráðgjafi hjá Brim-
borg, og börn þeirra eru Atli Freyr Nåbye 25 ára og Eva Björg Nåbye
16 ára.
Fjölskyldan Atli Freyr, Eva Björg, Svava og Einar Benedikt.
Hannar Evuklæði
Svava Grímsdóttir er fimmtug í dag
S
igtryggur fæddist í
Reykjavík 8.7. 1941, ólst
þar upp og lauk gagn-
fræðaprófi frá Gaggó
Vest 1958.
Sigtryggur hóf störf hjá Póst-
stofunni í Reykjavík 1958. Í árs-
byrjun 1962 hóf hann störf hjá
Jakobi S. Kvaran, frímerkjakaup-
manni í Kaupmannahöfn, stundaði
síðan verslunarstörf hjá Renault-
bifreiðaumboðinu, Kólumbus í
Reykjavík, og starfaði þar til árs-
ins 1963. Hann var síðan sölustjóri
hjá heildversluninni Eddu hf. í
Reykjavík 1963-74 en hóf þá rekst-
ur inn- og útflutningsfyrirtækisins
XCO, ásamt nokkrum vinum sín-
um. Sigtryggur hefur verið fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins frá
upphafi og er það enn í dag. Auk
þess starfrækti hann um nokkurra
ára skeið Frímerkjastofuna á Vest-
urgötu 14 í Reykjavík.
Sigtryggur hefur sinnt fé-
lagsstörfum fyrir Samtök frí-
merkjasafnara, gaf út Safnara-
blaðið, var ritstjóri þess og var
framkvæmdastjóri fyrstu Nordia-
sýningarinnar hérlendis, 1984: „Ég
hef safnað frímerkjum frá því ég
var sex ára en söfnunarsvið mitt
hefur verið Íslandstengt. Ég á gott
lýðveldissafn og íslensk bréfspjöld
sem gefin voru út á árunum 187-
1920 og hafa fengið viðurkenningu
á norrænum sýningum og heims-
sýningum gegnum árin. Auk þess
hef ég mikinn áhuga á ættfræði,
en frímerkin og ættfræðin segja
okkur söguna ef við á annað borð
leggjum við hlustir.“
Sigtryggur var stofnfélagi Kiw-
anisklúbbsins Vífils í Breiðholti,
Sigtryggur Rósmar Eyþórsson framkvæmdastjóri – 75 ára
Ljósmynd/Gunnar Ingimundarson
Yngsta kynslóðin Hér eru þau Sigtryggur og Þorbjörg með barnabörnunum sínum, öllum nema þeirri yngstu,
þeim Valmundi Rósmar, Þorbjörgu, Margréti Rósu, Edvard Degi, Þorbjörgu Gróu og Ástu Halldóru.
Frímerki og ættfræðin
greina oft frá sögunni
Sú yngsta Afi með Ísabellu Maríu.
Hrafnhildur Lóa Kvaran og Kári Dan Edvardsson héldu tombólu fyrir utan Ár-
bæjarskóla og seldu dót sem þau höfðu safnað. Þau gáfu Rauða krossinum ágóð-
ann, 4.000 kr.
Hlutavelta
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.isHoist Vinnulyftur • Víkurhvarf 4 • Sími 517 6000 • hoist@hoist.is • www.hoist.is
Umboðsaðili Alimak Hek á Íslandi
Turnlyftur
Sala og þjónusta
Sérhæfum okkur
í sölu og þjónustu
á lyftum af öllum
stærðum og gerðum
517 6000