Morgunblaðið - 08.07.2016, Síða 36
FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 190. DAGUR ÁRSINS 2016
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 517 KR. ÁSKRIFT 5613 KR. HELGARÁSKRIFT 3505 KR. PDF Á MBL.IS 4978 KR. I-PAD ÁSKRIFT 4978 KR.
1. Flutningabíll í veg fyrir mótorhjól
2. Alvarlegt slys á Reykjanesbraut
3. „Við erum ekki Ísland“
4. Hrærð yfir boðinu til Íslands
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Árleg Garðveisla Félags tónskálda
og textahöfunda (FTT) er haldin í
Hljómskálagarðinum í kvöld kl.
20.30. Þar koma fram Úlfur Úlfur,
Samaris og Glowie og er aðgangur
ókeypis. Garðveislan hefur verið
reglulegur viðburður síðustu árin og
er nafnið fengið úr lagi Mezzoforte,
„Garden Party“, sem markaði á
margan hátt útrás íslenskra
tónlistarmanna á sínum tíma.
Garðveisla FTT í
Hljómskálagarðinum
Snæfríður Ingvarsdóttir, nýút-
skrifuð leikkona frá leikarabraut
Listaháskóla Íslands, fær fjölbreytt
verkefni hjá Þjóðleikhúsinu á kom-
andi leikári. Hún leikur í söng-
leiknum Djöflaeyjunni, Fjarskalandi
og nýrri leikgerð Melkorku Teklu
Ólafsdóttur á Tímaþjófnum eftir
samnefndri skáldsögu Steinunnar
Sigurðardóttur í leikstjórn Unu Þor-
leifsdóttur. Svo skemmtilega vill til
að í Tímaþjófnum leikur hún dóttur
Eddu Arnljótsdóttur, en Snæfríður
er í reynd dóttir Eddu og Ingvars E.
Sigurðssonar. Með hlutverk Öldu í
sýningunni fer Nína Dögg Filippus-
dóttir, en Björn Hlynur Haraldsson
leikur samkennara Öldu og elsk-
huga. Leikmynd og
búninga hannar Eva
Signý Berger, en þær
Una hafa unnið sam-
an áður með góðum
árangri, meðal ann-
ars í sýningunni
[um það bil] sem
sýnd var í Þjóðleik-
húsinu á liðnum
vetri.
Snæfríður og Edda
leika mæðgur
Á laugardag Norðaustlæg átt, 10-13 m/s á Vestfjörðum, en ann-
ars hægari og rigning víða um land. Hiti 8 til 13 stig.
Á sunnudag og mánudag Norðaustan 8-13 m/s og votviðri víða
um land. Fremur milt veður.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðaustan 8-15 NV-til en annars hægari og
rigning með köflum, en þurrt að kalla SV-til. Hiti 7 til 19 stig.
VEÐUR
KR-ingar unnu risasigur á
norður-írska liðinu Glena-
von í 1. umferð forkeppni
Evrópudeildar karla í knatt-
spyrnu. Þeir mæta nýja lið-
inu hans Rúnars Más Sigur-
jónssonar, Grasshopper frá
Sviss, í 2. umferð. KR fagn-
aði 6:0-sigri á útivelli í gær
og vann samtals 8:1. Breiða-
blik féll úr leik eftir 5:4-tap í
einvígi sínu við Jelgava og
Valur tapaði 10:1 gegn
Bröndby. » 2 og 3
KR flaug áfram
eitt íslenskra liða
„Ég stefni á að vera í landsliðs-
hópnum og gera tilkall til að spila og
þá þurfti ég að fara frá Svíþjóð, ég
held að það sé alveg 100%,“ sagði
Rúnar Már Sigurjónsson, landsliðs-
maður í knattspyrnu, hæstánægður
eftir að hafa skrifað undir samning til
þriggja ára við svissneska
félagið Grasshopper í
gær. Hann er bjart-
sýnn á að fá stórt
hlutverk í liðinu. »4
Til Sviss og ætlar sér
meira í landsliðinu
„Ég hefði viljað vinna þetta eftir að
hafa verið með yfirhöndina,“ sagði
Signý Arnórsdóttir, landsliðskona í
golfi, eftir naumt tap Íslands gegn
Frakklandi á Evrópumóti áhugakylf-
inga sem haldið er á Urriðavelli.
Frakkar hafa unnið tvö síðustu
Evrópumót en viðureignin var æsi-
spennandi og úrslitin réðust ekki fyrr
en í bráðabana. »4
Töpuðu eftir bráðabana
gegn meisturum Frakka
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Skúli Halldórsson
sh@mbl.is
„Við fengum þá hugmynd að halda
svona áramótateiti og svo datt okk-
ur í hug að sérhæfa þetta svolítið,“
segir Ásgrímur Ingi Arngrímsson,
vert á Fjarðarborg, í samtali við
Morgunblaðið, en boðið er til ára-
mótaveislu í Fjarðarborg á morgun
þar sem fagna á áramótunum 1986-
1987.
„Þessi áramót eru svo nostalgísk
í huga okkar, til að mynda var
þetta fyrir tíma bjórsins,“ segir
Ásgrímur og bætir við að af því til-
efni verði að sjálfsögðu boðið upp á
bjórlíki.
„Þó verða einhverjar veigar úr
framtíðinni, til dæmis hefðbundinn
bjór. Eða kannski komumst við
upp með að segja að honum hafi
verið smyglað,“ segir Ásgrímur
léttur í bragði.
Sýna áramótaskaupið frá 1986
Skaupið þessi áramót er af
mörgum talið vera eitt það besta
sem gert hefur verið. Verður því
enda gert hátt undir höfði þetta
kvöld.
„Við höfum verið að sanka að
okkur efni og verið mikið í sam-
bandi við safnadeild Ríkissjón-
varpsins; fengið áramótaávörp,
annálinn og fleira. Þetta verður allt
sýnt hér á risaskjá.“
Með þessu segir Ásgrímur að
fólki sé gert kleift að endurupplifa
þessi sögulegu áramót.
„Og þeir sem misstu hreinlega af
þessu, þar sem þeir voru ekki
fæddir, fá líka að upplifa þetta.“
Í sérstöku kynningar-
myndbandi er ýmsu lofað
fyrir kvöldið, meðal annars
flugeldssýningu.
„Við þorðum ekki að lofa meiru
í bili. Það fannst bara einn flug-
eldur en við ætlum að reyna að
skjóta honum upp. Ég veit ekki
hvort fólk verður með eitthvað úr
eigin ranni en við getum að
minnsta kosti lofað þessum eina.“
Búist er við að rúmlega 100
manns muni mæta til veislunnar
annað kvöld.
„Við erum komnir með í hús kjöt
fyrir 150 manns, sem við keyptum
með hliðsjón af vinsældum þessara
sérviskuhátíða sem við höfum hald-
ið hingað til,“ segir Ásgrímur.
Að loknum áramótakvöldverð-
inum verður slegið upp balli innan
sömu veggja, þar sem Magni Ás-
geirsson söngvari leikur ásamt
hljómsveit.
„Ég held að þeir verði í þessum
eitís-lögum, með gömlu dansana í
bland eins og venjan var á þessum
tíma, sælla minninga.“
Slá upp mikilli áramótaveislu
Haldið verður
upp á áramótin
1986-1987
Ljósmynd/Hafþór Snjólfur Helgason
Nostalgískir Þrír vertanna á Fjarðarborg, frá vinstri þeir Kristján Geir Þorsteinsson, Ásgrímur Ingi Arngrímsson
og Óttar Már Kárason. Í höndum þeirra eru aðeins sýnishorn af þeim veigum sem boðið verður upp á annað kvöld.
Á hverju sumri undanfarin ár
hafa vertarnir í Fjarðarborg stað-
ið fyrir einkennilegri hátíð. Haldið
hefur verið upp á jólin, blásið til
þorrablóts og boðið til bjór-
drykkju á Októberfest auk
Bollywoodhátíðar, svo
dæmi séu tekin.
Nú skal haldið upp á
áramót og af því til-
efni býðst fólki að
senda sérstakar
áramótakveðjur, sem lesnar verða
upp yfir borðhaldinu.
„Jafnvel bjóðum við fólki að
senda kveðjur úr framtíðinni, ef
það er eitthvað sem maður hefði
viljað koma á framfæri á þessu
tímabili. Svona það sem maður
veit í dag en vissi ekki 1986. Það
verður vonandi eitthvað um góð
heilræði úr framtíðinni,“ segir Ás-
grímur, rétt áður en hann siglir
inn í gamla árið.
Áramótakveðjur lesnar upp
HEILRÆÐI ÚR FRAMTÍÐINNI