Náttúrufræðingurinn - 2015, Qupperneq 10
Náttúrufræðingurinn
102
að meðaltali meiri en gerist í öðrum
sýslum á landinu en hins vegar
er forystufjáreign ekki almenn. Á
Miðnorðurlandi (Eyjafirði og
Skagafirði) var forystufjáreign miklu
dreifðari en í Húnaþingi en margar
kindurnar eru ein eða tvær í hjörð. Í
Suður-Þingeyjarsýslu var forystufé
að finna á mörgum búum en yfirleitt
fremur fátt í hverri hjörð. Í Norður-
Þingeyjarsýslu var fleira forystufé
en í nokkurri annarri sýslu og féð
dreift á mörg bú. Þar voru allmargir
af stærstu hópum forystufjár
í landinu og umtalsverður hluti
forystuhrúta í landinu. Í Norður-
Múlasýslu var flest forystuféð í
Vopnafirði og á Jökuldal norðan
Jökulsár, og stendur ræktun þess á
þessum svæðum á gömlum merg.
Einstakar forystukindur sunnar
í sýslunni eru aðkeyptar eftir
fjárskipti á svæðinu. Á svæðinu frá
Egilsstöðum og suður og vestur um
að Markarfljóti er lítil forystufjáreign.
Á þessu svæði og á Vestfjörðum er
forystufé langstrjálast hér á landi. Í
Rangárvallasýslu vestanverðri og
í Árnessýslu var allnokkuð um
forystufé en yfirleitt fremur fátt á
hverju búi. Athygli vekur hve hátt
hlutfall af sauðastofninum var að
finna á þessu svæði (4. mynd). Á
búi í Rangárvallasýslu var að finna
svolitla hjörð forystusauða.
Aldursdreifing fjárins
Á 5. mynd er sýnd aldursdreifing
fjár í rannsókninni og flokkun eftir
kyni. Hrútarnir voru yngstir að
jafnaði eða 2,5 ára. Hjá sauðunum
og ánum er meðalaldurinn hins
vegar 4,4 ár. Meirihluti hrútanna,
70%, voru lambhrútar eða vetur-
gamlir hrútar. Sauðir á þessum
aldri eru hins vegar aðeins um
45% sauðastofnsins en margir af
hrútunum eru geltir eftir notkun
sem lambhrútar. Á súluritinu um
aldursdreifingu ánna sést hátt
hlutfall af veturgömlum ám og er
það vísbending um að forystufé fari
fjölgandi. Ekki eru til neinar nýlegar
tölur um hliðstæða aldursdreifingu
hjá ám af öðru fé en vitað er að
forystuær eru að jafnaði látnar lifa
4. mynd. Forystuféð á Brúnastöðum í Flóa fer fyrir fjárhópnum að vori um 1980. Fremstur er
vaninhyrndur sauður. – The leadersheep on Brúnastaðir Farm in Flói, S.-Iceland, leading the
flock in the spring, around 1980. The first one is a leaderwether with trained horns, practiced
on some farms. Ljósm./Photo: Valdimar Ágústsson.
Svæði
District
Bú
Flocks
Hrútar
Rams
Ær
Ewes
Sauðir
Wethers
Samtals
Total
sheep
Meðalfjöldi
gripa á búi
Mean
number in
flock
Gullbr. og Kjósars. 3 1 8 1 10 3,33
Borgarfjarðarsýsla 15 6 49 2 57 3,80
Mýrasýsla 11 3 49 1 53 4,82
Snæf. og Hnappads. 17 6 48 3 57 3,35
Dalasýsla 19 6 60 3 69 3,63
Barðastrandarsýslur 7 3 25 0 28 4,00
Ísafjarðarsýslur 4 1 11 0 12 3,00
Strandasýsla 10 0 37 1 38 3,80
V.-Húnavatnssýsla 15 5 65 8 78 5,20
A.-Húnavatnssýsla 19 8 89 2 99 5,21
Skagafjarðarsýsla 37 6 99 14 119 3,22
Eyjafjarðarsýsla 34 9 73 9 91 2,68
S.-Þingeyjarsýsla 61 11 133 22 166 2,72
N.-Þingeyjarsýsla 45 20 179 8 207 4,60
N.-Múlasýsla 33 7 85 3 95 2,88
S.-Múlasýsla 11 1 27 1 29 2,64
A.-Skaftafellssýsla 8 2 20 1 23 2,88
V.-Skaftafellssýsla 7 1 11 4 16 2,29
Rangárvallasýsla 16 0 41 18 59 3,69
Árnessýsla 43 11 81 24 116 2,70
Samtals / Total 415 107 1190 125 1422 3,43
2. tafla. Dreifing forystufjár um landið. Ásett fé haustið 2008. – The distribution of leadersheep
by districts in the autumn of 2008.
NFr_3-4 2015_final.indd 102 30.11.2015 16:34