Náttúrufræðingurinn - 2015, Side 45
137
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
leysti var frumframleiðnin um
margt óvenjuleg miðað við önnur
ár. Þessi breytileiki milli ára var ekki
talinn hafa áhrif á heildarframleiðni,
heldur frekar á það hvernig
næringarefnaforðinn var nýttur.10
Árið 2007 hófst vöktun á lífríki
og vatnsgæðum Þingvallavatns á
vegum Umhverfisstofnunar, Lands-
virkjunar, Orkuveitu Reykja víkur
og Þjóðgarðsins á Þingvöllum. Verk-
efnið nær til efna- og eðlisfræðilegra
þátta og lífríkis svifsins. Í saman-
tekt á niðurstöðum áranna
2007 til 2011 er sýnt fram á að
vatnið hafi hlýnað umtalsvert frá
fyrra rannsóknartímabili. Með
hlýnuninni verða mun skarpari
hitaskil í efsta hluta vatnsins að
sumri en áður þekktust. Ísa leggur
seinna um vetur en áður og ísalög
vara styttra en þekkt var á síðustu
öld, ef vatnið leggur yfirhöfuð.
Magn þörungasvifsins, mælt sem
blaðgræna, var talið meira en í fyrri
rannsóknum, sér í lagi að hausti.13
Breytinga eða sveiflna varð einnig
vart í styrk næringarefna. Breytingar
á styrk kísils, fosfórs og niturs í
vatninu gætu tengst breytingum á
magni þörunga.14
Á 5. mynd má sjá fjölda A.
islandica í sýnum sem safnað var
á árabilinu 2007 til 2010.15,16,17,18
Greina má vor- og hausttoppana
í gagnasafninu og lágmarkið
um sumarið og frávik frá því
(samanber 3. mynd). Mikilvægustu
upplýsingar myndarinnar í þessu
samhengi er þó hinn mikli munur
sem virðist geta verið milli ára í maí-
og októbermælingunum. Þetta getur
annaðhvort verið vísbending um
raunverulegan mun í hámarksfjölda
milli ára, eða vísbending um að
vaxtartopparnir (samanber 3. mynd)
geti hliðrast til í tíma. A. subarctica
sýnir sambærilegan mun á milli ára.
Sumarframleiðsla
Aulacoseira-tegunda á
botni
Nitella opaca C. Agardh er
kransþörungur sem myndar þétt
gróðurbelti á 10 til 18 m dýpi í
Þingvallavatni. Fyrstu sprotarnir
vaxa upp frá botninum í byrjun
maí og gróðurbeltið hefur náð 70–
80 cm hæð í september–október.
Lítið er um eiginlega ásætuþörunga
á kransþörungnum, en þekja
grots og botnfallinna þörunga
úr svifinu leggst á plönturnar
og allt gróðurbeltið. Aulacoseira-
tegundirnar mynda verulegan hluta
botnfallsins. Þetta laustengda set
kísilþörunga stendur undir um
þriðjungi frumframleiðslunnar í
þessu samfélagi og er uppi staða í
fæðu smádýra.19 Það á væntanlega
einnig við á krans þörungalausum
svæðum á botni þar sem nægilegt
ljós er til frumframleiðslu.
Báðum Aulacoseira-tegund un um
hefur verið lýst sem tegundum
sem vaxa sem svif þörungar en geta
einnig vaxið eða dvalist skemmri
eða lengri tíma á botni.20, 21
Vetrarframleiðsla
Aulacoseira-tegunda í
svifinu
Hátt hlutfall grots á krans þörunga-
beltinu er talið benda til þess að
bylgjuhreyfingar vegna vinda
haldi uppi hringrás efnisflutninga
á milli botns og vatnsbolsins, og
eftir botninum, þannig að reglulega
skolist lífverur (þörungar) og dautt
lífrænt efni af botni og flytjist til
vegna róts og strauma.22 Þetta efni
berst út í vatnsbolinn eða fellur
aftur til botns. Í desember 1985 hafði
gróðurbelti kransþörunga fallið eða
losnað upp í vetrarstormum og
kransþörungaflyksur voru algengar
í vatninu. Má gera ráð fyrir að
mikið magn efnis hafi skolast af
botni og borist í vatnsbolinn.23
Ebbe Lastein11 skilgreinir tvö
mikilvirk tímabil í árlegri
frumframleiðslu Þingvallavatns.
Annars vegar er það vorið þegar
uppsafnaður næringarefnaforði
vetrarins er tekinn upp og
nýttur við framleiðslu á lífrænu
efni. Á meðan á því stendur gerir
Lastein ráð fyrir botnfalli 2–3%
frumframleiðslunnar á dag. Hins
vegar er það haustið, þegar öflug
blöndun skapar grundvöll fyrir nýtt
vaxtartímabil. Frumframleiðslan
að hausti til á sér stað samhliða
miklu niðurbroti lífræns efnis sem
hefur safnast upp í vatninu yfir
sumarmánuðina.11 Niðurbrotið
losar á ný um næringarefnaforðann
sem er bundinn í lífmassanum.
Vetrartilveru Aulacoseira-tegunda
í svifinu í Þingvallavatni má
vafalaust skýra með lóðréttri
blöndun í vatnsbolnum og upp-
5. mynd. Aulacoseira islandica. Fjöldi frumna í þúsundum frumna í lítra eftir mánuðum
árin 2007 til 2010 á stöð sem staðsett er á miðju Þingvallavatni (stöð 2) og í útfalli vatnsins
2010. Hver súla sýnir geómetrískt meðaltal allra taldra sýna hvern mánuð, hvert ár.15,16,17,18
– Cell number (*1000) of Aulacoseira islandica, each sampled month during the sampling
period 2007–1010. Each column represents the geometric mean of all data sampled the
respective month and year. 15,16,17,18
NFr_3-4 2015_final.indd 137 30.11.2015 16:34