Ægir - 01.07.2015, Síða 22
22
Þarna er einnig að finna skrif-
borð föðurafa Péturs sem gert
hefur verið upp af natni og virð-
ingu. Hann minnist á föður-
missinn í öllu þessu mikla um-
breytingaferli. „Það hefði verið
gaman fyrir pabba að sjá fyrir
endann á þessu öllu því hann
studdi þá ákvörðun okkar heils-
hugar að ráðast í þessar breyt-
ingar.“
Þegar Pétur er beðinn um að
rekja aðdragandann að þessum
miklu breytingum aðeins betur
stendur ekki á svörum. Hann
segir saltfiskmarkaðinn mjög
góðan mælikvarða á þróunina
en Vísir hf. er stór framleiðandi
saltfisks. Hann segir að á síð-
ustu misserum fyrir hrun hafi
saltfiskverð verið í hæstu hæð-
um. Svo kom bankahrunið
2008.
Birgðahald færist til
framleiðenda
„Við hrunið stöðvaðist sala af-
urða á einu bretti. Við seldum
nánast ekkert í heilt ár og
birgðir hlóðust upp. Við urðum
að gera eitthvað. Við ákváðum
t.d. að taka 500 tonn af besta
línufiskinum okkar, skárum
hann í sneiðar og seldum
þurrkaðar til Nígeríu. Við
hengdum einnig helling upp í
skreið og gerðum allt sem við
gátum til þess að bæta ekki í
birgðir,“ segir Pétur.
Mikið verðfall varð á mörk-
uðum árið 2009 þegar birgjar
og milliliðir losuðu um upp-
safnaðar birgðir. Verðið steig
svo aftur í seint á árinu 2009
þegar eftirspurn jókst á ný.
„Næstu árin voru nokkuð stöð-
ug en sú grundvallarbreyting
hafði orðið að enginn vildi
halda birgðir. Það ástand varir
enn. Það kom því í hlut fram-
leiðenda að stýra birgðunum
algjörlega einir. Þetta var nýr
veruleiki fyrir okkur en um leið
ein af forsendunum fyrir þeim
breytingum sem við höfum lagt
út í.“
Pétur segir að þrátt fyrir að
sala afurða hafi gengið ágæt-
lega hafi stjórnendum fyrirtæk-
isins verið orðið það ljóst árið
2012 að rekstrarumhverfið
krafðist meiri sveigjanleika og
afhendingarhraða ef framlegð
ætti að vera ásættanleg. „Árið
2013 hófst eins en við ákváðum
að bíða til haustsins í þeirri von
að þá færi að rætast úr. En það
gerðist bara ekkert og við sáum
hvergi nein merki þess að
breytinga yrði vart,“ segir Pétur.
Tvö fiskhús í stað fjögurra
„Við urðum að breyta til að
mæta vaxandi eftirspurn eftir
ferskum fiski og auknum hraða
í afgreiðslu og við þurftum enn-
fremur að mæta auknum
gæðakröfum. Eina leiðin til að
ná þessu öllu var að færa alla
vinnslu í tvö hús sem væru hlið
við hlið. Nálægð við alþjóða-
flugvöllinn réði því að Grinda-
vík varð fyrir valinu. Endanleg
ákvörðun um það var tekin í
ársbyrjun 2014. Við höfum á
hálfu öðru ári farið úr því að
vera með fjögur vinnsluhús, þar
sem ekkert þeirra stóðst nú-
tímakröfur yfir í að vera með
einhver tvö bestu vinnsluhús
landsins, hvort á sínu sviði. Í
stað þess að vinna 16.000 tonn
í fjórum húsum ætlum við að
vinna 20.000 tonn í tveimur
húsum með miklu meiri sveigj-
anleika í framleiðslu,“ segir Pét-
ur.
Vísir hefur unnið náið með
Marel að uppsetningu búnaðar
í nýrri ferskfiskvinnslu fyrirtæk-
isins. Pétur segir nýja kynslóð
bitaskurðarvéla Marel vera álíka
byltingu og flökunarvélarnar
voru á sínum tíma. „Þessar nýju
vélar skapa okkur möguleika á
að þróa vinnsluna skrefinu
lengra og framleiða bita í til-
búna rétti. Tölva myndar flakið
á sekúndubroti og reiknar
hvernig hægt er að ná bestri
nýtingu úr því. Við samanburð
höfum við séð að tölvusýnin
getur fært okkur 10% meira
verðmæti úr nákvæmlega sama
flakinu en ef það væri skorið
með gamla laginu. Þetta er í
raun alveg nýr heimur.“
Leiðandi í nýsköpun
Vaxandi áhugi hefur á undan-
förnum árum verið innan sjáv-
arútvegsins á nýsköpun og þró-
un ýmissa hliðarafurða úr hrá-
efni sem áður var lítið eða jafn-
Starfsmenn í vinnslusal Vísis.