Ægir - 01.12.2015, Page 6
Þegar horft er til baka yfir árið 2015 kemur fyrst upp í hugann að því
miður var það ekki slysalaust í útgerð en einn maður fórst þegar drag-
nótarbáturinn Jón Hákon BA sökk í Aðalvík í júlí. Aðstandendum sjó-
mannsins eru sendar samúðarkveðjur en mikil og þörf umræða skapað-
ist í kjölfar slyssins, umræða sem stendur enn. Óútskýrt er hvers vegna
þetta slys hörmulega varð og ber að taka undir nauðsyn þess að allt
verði gert til að komast að hinu sanna sem fyrst. Sú vitneskja gæti í raun
bjargað mannslífum í framtíðinni. Allt sem við vitum um ástæður slysa
hjálpar okkur að koma í veg fyrir að slíkt endurtaki sig. Við vitum allt
um hætturnar sem hafsvæðið við Ísland og hin óblíðu norðlægu nátt-
úröfl búa sjómönnum. Og höfum því miður séð á bak mörgum góðum
samlöndum okkar í gegnum tíðina. Þess vegna, og kannski enn frekar,
verður okkur illa brugðið þegar slys líkt og í Aðalvík í sumar verður við
bestu aðstæður. Vonandi mun árið 2016 færa okkur svör um hvað þarna
gerðist.
Hvað sjávarútveginn sem heild áhrærir var árið 2015 um margt gott.
Tíðarfar var reyndar með eindæmum erfitt til sjósóknar síðasta vetur en
engu að síður skilaði uppsjávarflotinn góðri loðnuvertíð. Höfðu margir
reyndir sjómenn á orði að þetta hefði verið með erfiðari vertíðum sem
þeir hefðu upplifað.
Strandveiðar gengu vel í sumar en hvað minnstu bátana varðar bar
helst skugga á að væntingar um makrílveiðar smærri báta gengu ekki
eftir í þeim mæli sem margir höfðu vænst.
Ársins verður líka minnst vegna viðskiptabannsins sem rússnesk
stjórnvöld settu á og klipptu þannig að sölu sjávarafurða á þennan mik-
ilvæga markað Íslendinga. Þó fyrirtækjum hafi almennt tekist undravel
að finna nýja markaði fyrir makrílafurðir er full ástæða til að hafa áhyggj-
ur af sölu loðnuafurða á næstu mánuðum verði staðan óbreytt í við-
skiptum við Rússland er á veturinn líður. Því gætu áhrif viðskiptabanns-
ins átt eftir að koma fram af mun meiri þunga í greininni en hingað til.
Niðurstöður haustralls Hafrannsóknastofnunar, sem birtar voru
nú undir árslok, teljast þó meðal hápunkta í greininni á árinu. Þróttur
þorskstofnsins skiptir greinina og þjóðarbúið miklu máli og gefur
fyrirheit um aukningu veiða og þar með útflutningsverðmæta á næstu
árum. Seint verða allir sammála um aðferðafræði í umgengni um fiski-
stofna, veiðifyrirkomulag og verndun. Verði uppsveifla þorskstofnsins
skýrð öðru fremur með því að varlega hafi verið farið í veiðiráðgjöf og
veiðifyrirkomulagi á síðustu árum þá hlýtur niðurstaða af mælingum á
stofninum að vera rós í hnappagat þeirra sem að hafa komið og stutt.
Hvernig sem á málin er horft þá eru alltof miklir hagsmunir í húfi fyrir
greinina og þjóðina til að langtímahagsmunir séu fyrir borð bornir. Að
líkindum má vænta þess að þorskafli muni halda áfram að aukast á
næstu árum og þess mun sjást stað.
Í Ægi er að þessu sinni fjallað um hálfrar aldar afmæli Hafrannsókna-
stofnunar sem breytast mun á næsta ári með sameiningu við Veiðimála-
stofnun. Í því felast tækifæri eins og Jóhann Sigurjónsson, forstjóri sam-
einaðrar stofnunar, segir í viðtali í blaðinu.
Nýju fiskiskipi, Víkingi AK, var fagnað á Akranesi nú laust fyrir jól en
HB Grandi hefur þar með lokið uppstokkun í uppsjávarflota sínum. Ný
skip halda áfram að koma til landsins á komandi ári og eru til vitnis um
kraft og framsýni í greininni.
Tímaritið Ægir óskar lesendum og viðskiptavinum gleðilegrar hátíðar
og gæfu á komandi ári.
Jóhann Ólafur Halldórsson skrifar
Gengið til móts við nýtt ár
R
itstjórn
a
rp
istilll
Vökvakerfislausnir
Vökvadælur, vökvamótorar
og stjórnbúnaður
Danfoss hf. Skútuvogi 6, 104 Reykjavík, Sími: 510 4100
www.danfoss.is
Stjórnbúnaður skipa. Tæknibúnaður sem ætlaður
er til notkunar á sjó mætir erfiðustu hugsanlegu
skilyrðum. Álag óblíðrar náttúru, miklar
hitabreytingar og stöðugur ágangur af söltum
sjó, eykur þörf viðskiptavina fyrir áreiðanlegan
og skilvirkan búnað.
Út gef andi:
Athygli ehf. ISSN 0001-9038
Rit stjórn:
Athygli ehf. Glerárgötu 24, Ak ur eyri.
Rit stjór i:
Jóhann Ólafur Hall dórs son (ábm.)
Sími 515-5220. GSM 899-9865.
Net fang: johann@athygli.is
Aug lýs ing ar:
Augljós miðlun. Sími 515-5206.
GSM 898-8022. Net fang: inga@athygli.is
Suðurlandsbraut 30. Reykjavík.
Hönnun & umbrot:
Athygli ehf.
Suðurlandsbraut 30. Reykjavík.
Sími 515-5200.
Á skrift:
Hálfsársáskrift að Ægi kostar 5500 kr.
Áskriftar símar 515-5200 & 515-5205
ÆG IR kem ur út 10-11 sinn um á ári.
Eft ir prent un og ívitn un er heim il,
sé heim ild ar get ið.
6