Ægir - 01.12.2015, Síða 20
Bergvin með tveimur börnum sínum og meðeigendum í Glófaxaútgerðinni, Magneu og Haraldi. Myndir: Óskar P. Friðriksson
Útgerðarfélagið Glófaxi ehf.
var stofnað 6. júní 1974 og því
fagnaði það 40 ára afmæli á
síðasta ári. Útgerðin er sann-
kallað fjölskyldufyrirtæki og í
dag er það í eigu hjónanna
Bergvins Oddssonar og Maríu
Friðriksdóttur og þriggja barna
þeirra; Magneu, Haraldar og
Lúðvíks. Magnea er fram-
kvæmdastjóri útgerðarinnar og
hefur unnið við hana á einn eða
annan hátt í meira en þrjátíu
ár, Haraldur starfar sem inn-
kaupastjóri í Vinnslustöðinni
en nýtir hverja stund til þess að
leggja Glófaxaútgerðinni lið og
„síðan tekur Lúlli við ef við
lendum í málaferlum,“ segir
Bergvin og kímir, en Lúðvík,
sem sat um tíma á Alþingi fyrir
Samfylkinguna, er nú starfandi
lögfræðingur í Reykjavík.
Glófaxi og Glófaxi II
Á þessum rúmlega fjörutíu ár-
um hefur Glófaxaútgerðin gert
út tvo báta sem bera nafnið
Glófaxi. Báturinn sem nú er
gerður út hefur skráningarnúm-
erið VE-300 og er um 350
brúttótonn að stærð. Hann var
smíðaður árið 1964 en lengdur
og yfirbyggður árið 1978 og
auk þess gerir fyrirtækið út
handfærabátinn Glófaxa II VE-
301.
Á þessu fiskveiðiári hefur út-
gerðin milli 900 og 1000 þorsk-
ígildistonna kvóta, þar af um
480 tonn í þorski, tæp 200 tonn
í ufsa, 63 tonn í skötusel og 30
tonn í ýsu. Glófaxi VE-300 er
einungis á veiðum hluta úr ári,
Bergvin orðar það svo að kvót-
inn leyfi ekki að gera bátinn út
allt árið. Eftir áramót er bolfisk-
urinn veiddur í net og síðan
kemur sumarstopp þar til
skötuselurinn tekur við í sept-
ember. Í það heila er Glófaxi
ekki gerður út nema sjö mánuði
á ári. Í ellefu ár veiddi Glófaxi
humar á sumrin fyrir Vinnslu-
stöðina en svo er ekki lengur
vegna þess að nú veiðir eigin
floti Vinnslustöðvarinnar allan
úthlutaðan humarkvóta fyrir-
tækisins.
Skötuselurinn alltaf að veiðast
norðar
Á Glófaxa VE-300 eru á bilinu
9-11 í áhöfn – yfirleitt níu á
skötuselsveiðum en ellefu á
netaveiðum. Á þessu hausti
hefur skötuselurinn veiðst mun
norðar en venja er til eða út af
Ísafjarðardjúpi. Hér áður fyrr
hélt skötuselurinn sig fyrir
sunnan og suðvestan landið en
hin síðari ár hefur hann fært sig
norður með landinu, var í nokk-
ur ár í Breiðafirði en núna í
haust hefur Glófaxi sem sagt
verið að veiða skötuselinn í net
út af Ísafjarðardjúpi.
„Miðað við síðustu ár hefur
verið óvenju góð skötuselsveiði
á þessari vertíð. Hins vegar er
kvótinn sem við fáum úthlutað
ekki neitt til þess að tala um,
rétt um 70 tonn. Við erum með
rösklega sjö prósent af skötu-
selskvótanum. Áður var úthlut-
unin um þrjú þúsund tonn og
því hefðu 225 tonn átt að koma
í okkar hlut,“ segir Bergvin. Hins
vegar segir hann að heildar-
kvótinn í skötusel á þessu fisk-
veiðiári sé aðeins 1000 tonn
sem þýði að úthlutunin til Gló-
faxaútgerðarinnar, sem geri út
eina netabátinn á þessar veiðar,
sé milli 60 og 70 tonn. Þessi litli
kvóti þýði að útgerðin þurfi að
leigja til sín umtalsverðan
skötuselskvóta, ekki síst þegar
veiðin sé jafn góð og hún var á
þessari vertíð.
Ósáttur við vinnubrögð Jóns
Bjarnasonar
Bergvin segir það ekkert laun-
ungarmál að Jón Bjarnason þá-
verandi sjávarútvegsráðherra
hafi farið illa með Glófaxaút-
gerðina og gert henni mikla
Æ
g
isv
iðta
lið
20