Ægir - 01.12.2015, Blaðsíða 26
Hátt í þrjátíu nemendur í FIV fá kennslu á vélstjórnarbraut skólans. Í kennslustund í vélfræðum.
„Aðsóknin í vélstjóranámið hér
Vestmannaeyja hefur verið
ágæt og það eru á bilinu 25-28
nemendur sem tengjast vél-
stjórnarbrautinni beint eða
óbeint á hverjum tíma,“ segir
Gísli Eiríksson kennari við Vél-
stjórnarbraut Framhaldsskól-
ans í Vestmannaeyjum.
Kennt er í áfangakerfi og
segir Gísli að undir venjulegum
kringumstæðum sé hægt að
ljúka námi á vélstjórnarbraut-
inni á 5-6 önnum en það veitir
réttindi til að stjórna vélum sem
eru með allt að 1500 kw afl.
Með slík réttindi geta menn
ráðið sig sem vélstjóra á stóran
hluta flotans og að loknum
ákveðnum starfstíma öðlast
réttindi til að gegna stöðu yfir-
vélstjóra á skipum með 1500
kW aflvélum og sem undirvél-
stjórar á vélum að 3000 kW.
Gísli segir að sumir láti sér
nægja 1500 kw réttindin en
aðrir fari í framhaldsnám í
Tækniskólann í Reykjavík og
bæti við sig. „Námið hér í Eyjum
er með svipuðu sniði og í öðr-
um skólum sem kenna vélstjórn
þannig að allir nemendur frá
okkur eiga að hafa sama eða
sambærilegan grunn til fram-
haldsnáms t.d. við Tækniskól-
ann sem er kjarnaskóli fyrir vél-
stjórnarnámið hér á landi.
Nám með 75 ára sögu að baki
Upphaf vélstjórnarnámsins í
Eyjum má rekja til áranna upp
úr 1940 þegar byrjað var að
bjóða svokallað „minna mótor-
námskeið“ í Vestmannaeyjum í
samstarfi við Fiskifélag Íslands.
Árið 1968 opnaði Vélskóli Ís-
lands útibúi í gömlu rafstöðinni
í Eyjum þar sem kennd voru tvö
stig vélstjóranáms, 1. stig sem
veitti 500 hestafla réttindi og 2.
stig sem veitti 1000 hestafla
réttindi. Árið 1979 þegar Fram-
haldsskólinn í Vestmannaeyjum
var stofnaður með samruna
Iðnskólans, Vélskólans og fram-
haldsdeilda Gagnfræðaskólans
í Vestmannaeyjum færðist vél-
stjóranámið þar inn og hefur
verið síðan.
Aðspurður segir Gísli að það
skipti miklu máli að bjóða upp á
vélstjórnarnám í Eyjum og
hann hafi ekki ennþá hitt þann
mann sem hafi dottið í hug að
stinga upp á því að flytja námið
eitthvað annað. „Hér snýst allt
um sjóinn og það er lykilatriði
fyrir atvinnulífið og samfélagið
hér að okkar fólk geti haldið
áfram að sækja sér þessa
menntun hér heima í Eyjum,“
segir Gísli.
Vélstjórnarbraut nauðsynleg
fyrir samfélagið í Eyjum
„Hér snýst allt um sjóinn og það er lykilatriði fyrir atvinnulífið og samfélagið hér að okkar fólk geti haldið
áfram að sækja sér þessa menntun hér heima í Eyjum,“ segir Gísli Eiríksson kennari við vélstjórnarbraut
Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum. Myndir: Óskar Pétur Friðriksson
M
en
n
tu
n
26