Ægir - 01.12.2015, Page 44
Nýja 10, 13 og 15 kg línan er þannig
hönnuð að hún viðheldur ferskleika
matvöru lengur en sambærilegar umbúðir.
Allt fyrir ferskleikann
60 x 40 kassalínan frá Tempru er hagkvæmari,
sterkari og tryggir lengra geymsluþol
Temprukassarnir sjá til þess að íslenskur fiskur
kemst ferskari til neytenda um allan heim.
Kostir nýju kassanna eru eftirtaldir:
aukin lengd og rúmtak leiða til betri meðferðar á afurðum
lengri fiskflök raðast betur innan kassa
meira rými er fyrir ís eða kælimottur
rúnnuð hornin auka einangrun og lengja geymsluþol
breytt hönnun á hornum gerir kassana sterkari en áður
stærð kassanna er 60 x 40 sm og staflast þeir betur á vörubrettin
vegna aukins styrks er hægt að stafla í hærri stæður en áður
betri einangrun næst með þéttari stöflun á bretti
Hitastig (°C) 5 mm fyrir ofan botn nýja 60x40 cm 10 kg
kassans eftir 6 klst. við 20 °C umhverfishita.
Fiskur
EPS
21
20
19
18
17
16
15
14
13
12
11
10
9
8
7
6
5
4
3
2
1
0
TEMPRA EHF – HLUTI AF RPC GROUP • Íshella 8 • 221 Hafnarfjörður • Sími: 520 5400 • tempra@promens.com • www.tempra.is
einangrun – umbúðir
„Koma Víkings AK 100 er mikill
áfangi fyrir HB Granda. Með
þessu ljúkum við uppstokkun á
uppsjávarskipastól fyrirtækis-
ins, erum með ný, vel búin og
glæsileg skip og lækkum veru-
lega meðalaldur skipa HB
Granda. Við sjáum fram á bæði
aukið hagræði í rekstri uppsjáv-
arskipanna og síðast en ekki
síst eru þessi skip mikið fram-
faraspor fyrir áhafnirnar,“ segir
Vilhjálmur Vilhjálmsson, for-
stjóri HB Granda hf. í tilefni af
komu nýs Víkings AK.
Áður gerði HB Grandi út þrjú
skip á uppsjávarveiðar; Faxa,
Ingunni og Lundey, auk þess að
hafa eldri Víking AK uppá að
hlaupa er þörf væri á. Systur-
skipin Víkingur og Venus munu
nú alfarið standa undir uppsjáv-
arveiðum fyrirtækisins.
„Það að skipin tvö eru ná-
kvæmlega eins skilar okkur ým-
is konar hagræðingu en þetta
eru líka mun stærri skip en við
vorum með áður og geta þar af
leiðandi tekið stærri farma, auk
þess að ganga hraðar. Þetta
skiptir okkur til dæmis tals-
verðu máli á kolmunnaveiðun-
um þegar lengra er að sækja á
miðin. Skipin eru líka af nýjustu
kynslóð uppsjávarskipa og
veigamesta breytingin í fyrir-
komulagi sú að afla er nú hægt
að dæla frá skut í stað síðu á
gömlu skipunum en aflameð-
ferð er öll betri en áður og á
þann hátt erum við að styrkja
enn frekar gæði framleiðslu
okkar með nýju skipunum.
Skipin eru líka búin öflugum
kælikerfum og stærð skipanna
gerir líka að verkum að hreyfing
er minni á aflanum í lestum og
á þann hátt er aflameðferðin
betri,“ segir Vilhjálmur og nefn-
ir jafnframt þá stóru breytingu
sem er á aðstöðu áhafna skip-
anna, hvort heldur litið er til
vinnuaðstöðunnar eða íbúða.
„Margir kannast við þær
myndir af uppsjávarskipunum
þegar sjór gengur yfir þau full-
lestuð en þessi skip eru há-
byggð og því allt aðrir og ör-
uggari vinnustaðir. Minni hreyf-
ing á skipunum í sjó er líka at-
riði sem skiptir áhöfnina veru-
legu máli,“ segir Vilhjálmur.
Í heild segir Vilhjálmur að 16
manna fastráðin áhöfn verði á
Víkingi AK. Reiknað er með að á
togveiðum verði 8 menn um
borð en 12 á nótaveiðum.
Heildarfjárfesting HB Granda
í þessum tveimur skipum er um
7 milljarðar króna.
Vilhjálmur Vilhjálmsson, forstjóri HB Granda
Hagræðing og framfaraspor
Fjölmenni tók þátt í formlegri móttökuathöfn á Akranesi skömmu fyrir
jól, skoðaði síðan skipið og þáði mat og hressingu um borð.
44