Ægir - 01.12.2015, Side 46
F
isk
istofn
a
r
Samkvæmt niðurstöðum haust-
ralls Hafrannsóknastofnunar er
árgangur ársgamals þorsks sá
sterkasti frá því mælingar hóf-
ust árið 1996. Rallið fór fram
dagana 7. október - 9. nóvem-
ber og var rannsóknarsvæðið
umhverfis landið allt niður á
um 1500 metra dýpi. Til rann-
sóknanna voru notuð tvö skip,
þ.e. rannsóknaskipið Árni Frið-
riksson RE og hins vegar togar-
inn Jón Vídalín VE, sem leigður
var til verkefnisins.
Markmið með mælingunni
að haustlagi er að styrkja stofn-
stærðarmat helstu botnlægra
nytjastofna á Íslandsmiðum.
Niðurstöður haustmælinganna í
ár og í fyrra benda til að vísitöl-
ur ýmissa annarra fiskitegunda
séu með þeim hæstu frá upp-
hafi mælinga. Eftir niðursveiflu í
ýsustofninum sýna niðurstöður
mælinga að árgangar 2014 og
2015 eru yfir meðalstærð.
„Mæling á magni ársgamals
þorsks (árgangur 2014) í stofn-
mælingunni í mars benti til þess
að árgangurinn væri sterkur og
er það staðfest í haustrallinu.
Mældist árgangurinn sá sterk-
asti frá því að mælingar hófust
árið 1996. Vísitölur þriggja til
sex ára þorsks, árganganna frá
2009-2012, mældust einnig há-
ar, en vísitala tveggja ára fisks,
þ.e. árgangsins frá 2013, mæld-
ist lág líkt og í stofnmælingunni
árið 2014 og í stofnmælingunni
í mars árið 2015. Fyrstu vís-
bendingar um árganginn frá
2015 gefa til kynna að hann sé
um meðalstærð, en það mun
skýrast betur að ári.
Meðalþyngdir fimm ára og
eldri þorsks eru nú yfir meðaltali
áranna 1996-2015, en um eða
undir meðaltali hjá þriggja og
fjögurra ára fiski. Mest fékkst af
þorski djúpt norðvestur, norður
og austur af landinu og á Þórs-
banka fyrir suðaustan land líkt
og undanfarin ár. Heildarmagn
fæðu í mögum allra lengdar-
flokka þorsks jókst frá árinu
2014 og var fæðumagnið svip-
að og á árunum 2008-2010. Síð-
an 2012 hefur magn loðnu í
þorskmögum verið mun lægra
en á tímabilinu 1996-2010. Líkt
og undanfarin ár var mest af
loðnu í þorskmögum út af vest-
anverðu Norðurlandi. Af annarri
fæðu má nefna ísrækju, rækju,
ljósátu, síld og kolmunna,“ segir
í niðurstöðum haustrallsins.
Ýsan hefur náð botninum
Niðursveifla ýsustofnsins hefur
komið illa við marga útgerðar-
aðila, ekki síst þá smæstu. Stofn-
vísitala ýsu hefur verið mjög
sveiflukennt síðustu ár, til að
mynda hækkaði hún í kjölfar
góðrar nýliðunar árin 2002-
2006 en lækkaði síðan ört
næstu fjögur árin þar á eftir.
„Meðalþyngd eftir aldri hefur
hækkað umtalsvert síðan 2010
og er yfir meðaltali hjá 2-8 ára
ýsu.
Mest fékkst af ýsu á grunn-
slóð fyrir Norðurlandi.“
Þorskstofninn í
uppsveiflu
46
Kíló af þorski
í togi í haust-
rallinu.