Morgunblaðið - 17.08.2016, Page 2
79 sóttu um búsetu í nýjum íbúðum
húsnæðissamvinnufélagsins Búseta,
en umsóknarfrestur rann út síðdegis
í gær. Alls voru í boði 68 íbúðir í ný-
byggingum Búseta og bárust um-
sóknir um kaup á 50 þeirra.
Alls bárust milli 450 og 500 um-
sóknir, en að sögn Gísla Arnar
Bjarnhéðinssonar, framkvæmda-
stjóra Búseta, sendu margir um-
sækjendur inn umsóknir um fleiri en
eina íbúð. 57 íbúðir voru í boði í nýrri
byggingu Búseta í Smiðjuholti, átta
raðhúsaíbúðir í Ísleifsgötu og fjórar
íbúðir á Laugarnesvegi.
Fjölbreytt úrval eigna
„Við erum bara mjög ánægð.
Þetta hefur reyndar dregist dálítið
hjá okkur og það er stutt í afhend-
ingu. Þá getur verið að það sé hluti
af fólkinu sem nær ekki að losa aðr-
ar skuldbindingar hjá sér fyrir af-
hendingu. Mér sýnist á öllu að þetta
sé samt framar vonum,“ segir Gísli
Örn. Einnig komi fyrir að umsækj-
endur standist ekki greiðslumat, al-
mennt hafi þeir þó undirbúið það.
„Auðvitað er það þannig, þegar þú
ert með svona stafla, að þú ert með
íbúðir sem eru á jarðhæðum eða vísa
út í götu og eru minna spennandi.
Þær fara yfirleitt seinna,“ segir
Gísli. Hann segir að stærstu eign-
irnar sem buðust nú hafi gengið út.
Aðspurður segir Gísli að með-
albúsetugjald íbúðasafns Búseta sé
um 150 þúsund krónur fyrir fjögurra
herbergja íbúð. Í ódýrustu eign-
unum sé það um 70 til 80 þúsund
krónur, en í þeim dýrustu geti það
verið allt að 300 þúsund krónur.
jbe@mbl.is
79 sóttu
um íbúðir
Búseta
Alls bárust á milli
450 og 500 umsóknir
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 2016
Þjóðlegt,
gómsætt
og gott hpflatkokur@simnet.is
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Haustið er sá árstími þegar nemendur á öllum
skólastigum streyma inn í skólana á ný eftir
sumarleyfi og í gær var nýnemadagur í Háskól-
anum í Reykjavík þar sem nýnemum gafst kost-
ur á að kynna sér skólann og fyrirkomulag
námsins þar.
Alls hefja um 1.500 nemendur nám í skólanum
í haust, þar af eru 200 erlendir nemendur og
hafa þeir aldrei verið fleiri.
Aftur á skólabekk eftir sumarfrí
Morgunblaðið/Golli
Áhugasamir nýnemar kynntu sér fyrirkomulag náms og kennslu í Háskólanum í Reykjavík í gær
Skúli Halldórsson
sh@mbl.is
Um 1.500 börn setjast í fyrsta sinn á
skólabekk í Reykjavíkurborg um
þessar mundir, en rúmlega 14.000
nemendur munu stunda nám í
grunnskólum borgarinnar á kom-
andi skólaári. Samkvæmt upplýs-
ingum frá Reykjavíkurborg er gert
ráð fyrir nokkurri fjölgun nemenda
á milli ára, þar sem árgangur barna
sem fæddust á árinu 2010 er nokk-
uð stór, líkt og árgangurinn þar á
undan, en til samanburðar hófu um
1.600 börn nám í fyrsta bekk á síð-
asta ári.
Húsnæði leikskólanna var víða
stækkað þegar þessir tveir árgang-
ar náðu leikskólaaldri. Því skapast
nú svigrúm til að taka inn fleiri
börn í leikskólana vegna fækkunar.
Verða því um tvö hundruð börn
yngri en tveggja ára innrituð nú í
haust, samkvæmt upplýsingum frá
Reykjavíkurborg.
Starfsfólk Norðlingaskóla hefur í
þessari viku heimsótt nemendur
skólans á heimili þeirra líkt og tíðk-
ast hefur frá stofnun hans árið
2004. Skólastjórinn Sif Vígþórs-
dóttir kom með hugmyndina austan
af Fljótsdalshéraði.
„Ég var skólastjóri Hallorms-
staðaskóla áður en ég tók þetta
verkefni að mér. Hverfið var enn að
byggjast þegar við hófum störf og
þannig var tækifæri fyrir skólana
til að hafa mjög mótandi áhrif á
samfélagið. Ég tók þá alls konar
sveitagildi með mér, og fyrir austan
höfðum við farið í svona heimsókn-
ir í fjölda ára.“
Tilgangurinn sé að sýna að sam-
skipti skóla og heimila geti virkað í
báðar áttir. „Tveir og tveir starfs-
menn fara á öll heimili í hverfinu,
sem eru nú um 390 talsins, við setj-
umst niður við eldhúsborðið með
foreldrum og börnum, förum yfir
hvað á daga þeirra hefur drifið yfir
sumarið og starfið á komandi vetri.
Með þessu myndast allt önnur og
betri tengsl.“
Nemendum fjölgar í haust
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Norðlingaskóli Mynd úr safni frá
setningu Norðlingaskóla.
14.000 nemendur
Öll börn í Norð-
lingaskóla heimsótt
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Næsti liður í áætlun stjórnvalda um
losun fjármagnshafta var kynntur í
fjármálaráðuneytinu síðdegis í gær.
Bjarni Benediktsson, fjármála- og
efnahagsráðherra, Sigurður Ingi Jó-
hannsson forsætisráðherra og Már
Guðmundsson seðlabankastjóri boð-
uðu þar lagafrumvarp sem lagt verð-
ur fyrir Alþingi í dag.
Tveir fasar í frumvarpinu
Frumvarpið felur í sér aðgerðir á
tveimur tímapunktum, við gildistöku
laganna og um næstu áramót.
Meðal þess sem ráðgert er að ger-
ist strax við gildistöku er að bein er-
lend fjárfesting innlendra aðila verði
gerð ótakmörkuð, en verði þó háð
staðfestingu Seðlabanka Íslands.
Einnig er lagt til að fjárfesting í fjár-
málagerningum útgefnum í erlendum
gjaldeyri, öðrum en peningakröfum í
erlendum gjaldeyri og fyrirfram- og
uppgreiðsla erlendra lána verði frjáls
upp að ákveðnu fjárhæðarmarki, að
uppfylltum tilteknum skilyrðum.
Einnig verður einstaklingum veitt
heimild til kaupa á einni fasteign er-
lendis á almanaksári óháð tilefni og
kaupverði og dregið úr skilaskyldu
innlendra aðila á erlendum gjaldeyri.
Þann 1. janúar 2017 verða meðal
annars fjárhæðarmörk hækkuð til
fjárfestinga í fjármálagerningum út-
gefnum í erlendum gjaldeyri, öðrum
peningakröfum í erlendum gjaldeyri
og fyrirfram- og uppgreiðslu erlendra
lána.
Heimildir einstaklinga til kaupa á
gjaldeyri í reiðufé verða líka rýmk-
aðar við gildistöku laganna og enn
frekar í byrjun næsta árs.
Reiðubúin fyrir útflæði
Már Guðmundsson, seðlabanka-
stjóri, sagði í samtali við mbl.is í gær,
að gjaldeyrisforði Íslands stæði í 721
milljarði króna í lok júlí og þar af
væru 475 milljarðar fjármagnaðir
innanlands. Miðað við spár seðla-
bankans um útflæði, 120 milljarða
króna við milt útflæði og milli 200 og
250 milljarða króna við þyngra út-
flæði, réðu bæði bankakerfið og gjald-
eyrisforðinn við aðgerðirnar.
Frosti Ólafsson, framkvæmda-
stjóri Viðskiptaráðs Íslands, sagði
frumvarpið bæði mikilvægt og lang-
þráð skref fyrir atvinnulífið. Aðgerðin
fæli í sér varfærnisleg en skynsamleg
skref og vonandi yrði þokkalega hröð
framvinda áfram í afléttingu haft-
anna.
Næsta skrefið í haftalosun
Næsti liður í afléttingu fjármagnshafta kynntur í gær Lagafrumvarp lagt fram
á Alþingi í dag Seðlabankastjóri segir gjaldeyrisforðann og bankana reiðubúna
Morgunblaðið/Golli
Kynning Afnám fjármagnshafta var kynnt á fundi í gær af þeim Má Guð-
mundssyni, Bjarna Benediktssyni og Sigurði Inga Jóhannssyni.
Prófkjöri Pírata í Norðvest-
urkjördæmi lauk í fyrradag. Efstur
á lista var kjörinn Þórður G. Pét-
ursson íþróttafræðingur og í næstu
sætum á eftir voru Gunnar Jökull
Karlsson, Eva Pandora Bald-
ursdóttir, Eiríkur Þór Theódórsson
og Gunnar Ingiberg Guðmundsson.
Alls tóku 95 manns þátt í kjörinu
en frambjóðendur voru 17. Enginn
hinna fimm efstu í kjörinu er Vest-
firðingur. Staðfestingarkosning
stendur nú yfir á landsvísu um það
hvort listinn verður samþykktur.
Henni lýkur 21. ágúst.
95 kusu á milli 17
frambjóðenda