Morgunblaðið - 17.08.2016, Blaðsíða 13
skoðun að við eigum að vinna saman
að uppbyggingu í ferðaþjónustu, að
það sé samstarf í samkeppninni, enda
vísa ég gestum oft á annan rekstur í
bæjarfélögunum hér í kring,“ segir
Sigurður.
Þær sýningar sem opnaðar
verða í nýja vita á næstu vikum eru
Norðurslóðasýning RAX, ljósmynd-
arans Ragnars Axelssonar, hvalasýn-
ing með teikningum Jóns Baldurs
Hlíðberg og vitasýning með ljós-
myndum og frásögum af vitum Suð-
urnesja og þeim helstu á landsbyggð-
inni. Önnur hús sem verða og eru nýtt
nú þegar eru vitavarðarhúsið, sem
enn um sinn er bara vinnusvæði, fjós-
ið og hlaðan, sem hýsa Byggðasafnið í
Garði, en í enda hlöðunnar verður
norðurljósahvelfing.
„Í stóra sal safnahússins verður
sett upp safn hafsins, þar sem lögð
verður áhersla á að segja þá sögu sem
var hér, hvernig lífsbaráttan var, ára-
bátarnir sem voru að farast hér, einn-
ig vinnan og vinnslan, þannig að fólk
sem kemur hingað skilji þennan þátt í
sögunni. Þegar bátarnir voru vél-
væddir jukust líkurnar á því að menn
lifðu róðurinn af og kæmust í land og
það er í raun okkar iðnbylting. Í þessu
sambandi er hægt að tengja við véla-
safn Guðna Ingimundarsonar í
Byggðasafinu,“ segir Sigurður.
Norðurljós á himni eða í
kvikmynd í hvelfingu
Til viðbótar við norðurljósa-
hvelfinguna verður norðurljósasafn
og segir Jóhann verða bása sem fólk
verði leitt í gegnum. „Í annarri hlið
aðalsalarins verður saga norðurljós-
anna rakin, þ.e. hvernig þau verða til,
sólin, sólvindarnir, litir norðurljós-
anna og hvernig þetta allt gerist og
svo hvolf þar sem hægt verður að
horfa á flottar kvikmyndir af æðisleg-
um norðurljósum. Vonandi úti líka.
Þetta verður mjög skemmtilegt, ekki
síst á sumrið þegar engin eru norður-
ljósin,“ segir Jóhann. Sigurður bætir
því við að séu engin norðurljós að
vetri geti fólk byrjað í norðurljósa-
hvelfingunni, en það síðan látið vita
um leið og norðurljós birtast á himni
og fengið þannig meira út úr heim-
sókninni.
Búið er að stækka veitinga-
aðstöðuna frá því sem áður var, hún
verður nú á allri efri hæðinni en á
stórum hluta neðri hæðarinnar, sem
skapaðist við breytingar á húsinu, er
hugmyndin að hafa móttöku og
minjagripaverslun. Styrkur fékkst úr
Framkvæmdasjóði ferðamannastaða
til að byggja ný salerni, svo þeim
verður fjölgað og aðgengi verður að
salernum utan frá. Að auki verður sal-
ernishúsið, sem hefur þjónað tjald-
svæði og gestum, lagfært. Þá stendur
til að opið verði á öllu svæðinu allt ár-
ið, þó að kanna þurfi hvort það borgi
sig að hafa kaffihúsið opið á veturna á
í gamla vita. „Við þurfum að láta
rekstur þess ráðast af eftirspurn. Við
sjáum jafnvel fyrir okkur að leigja vit-
ann út til minni hópa ef eftirspurn
verður eftir slíku,“ segir Jóhann.
Í lok samtalsins má heyra að Jó-
hann og Sigurður búa yfir marg-
víslegum hugmyndum um annan
rekstur svæðisins, sem bæði tengist
göngustígum sem fyrir eru, hlaðna
steingarðinum sem sveitarfélagið
dregur nafn sitt af, bílastæðum og
svæðisskipulaginu eins og það er í
dag.
Inngangur Áfast við gamla vita er hús sem var nýtt sem varðhús fyrir vitavörðinn. Um tíma bjó
þar 5 manna fjölskylda en nú er húsnæðið inngangurinn í vitann og stærsta rými kaffihússins.
Framtíðin Gestir horfa yfir svæðið og þau hús sem munu hýsa sýningar, söfn og veitingastaði.
Þeir sem nota þjónustu kaffihússins geta farið upp í vitann, en annars þurfa gestir að borga.
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 2016
Q3 vekur eftirtekt
HEKLA · Laugavegi 170-174 / Audi.is
Nýr Audi Q3 er vel útbúinn, lipur og svipmikill.
Hann er skilvirkur og sportlegur, á sama tíma
rúmgóður að innan en smágerður að utan.
Audi Q3 er byggður fyrir nýjar væntingar.
Verð frá 6.190.000 kr.
Gamli vitinn er næstelsta steinsteypuhús landsins, byggður 1897 og
einnig næstelsti viti landsins. Hann er merkilegur í sögu Sveitarfé-
lagsins Garðs og prýðir merki þess. Fyrir tilkomu hans var hlaðin varða
til leiðarvísis sjófarendum, eins og segir í sögu Garðs, Undir Garð-
skagavita: „Bygging vitans var merkisviðburður, sem ber hátt í hugum
þeirra Garðbúa sem þess minnast …] Ljós Garðskagavita sló bjarma á
nágrennið, þar sem menn notuðust við ófullkomin olíuljós og lýsis-
lampa og utanhússlýsing var engin.“
Nýi vitinn var byggður árið 1944 vegna ágangs sjávar við gamla vit-
ann sem olli því að fór að grafast undan honum sem skapaði hættu fyrir
vitavörð. Síðar var fuglarannsóknarstöð komið á fót í gamla vitanum að
tilhlutan Náttúrugripasafnsins, enda svæðið auðugt að fuglalífi. Um-
hverfið hans var þá lagað og hefur það verið gert margoft síðan. Ljós-
húsið var tekið niður þegar gamli vitinn hætti að þjóna sem leiðarvísir
sjófarenda. Nýi vitinn hefur undanfarið verið nýttur í alls kyns viðburði,
m.a. á listahátíðinni Ferskir vindar í Garði og stutt er síðan tónlistarfólk
tók þar upp lag. Í bígerð er að opna þrjár sýningar í vitanum. Nýi Garð-
skagaviti er hæsti viti landsins.
Ljóshús var sett á gamla vitann fyrr á árinu fyrir atbeita Vitafélags-
ins, sem er áhuga- og grasrótarfélag um íslenska strandmenningu og
var vitanum þar með komið í fyrra útlit.
Merki sveitarfélagsins
UM GARÐSKAGAVITA