Morgunblaðið - 17.08.2016, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 2016
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Fagurt Flösin kaffihús, The Old Lighthouse Cafe, er í fögru umhverfi.
Svanhildur Eiríksdóttir
svei@simnet.is
Jóhann Ísberg og SigurðurÞorsteinsson gerðu á vordög-um samning við Sveitarfélag-ið Garð varðandi uppbygg-
ingu á Garðskaga. Svæðið er eitt hið
allra vinsælasta á landinu fyrir fugla-
skoðun, sjósund og útivist af ýmsum
toga. Fáttítt er að svæði sem þessi
bjóði upp á salernisaðstöðu, en sú er
raunin við Garðskaga og því engan
sóðaskap að finna þar. Fyrirhugað er
að byggja upp frekari salernisaðstöðu
við nýtt veitingahús, sýningarsali og
Byggðasafn.
Það sem hefur verið tekið í notk-
un nú er kaffihús í gamla vitanum,
þar sem veggir halda vel utan um
gesti. Innanmál veggjanna er ein-
ungis 3,35 metrar og stigi er við alla
veggi sem tekur sitt pláss. Kaffihúsið
er á fjórum hæðum og á þremur
þeirra er einungis rými fyrir eitt borð
og fjóra stóla við hvert þeirra. Þess
má geta að eldhúsið er ekki nema 5,5
fermetrar. Þeir sem ekki treysta sér
eða komast ekki í bratta stigana sem
liggja alveg upp í ljóshús geta setið
úti við á góðviðrisdögum.
Mikil vinna hefur farið í endur-
bætur á vitanum sem var í mikilli nið-
urníðslu en er nú mikil prýði. Und-
irbúningi er lokið fyrir uppsetningu
þriggja sýninga í nýja vita, veitinga-
hús fer í gang á næstu vikum og
framkvæmdir eru að hefjast við sýn-
ingarrými fyrir sögusýningu og norð-
urljósasýningu. En hvernig hófst
þetta ævintýri?
„Þetta hófst eiginlega fyrir rúm-
lega 10 árum þegar ég þróaði, ásamt
tveimur öðrum, tækni við að kvik-
mynda norðurljósin alveg eins og þau
eru, sem ekki hafði verið hægt fram
að því. Upp úr því varð til markaðs-
verkefnið „Seljum norðurljósin“ þar
sem einblínt var á Evrópu en margir
hristu hausinn yfir og sögðu að það
væri ekki hægt að selja eitthvað sem
ekki sést. Í dag eru norðurljósin
helsta söluvaran í íslenskri ferðaþjón-
ustu. Svo þegar bæjarstjórnin og
sveitarstjóri hér fóru að huga að því
hvað ætti að gera við þetta svæði hér,
sem m.a. er mikið sótt í til að skoða
norðurljós, þá æxluðust málin þannig
að við tókum að okkur að gera stefnu-
mótun fyrir sveitarfélagið,“ segir Jó-
hann.
Sögur úr Garði viðbót við
kaffisopann
Tvö ár eru síðan Jóhann og Sig-
urður byrjuðu á stefnumótuninni og
þá komu fram hugmyndir um hvernig
þeir vildu nýta húsin, svæðið og norð-
urljósin við Garðskaga. Rætt var við
nokkra aðila um aðkomu að rekstr-
inum því ekki þótti skynsamlegt að
bjóða reksturinn út heldur vildu
menn frekar einblína á að þeir sem
tækju verkið að sér hefðu þekkingu á
verkefninu. Fór á endanum svo að
þeir félagar tóku verkefnið upp á sína
arma, enda fullir af hugmyndum um
möguleika svæðisins. Samningar þess
efnis voru undirritaðir fyrr á árinu og
þá hófust framkvæmdir. Fram-
kvæmdum við kaffihús í gamla vita er
lokið og það er komið í notkun og hef-
ur fengið frábærar viðtökur. Bæði
heimamenn og gestir eru ánægðir
með framtakið.
„Þegar fólk kemur hingað og
sest svo niður og fær sér kaffi þá segj-
um við því oft sögur héðan úr Garði.
Fólki finnst þetta mjög gaman og
þetta gerir ferðalagið skemmtilegra.
Ég lít þannig á að þessi viðbót í ferða-
þjónustu eigi eftir að styrkja allt
svæðið, ekki bara Garð. Það er mín
Fjögurra hæða kaffi-
hús í Garðskagavita
Mikil uppbygging er fyrirhuguð á Garðskaga. Fyrr í sumar var opnað kaffihús í
gamla vitanum og á næstu vikum og mánuðum heldur uppbyggingin áfram. Sýn-
ingar verða opnar í nýja vitanum, norðurljósasýning, sögusýning og veitingahús í
félagi við Byggðasafnið í stóru húsnæði í nálægð nýja vitans.
Restraraðilar Garðskaga Jóhann Ísberg og Sigurður Þorsteinsson í ljós-
húsinu á toppi vitans með Þórðarflös í baksýn.
Eldhúsið Öllu er haganlega fyrir komið. Notalegt Þröngt mega sáttir sitja – Notaleg stund í kaffihúsinu.
Hvað er molta? Hvernig get ég nýtt
greinarusl og illgresi til að bæta jarð-
veginn í garðinum? Mega allir mat-
arafgangar fara í safnhauginn?
Hvernig notar maður ánamaðka í
moltugerð? Þessum spurningum og
mörgum öðrum verður svarað kl.
19.30 í kvöld, miðvikudag 17. ágúst, í
Grasagarði Reykjavíkur í fræðslu-
göngunni „Margt býr í moltunni –
Moltugerð og ánamaðkar“.
Jóna Valdís Sveinsdóttir yfirgarð-
yrkjufræðingur og Svavar Skúli Jóns-
son, garðyrkjufræðingur hjá Grasa-
garðinum, leiða gönguna, svara
spurningum og kenna þátttakendum
réttu handtökin við moltugerðina.
Fræðsla á kvöldgöngu í Grasagarði Reykjavíkur
Margt býr
í moltunni
Fræðsla Hvað býr í moltunni?
Þeir sem halda utan um stigatalninguna í spilamennsku verða
oft að halda vel á spöðunum til að geta greint kappsömum og
oft óþreyjufullum meðspilurum frá stöðunni, stundum í miðju
spili. Stigateljarar þurfa vitaskuld að taka sér tíma og vanda
vel til verka. Meðan á talningunni stendur halda hinir oft niðri í
sér andanum af spenningi og stara á þá stífum augum – sem
getur verið afar taugatrekkjandi.
Þetta hlutskipti getur verið erfitt og þeir sem taka að sér að
telja stigin fá ekki endilega miklar þakkir fyrir. En fátt er svo
með öllu illt að ei boði gott
eins og komið hefur á daginn
með appinu Rounds, sem
stigateljurum ætti ekki að vera
skotaskuld úr að hlaða niður í
snjallsímann eða spjaldtölvuna
sína. Að því búnu þurfa þeir
aðeins að slá inn nöfn þeirra
sem taka þátt í spilinu og birt-
ist þá skífa á skjánum með
nöfnunum og einnig neðst í
hægra horni.
Á myndinni sést að þær
stöllur Margrét, Guðrún og
Björg eru að spila spil saman,
skrafl að þessu sinni, en þær spila reyndar alls konar spil. Fái
Margrét 12 stig þá leggur sá sem sér um stigagjöfina fingurinn
á nafn hennar og færir hann annaðhvort upp eða niður með-
fram skífinni eftir því hvort hún hefur fengið plús- eða mín-
usstig. Í næstu umferð er sömu aðferð beitt til að telja stigin,
og bætast nýju stigin þá við eða dragast frá. Einfalt og þægi-
legt.
Með Rounds getur stigateljarinn einbeitt sér að spila-
mennskunni þótt hann þurfi að upplýsa meðspilara sína annað
slagið um hvernig leikar standa.
Rounds er ókeypis app í Google Play Store og aðeins að-
gengilegt fyrir þá sem nota Android-stýrikerfið að svo stöddu.
Rounds er ókeypis app á Google Play Store fyrir þá sem nota Android-stýrikerfið
Stigatalningin verður leikur einn
App Rounds til að telja stigin í spilum.
Skrafl Oft getur verið flókið
að telja stigin í skrafli.
Morgunblaðið/Kristinn
Gestum Laugardalslaugar býðst að
fara í jóga í vatni á fullu tungli við
nýtt tónlistarflæði frá DJ Yamaho
kl. 19-20 í kvöld, miðvikudag 17.
ágúst. Í lokin verður hugleiðsla í
grunnu lauginni þar sem fólk tekur
inn heillandi tóna gongsins undir
berum himni. Allir eru velkomnir,
ungir sem aldnir og byrjendur sem
reyndir jógaiðkendur.
Endilega …
… prófið jóga í vatni á fullu tungli
Tungl Jóga í vatni og gonghugleiðsla.