Morgunblaðið - 17.08.2016, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 2016
Raðauglýsingar
Félagsstarf eldri borgara
Árskógar 4 Opið hús, spilað vist og brids kl. 13-16. Æfing í pútti og
úti-botsía í og við púttvöllinn kl. 10.30-11.30.
Boðinn Handavinnustofa opin.
Dalbraut 18-20 Verslunarferð í Bónus kl. 14.40.
Félagsheimili Gullsmára Ganga kl. 10, kvennabrids kl. 13, púttmót
kl. 13.45. Hárgreiðslustofa og fótaaðgerðastofa á staðnum.
Garðabær Brids í Jónshúsi kl.13. Innritun á námskeið fyrir eldri
borgara, haustönn 2016. Fimmtudaginn 18. ágúst er innritað í vatns-
leikfimi kl.10. Föstudaginn 19. ágúst er innritað í línudans, qi gong,
málun, trélist, glermótun og saum. Þriðjudaginn 23. ágúst er innritað
í karlaleikfimi, kvennaleikfimi og botsía. Þátttakendur verða að mæta í
Jónshús og skrá sig eða senda einhvern fyrir sig.
Gjábakki Handavinna kl. 9, félagsvist kl. 13.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8-16, morgunkaffi og
spjall til kl. 10.30, dagblöðin og púsl liggja frammi, morgunleikfimi kl.
9.45, matur kl. 11.30. Létt ganga um nágrennið kl. 14, kaffi kl. 14.30.
Skráning í Borgarfjarðarferð miðvikudaginn 24. ágúst stendur yfir.
Nánari upplýsingar á staðnum eða í síma 535-2720. Allir velkomnir.
Hæðargarður 31 Við hringborðið kl. 8.50, púttvöllurinn er opinn,
síðdegiskaffi kl. 14.30. Ferð á Reykjanesið miðvikudaginn 31. ágúst.
Allir velkomnir með óháð aldri og búsetu, nánar í síma 411-2790.
Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, trésmiðja kl. 9-12, morgunleik-
fimi kl. 9.45, viðtalstími hjúkrunarfræðings kl. 10-12, upplestur kl.11,
félagsvist kl. 14, ganga með starfsmanni kl. 14, Bónusbíllinn kl. 14.40,
heimildarmyndasýning kl.16.
Selið, Sléttuvegi 11-13 Allir velkomnir á Sléttuveg óháð aldri og
búsetu. Opið er kl. 10-14. Matur er afgreiddur kl. 11.30-12.30. Nánari
upplýsingar og matarpantanir á opnunartíma í síma 568-2586.
Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum alla daga kl. 10.30. Vatnsleikfimi í
sundlauginni kl. 18.30. Ath. Þeir sem skráðir eru í ferðina á morgun þá
verður lagt af stað frá Skólabraut kl. 13.
Vitatorg Dansað verður í dag með Vitatorgsbandinu kl. 14. Allir vel-
komnir í dansinn.
Félagslíf
Samkoma kl. 20 í Kristni-
boðssalnum. Ragnheiður
Guðmundsdóttir segir frá les-
trarverkefni í Eþíópíu. Hugvekja:
Karl Jónas Gíslason.
Allir velkomnir.
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
IðnaðarmennByggingavörur
TIL SÖLU
Mótabitar / dokabitar:
1400m lítið notaðir 20x4,90 dokabitar
Guðmundur sími 893-0003
Ýmislegt
TILBOÐ - TILBOÐ - TILBOÐ
Bjóðum þessa vönduðu dömu og
herraskór með 30 - 40 % afslætti.
Stakar stærðir. Margar fleiri
gerðir og litir.
Komið og gerið góð kaup!
Laugavegi 178
Sími 551 2070.
Opið mán.-fös. 10–18,
Sendum um allt land
Erum á Facebook.
Vélar & tæki
Vinnulyftur ehf.
Eigum á lager nýjar skæralyftur frá
Skyjack og bómulyftur frá Niftylift.
eyvindur@simnet.is, sími 774 2501.
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Bílaleiga
HÓPFERÐABÍLAR TIL LEIGU
með eða án bílstjóra.
--------16 manna--------
--------9 manna---------
Fast verð eða tilboð.
CC.BÍLALEIGA S. 861 2319.
Húsviðhald
mbl.is
alltaf - allstaðar
Skráðu þig í iPad-áskrift á
www.mbl.is/mogginn/ipad/
Nú geta allir fengið
iPad-áskrift
Elsku afi okkar.
Það er með miklum
söknuði sem við skrif-
um þessi orð en á
sama tíma er yndislegt að rifja
upp þær góðu stundir sem við átt-
um saman.
Jafn djúpan viskubrunn var
erfitt að finna. Einhvern veginn
hafðir þú alltaf svör við öllum
þeim spurningum sem á okkur
brunnu. Þú hvattir okkur áfram í
öllu sem við tókum okkur fyrir
hendur, hvort sem það var í leik
eða starfi. Settist niður með okk-
ur í rólegheitum og fórst yfir mál-
in. Það verður erfitt að hafa ekki
afa á Hjallabrautinni til að fá okk-
ur kaffi með og spjalla um lífið og
tilveruna. Á þeim stundum var
ekki langt í gulu kökuna góðu og
hina ljúffengu Werthers Original-
brjóstsykursmola.
Það sem þú hafðir gaman af
Patreki Þór og Tómasi Inga, lang-
afastrákunum þínum, er ómetan-
Magnús Ingi
Sigurðsson
✝ Magnús Ingi Sig-urðsson fæddist
6. september 1930.
Hann lést 31. júlí
2016. Útför Magn-
úsar fór fram 9.
ágúst 2016.
legt. Þeir eru
heppnir að hafa
kynnst þér og
höfðu þeir alltaf
jafn gaman af því
að hitta langafa
Magnús.
Sunnudagsmat-
urinn hjá mömmu
og pabba verður
ekki sá sami án
þín, elsku afi.
Þín barnabörn,
Magnús Ingi, Mar-
grét Ásta, Sveinn og
Þórhildur María.
Með þessum orðum langar mig
að minnast Magnúsar Inga Sig-
urðssonar mágs míns. Ég kynnt-
ist Magnúsi þegar ég og Benedikt
bróðir hans stofnuðum heimili
okkar.
Magnús var tvíkvæntur. Það
var mikið áfall þegar hann missti
fyrri konu sína, Margréti Herthu
Friðriksdóttur, fædd Reiss, frá
þrem ungum dætrum. Einn son,
nokkurra mánaða gamlan, höfðu
þau misst. Seinni kona Magnúsar
var Ásta Sveinsdóttir og gekk
hún dætrum hans í móður stað og
sýndi hún þeim mikla ást og kær-
leika. Hún var ekkja og átti þrjár
uppkomnar dætur sem Magnús
reyndist afar vel. Ásta dó árið
2010 og var það honum mikill
missir. Það var alltaf ánægjulegt
að koma til Magnúsar og Ástu, því
bæði voru þau höfðingjar heim að
sækja.
Nær allan hluta starfsævi sinn-
ar var hann framkvæmdastjóri
fjölskyldufyrirtækisins Sigurður
Elíasson hf. Rúmlega sextugur
gekkst hann undir mikla hjarta-
aðgerð og var það kraftverk að
hann lifði hana af. Hin síðustu ár
hafa verið Magnúsi erfið og hafa
dætur hans annast hann af mikilli
elsku. Hann fann og mat mikils
umhyggju þeirra allra, dætra og
stjúpdætra.
Magnús var góður og réttsýnn
maður. Hann var vel lesinn og átti
mikið og gott safn bóka, hafði
yndi af klassískri tónlist og mik-
inn áhuga á sögu og raungreinum.
Þeir bræður, Magnús og Bene-
dikt, áttu oft langar samræður um
sameiginleg áhugamál og er þess-
ara stunda saknað.
Nú þegar sumarið skartar sínu
fegursta hefur hann farið í sína
hinstu för. Ég þakka Magnúsi
Inga alla elskusemi hans í minn
garð. Hans verður sárlega sakn-
að.
Ég sendi dætrum hans og
stjúpdætrum og fjölskyldum
þeirra og eftirlifandi systkinum
hans og öðrum ættingjum mína
dýpstu samúð.
Hvíldu í Guðs friði, kæri mág-
ur.
Ólöf Sif.
✝ Sigvaldi Hlöð-ver Gunn-
arsson fæddist í
Skjaldartröð á
Hellnum, Breiða-
víkurhreppi, Snæ-
fellsnesi 15. sept-
ember 1934. Hann
lést á Hrafnistu í
Reykjavík 29.
mars 2016.
Foreldrar hans
voru Gunnar Ing-
ólfur Kristófersson, bóndi í
Skjaldartröð, f. 28. júní 1901,
d. 17. júlí 1987, og Málfríður
Einarsdóttir frá Þórodds-
stöðum í Ölfusi, Árnessýslu, f.
30. mars 1900, d. 12. apríl
september 1944. 3) Kristófer,
f. 24. september 1937, kvænt-
ur Theódóru Aldísi Sigurðar-
dóttur, f. 22. apríl 1939. 4)
Magnea, f. 2. maí 1940, gift
Sigurði Garðari Gunnarssyni,
f. 24. júlí 1938. 5) Sigurvin
Gestur, f. 27. mars 1945. Upp-
eldisbróðir systkinanna var
Hinrik Eiríksson, f. 30. sept-
ember 1921, d. 15. október
1992. Kona hans var Kristín
Jónsdóttir, f. 14. júní 1923, d.
8. júlí 1995.
Eftirlifandi sambýliskona
Sigvalda er Ingibjörg Að-
alheiður Jónsdóttir, f. 27.
september 1927. Sonur þeirra
er Halldór Guðni, f. 20. des-
ember 1966, rafeindavirki og
kennari í Tækniskólanum.
Útför Sigvalda fór fram frá
Lágafellskirkju 12. apríl sl. að
viðstöddum nánustu ætt-
ingjum.
1971. Sonur Mál-
fríðar var Einar
Valberg Sigurðs-
son, f. 9. febrúar
1930, d. 14. febr-
úar 2003. Kona
Einars var El-
ísabet Ottesen
Magnúsdóttir, f.
28. október 1929,
d. 15. nóvember
1986. Alsystkini
Sigvalda eru: 1)
Hermann Áskell, f. 15. sept-
ember 1934, kvæntur Guð-
björgu Grétu Bjarnadóttur, f.
28. júní 1940. 2) Hjálmar, f.
23. september 1937, kvæntur
Guðrúnu Erlu Melsted, f. 18.
Sigvaldi hefur kvatt okkur.
Hann fór að heiman 15 ára gam-
all, hugurinn stefndi til sjós. Þá
réð hann sig á bát frá Ólafsvík og
var þar á fleiri bátum í fimm ár. Á
þeim tíma fór hann í Vélskólann
og náði sér í vélstjóraréttindi fyr-
ir fiskibáta. Síðan lágu leiðir Sig-
valda víða. Á togurunum Heima-
skaga og Bjarna Ólafssyni frá
Akranesi, Austfirðingi og Júlí. Á
þessum árum sigldu togararnir
með aflann á markað í Bretlandi
og Þýskalandi. Hann fékk samt
nóg af þessum togaratúrum og
fór aftur til Ólafsvíkur.
Árið 1958 réð hann sig sem
vélstjóra á bátinn Glað. Síðan fór
hann á nýjan 80 tonna bát, Stein-
unni, sem var smíðaður á Akur-
eyri og fóru þeir beint á síldar-
veiðar. Árið 1960 fór Sigvaldi í
Stýrimannaskólann og tók þar
fiskimannapróf. Hann var svo
áfram á Steinunni sem vélstjóri
til ársins 1963 en þá fór hann í
Iðnskólann og lærði húsgagna-
og innréttingasmíði. Meistari
hans var Jón S. Sigurðsson.
Næstu árin vann hann við iðn-
grein sína, mest við það að gera
við gömul húsgögn sem þurfti að
slípa og pólera og gera sem ný.
Síðan fór hann að vinna í Völundi
við hurðaframleiðslu.
Árið 1975 fór Sigvaldi að finna
fyrir þeim sjúkdómi sem gerði
honum erfitt að stunda vinnu en
það var vöðvarýrnunarsjúkdóm-
urinn MND. Lét hann þá gamlan
draum rætast sem hafði blundað
með honum frá því hann var að
snúast í kringum meistarana Ás-
grím og Kjarval í fjörunni á
Hellnum. Hann keypti trönur,
pensla og liti og fór að mála.
Margar myndir frá sömu stöðum
og meistararnir höfðu notað. Á
uppvaxtarárum Sigvalda og okk-
ar bræðranna var fjaran aðalleik-
svæðið.
Þangað var farið strax að
morgni. Vorum við að veiða, klífa
í klettum, ná í egg og róa árabát-
um meðfram ströndinni. Einn
morgun kallaði Kjarval á okkur
en hann var þá að mála í Hellna-
fjöru. Vildi hann hafa okkur með
á mynd sem hann var að byrja á.
Hann stillti okkur upp í röð með
Valasnösina í baksýn og þar stóð-
um við fjórir bræður ásamt ein-
um frænda okkar mestan part úr
degi. Þessi mynd var síðar ljós-
prentuð og er víða sýnileg á op-
inberum stöðum. Kjarval nefndi
myndina „Það er gaman að lifa“.
Það kom snemma í ljós hvað
Sigvaldi var vandvirkur og lag-
hentur. Hann smíðaði úr rekavið
bæði skipa- og flugvélamódel.
Síðar, eftir að Halldór sonur hans
var búinn að læra rafeindavirkj-
un, smíðuðu þeir feðgar stærri
flugmódel með mótor og fjarstýr-
ingu, fundu svo heppilegan stað
fyrir utan borgarmörkin. Þar
létu þeir módelin fljúga og nutu
þessa sameiginlega áhugamáls.
Fyrir þremur árum greindist
Sigvaldi með alzheimersjúkdóm-
inn sem sífellt ágerðist. Þá gat
verið erfitt að ræða við hann um
líðandi stund, hann sagði ekki
mikið, en æskustöðvarnar voru
honum enn ofarlega í huga.
Já, Sigvaldi hefur kvatt okkur.
Hann lést á Hrafnistu 29. mars
eftir að hafa barist nokkra daga
við skæða lungnabólgu.
Fyrir hönd okkar systkinanna
og fjölskyldna sendum við Heiðu
og Halla innilegar samúðarkveðj-
ur.
Kristófer Gunnarsson.
Sigvaldi Hlöðver
Gunnarsson
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar
en á hádegi tveimur virkum dög-
um fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi). Þar
sem pláss er takmarkað getur
birting dregist, enda þótt grein
berist áður en skilafrestur renn-
ur út.
Lengd | Minningargreinar sem
birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt
að senda lengri grein. Lengri
greinar eru eingöngu birtar á
vefnum.
Minningargreinar