Morgunblaðið - 17.08.2016, Blaðsíða 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 2016
„Það er okkar reynsla að þetta fell-
ur í kramið hjá öllum aldurs-
hópum.“
Dreifast út um allan heim
Meðlimir hljómsveitarinnar dreif-
ast um heiminn þegar þeir eru ekki
saman að spila, en Kristján og Guill-
aume halda til í Amsterdam og
Dominykas býr í Litháen. Hinir eru
á Íslandi en þeir starfa allir í tón-
listinni á sínum vettvangi.
Kristján og Guillaume eiga þó
fjölskyldur hér á landi og koma því
oft í fríum og þá grípur sveitin oftar
en ekki í hljóðfærin saman. Hún fer
einnig utan að spila; hefur til að
mynda farið í þrjár tónleikaferðir til
Litháen þar sem Dominykas er á
heimavelli.
„Það er alltaf hægt að finna út úr
þessu og hittast – þetta er góð leið
til að halda hópinn að námi loknu,“
segir Andri.
Tónleikar GAMA í kvöld
Í kvöld heldur einn meðlimur
sveitarinnar tónleika á Rosenberg
kl. 21 undir listamannsnafninu
GAMA, en það er Guillaume
Heurtebize. Hann fær aðstoð Andra
og Kristjáns, sem spila munu á
kontrabassa og harmonikku á með-
an Guillaume spilar á gítar. Miða-
verð er 1.500 krónur.
Þar hyggst Guillaume sýna trúba-
dorshliðarsjálf sitt, eins og segir í
tilkynningu, en hann mun leika lög
af fyrstu plötu sinni, La Pieuvre, og
leiða áhorfandann í súrrealískan
flótta undan kolkrabba tímans, en
eftir honum er platan nefnd. Á leið-
inni til tunglsins bregður fyrir
geislavirkum spámanni, sofandi
börnum og einmana samloku og
greina má rakspíralykt af Boris Vi-
an, Jean Cocteau og Django Rein-
hardt, segir í lýsingu á tónleikunum.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
Guillaume spilar á Íslandi en hann
hefur þó aldrei komið fram undir
nafninu GAMA áður.
„Ég hef þrýst á hann í svolítinn
tíma að frumflytja þetta – hann er
svo hógvær og hefur ekki komið sér
í að spila þetta hér á Íslandi áður,“
segir Andri léttur í bragði en tón-
listin sé frábær og því hafi hann
lagt hart að honum að boða til tón-
leika. „Þetta er mjög súrrealískt á
köflum og skemmtilegt – tónlistin
er aðgengileg og fjölbreytt.“
Hægt er að nálgast plötu Secret
Swing Society á netinu, þ.e. á
Spotify-tónlistarveitunni og annars
staðar, ásamt helstu hljómplötu-
búðum á landinu. Plötu Guillaume
má einnig nálgast á Spotify.
dags búningi
Morgunblaðið/Eggert
teiknimyndum sem hafa verið
bannaðar innan 16 ára, en fram-
leiðendur myndarinnar segja
hana alls ekki hugsaða fyrir börn.
Leikstjórar eru Greg Tiernan og
Conrad Vernon, en meðal leikara
eru Seth Rogen, Kristen Wiig, Jo-
nah Hill, Bill Hader, Michael
Cera, James Franco, Edward
Norton, Paul Rudd og Salma Ha-
yek.
Rotten Tomatoes: 82%
Metacritic: 67/100
Hell or High Water
Bræður tveir ákveða að ræna
nokkra banka til þess að bjarga
fjölskyldubýli sínu í Texas. Lög-
regluyfirvöld eru ekki ánægð með
tilburði tvímenninganna og reyna
allt til þess að handsama þá. Leik-
stjórn er í höndum David Macken-
zie en með aðalhlutverk fara Jeff
Bridges, Chris Pine, Ben Foster
og Gil Birmingham.
Rotten Tomatoes: 83%
Metacritic: 86/100
Ævintýri Pete’s Dragon segir sögu af dularfulla drekanum Elliott.
Gróf Sausage Party er bönnuð
börnum innan sextán ára.
Allskonar ást er viðfangs-efni bókarinnar Ást-arsögur íslenskra kvennasem inniheldur 48 frá-
sagnir úr raunveruleikanum, eins
og stendur framan á bókarkápu.
Sögurnar eru sagðar af konum á
öllum aldri, þær gerast á mismun-
andi tímum og aðstæðurnar eru af-
ar ólíkar.
Til dæmis kemur stefnumóta-
forritið Tinder nokkuð við sögu, ein
sagan hefst með
kynnum pars á
Einkamál.is, önn-
ur byrjar í Leifs-
stöð. Skemmt-
analíf og
sveitasæla, Litla-
Hraun og Papa-
ball á Nasa. Svo
er það sjómað-
urinn úr Eyjum, ástralski hermað-
urinn og maðurinn sem gúffaði í
sig flennistórri marengstertusneið
á fyrsta stefnumóti. Ef einhver
rauður þráður er gegnumgangandi
í þessum ólíku sögum þá er það að
ástin býr í öllum aðstæðum. Hún
þekkir engin landamæri og getur
kviknað hvar sem er.
Bara sisona. Annað sem segja
má að einkenni allar sögurnar er
hversu miklir gerendur sögukon-
urnar eru í sínum ástarsam-
böndum. Ef sögurnar gefa raun-
sæja mynd af því hvernig íslenskar
konur haga sér í sínum ástarsam-
böndum, þá er nokkuð ljóst að goð-
sögnin um stelpuna sem situr
heima og bíður eftir að strákurinn
hringi í hana er steindauð.
Þær María Lilja Þrastardóttir og
Rósa Björk Bergþórsdóttir söfnuðu
sögunum saman og haft var eftir
þeim í blaðaviðtali að þær hefðu átt
úr vöndu að ráða, þeim hefðu bor-
ist svo margar sögur. Þeim hefur
tekist býsna vel til við að velja fjöl-
breyttar sögur í bókina þar sem
raddir sögukvennanna fá algerlega
að njóta sín. Í einhverjum tilvikum
hefði gjarnan mátt búa sögurnar
betur til útgáfu, því sumar þeirra
eru ekki nógu lipurlega skrifaðar.
En það heyrir til undantekninga
því allflestar eru prýðlegar aflestr-
ar.
Þetta er skemmtileg hugmynd að
bók sem gengur alveg ágætlega
upp. Hverjum finnst annars ekki
gaman og gott að lesa um ástina?
Ást Bókin Ástarsögur íslenskra kvenna er eftir þær Maríu Lilju Þrastardóttur og Rósu Björk Bergþórsdóttur.
Tinder-ást, marengs-
tertuást og ást á Hrauninu
Frásagnir
Ástarsögur íslenskra kvenna.
mn
Eftir: Maríu Lilju Þrastardóttur og Rósu
Björk Bergþórsdóttur. Veröld, 2016. 223
blaðsíður.
ANNA LILJA
ÞÓRISDÓTTIR
BÆKUR
Morgunblaðið/Eggert