Morgunblaðið - 17.08.2016, Qupperneq 6
Morgunblaðið/Ófeigur
Bruni Húsið sem brann á Seltjarnarnesi
um miðjan dag í gær. Slökkvistarf gekk vel.
Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu
var kallað út á þriðja tímanum í
gær vegna elds í íbúðarhúsi á Mela-
braut á Seltjarnarnesi. Húsið var
mannlaust þegar eldurinn kom upp,
samkvæmt upplýsingum frá
slökkviliði.
Sjónarvottur sagði í samtali við
mbl.is að mikinn svartan reyk hefði
lagt frá húsinu og að hann hefði
borist yfir allt hverfið. Slökkvilið
gekk greiðlega fyrir sig.
Í frétt á vef RÚV segir að þeir
íbúar hverfisins, sem fyrstir komu á
vettvang, hafi heyrt hundgá inni í
húsinu. Þar segir einnig að slökkvi-
lið hafi staðfest að hundur, sem var
á staðnum, hafi drepist.
Eldur í mann-
lausu húsi
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 2016
Loftkæling
Funahöfða 7, 110 Reykjavík, s. 577 6666
og varmadælur
Ólöf Eldjárn, þýðandi
og ritstjóri, lést að
heimili sínu, Öldugötu
30 í Reykjavík, að
kvöldi 15. ágúst eftir
erfið veikindi, 69 ára að
aldri
Ólöf fæddist í
Reykjavík 3. júlí 1947
og ólst upp í Vestur-
bænum. Hún var dóttir
hjónanna Kristjáns
Eldjárns, þjóðminja-
varðar og forseta, og
Halldóru Ingólfsdóttur
Eldjárn.
Ólöf lauk stúdents-
prófi með ágætiseinkunn frá mála-
deild Menntaskólans í Reykjavík
1967, nam ensku við Háskóla Íslands
1967-1968 og eftir það við Kaup-
mannahafnarháskóla þar sem hún
lauk cand. phil. prófi (MA) 1973.
Stundaði nám í almennum málvís-
indum við Háskóla Íslands, meðfram
starfi, 1975-1977.
Ólöf var verslunarstjóri Bóksölu
stúdenta 1973-1989, stundakennari í
Menntaskólanum í Kópavogi 1974-
1975, ritstjóri hjá Bókaforlagi Máls
og menningar og síðar Eddu útgáfu
1990-2007, stýrði þar meðal annars
öflugri fræðirita- og fagbókaútgáfu
undir merkjum Heimskringlu. Frá
2007 var hún sjálfstætt starfandi
þýðandi og yfirlesari.
Helstu þýðingar Ólafar: Umbreyt-
ingin eftir Liv Ullman,
Kastaníugöngin eftir
Deu Trier Mørch,
Purpuraliturinn eftir
Alice Walker, Heimur
feigrar stéttar, Saga
sonar míns og Ferð
allra ferða eftir Nadine
Gordimer, Dagbók
steinsins eftir Carol
Shields, Guð hins smáa
eftir Arundhati Roy,
Myrtusviður eftir
Murray Bail, Og svo
varð afi draugur eftir
Kim Fups Aakeson,
Undantekningin eftir
Christian Jungersen, Dóttir mynda-
smiðsins eftir Kim Edwards, Barnið
í ferðatöskunni eftir Lene Kaaberbøl
og Agnete Friis, Húshjálpin eftir
Kathryn Stockett, 23 atriði um kap-
ítalisma eftir Ha-Joon Chang, Her-
bergi eftir Emmu Donoghue, Sækið
ljósuna eftir Jennifer Worth, Undur
eftir R.J. Palacio og Meistari allra
meina. Ævisaga krabbameins eftir
Siddhartha Mukherjee. Í haust kem-
ur út hjá Forlaginu þýðing Ólafar á
Heimför eftir Yaa Gyasi.
Eiginmaður Ólafar frá 1967 er
Stefán Örn Stefánsson arkitekt.
Synir þeirra eru Kristján Andri
Stefánsson, sendiherra Íslands í
París, fæddur 1967, og Stefán Hallur
Stefánsson, leikari og leikstjóri,
fæddur 1977.
Andlát
Ólöf Eldjárn
Hæstiréttur Ís-
lands hefur stað-
fest gæsluvarð-
haldsúrskurð
Héraðsdóms
Reykjavíkur yfir
tveimur karl-
mönnum sem
beittu skotvopni í
Fellahverfi í
Breiðholti fyrr í
þessum mánuði.
Voru mennirnir úrskurðaðir í gæslu-
varðhald til 9. september nk. á
grundvelli almannahagsmuna.
„Varnaraðili hefur viðurkennt að
hafa hleypt af einu skoti sem óum-
deilt er að hafnaði í bifreið þar sem
fyrir var fólk. Að því gættu er fallist á
það með héraðsdómi að varnaraðili
sé undir sterkum grun um að hafa
framið afbrot sem að lögum getur
varðað 10 ára fangelsi og að brotið sé
þess eðlis að gæsluvarðhald sé nauð-
synlegt,“ segir í niðurstöðu Hæsta-
réttar varðandi annan manninn. Þá
benda gögn málsins til þess að hinn
maðurinn hafi einnig hleypt af skoti
og var því gæsluvarðhald einnig sam-
þykkt yfir honum.
Mennirnir eru 28 og 29 ára gamlir.
Þeir hafa áður komið við sögu hjá
lögreglu og eru báðir íslenskir ríkis-
borgarar en af erlendu bergi brotnir.
Verða áfram
í varðhaldi
Útkall Lögreglan
vopnaðist.
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Vel hefur gengið að selja heilfrystan
makríl á vertíðinni og hafa lönd í
Vestur-Afríku
verið stór mark-
aður. Nígería
hefur tekið við
makríl í ár, en
þangað fór lítið
sem ekkert í
fyrra, einnig
Gana, Benín og
Egyptaland. Eins
og í fyrra hefur
makríll farið víða
um heim og þessu til viðbótar má
nefna Evrópulönd og Japan.
Hermann Stefánsson, fram-
kvæmdastjóri Iceland Pelagic, seg-
ist reikna með að allur heill makríll
fari og seljist jafnóðum og verð inn
á þessi svæði hafi verið svipað og
undanfarin ár, heldur hærra ef eitt-
hvað sé. Hann segir að verð á mjöli
og lýsi hafi verið mjög gott þannig
að það sé ekki slæmur kostur í stöð-
unni að bræða fiskinn. „Heilt yfir
lítur þetta mun betur út en í fyrra
og ekki líkur á að menn sitji eins
lengi með birgðir og þá,“ segir Her-
mann.
Samningar við Grænlendinga
Mun erfiðara hafi þó reynst að fá
viðunandi verð fyrir hausaðan mak-
ríl, en vonandi sé sá markaður eitt-
hvað að hressast. Verðið á haus-
uðum fiski sé þó talsvert hærra en
það fór lægst á síðasta ári í ring-
ulreiðinni sem skapaðist við lokun
Rússlandsmarkaðar. Verulegt
tekjutap varð á síðasta ári í kjölfar
lokunar Rússlandsmarkaðar. Rúss-
land er áfram lokað fyrir íslenskar
sjávarafurðir og er ekki búist við
breytingu á því í náinni framtíð.
Íslenskar útgerðir hafa veitt tals-
vert af makríl í grænlenskri lög-
sögu, samkvæmt samningum við
Grænlendinga, og landað honum
hér á landi. Ferskur makríll úr
grænlenskri lögsögu, sem íslensk
eða grænlensk skip landa til vinnslu
á Íslandi, fær íslenskan uppruna og
er því undir banninu á Rússland, að
sögn Hermanns. Sé makríllinn hins
vegar frystur um borð í grænlensku
vinnsluskipi, sem þó getur hugsan-
lega að hluta verið í eigu íslenskra
útgerða, telst hann grænlenskur og
undanþeginn banninu. Verð fyrir
makríl í Rússlandi mun hafa gefið
eftir en er eftir sem áður betra en
fæst á Afríkumarkaði.
Skipum fjölgar fyrir austan
Hermann segir að framan af ver-
tíð hafi verið lítil áta í fiskinum
þannig að vel hafi gengið að heil-
frysta. Undanfarið hafi orðið breyt-
ing á og áta verið mikil á köflum
þannig að ekki hafi verið hægt að
heilfrysta að fullu. Sumir telji að
ástandið á makrílnum sé nokkuð
seinna á ferðinni en undanfarin ár,
en yfirleitt hafi menn gengið að því
vísu að makríll veiddur í ágúst sé að
mestu laus við átu og átuskemmdir.
Undanfarið hafa aflabrögð verið
ágæt og í vikunni hefur skipum
fjölgað úti af Austfjörðum, en síð-
ustu vikur fékkst ágætur afli úti af
Reykjanesi. Á heimasíðu HB
Granda var á mánudag haft eftir
Guðlaugi Jónssyni, skipstjóra á
Venusi, að góður afli hefði fengist í
síðustu tveimur veiðiferðum og tölu-
vert af fiski verið að sjá. Skammt-
urinn fyrir vinnsluna, um 750 tonn,
hefði náðst í þremur um fimm tíma
hölum í þessum veiðiferðum. Venus
var í gær kominn aftur á miðin eftir
löndun á Vopnafirði.
Samkvæmt upplýsingum á vef
Fiskistofu var í gær búið að landa
56.910 lestum úr íslenskri lögsögu á
árinu. Þá er eftir að veiða 109 þús-
und lestir á vertíðinni.
Makríll á markaði víða
Mikið hefur verið selt til landa í Vestur-Afríku Frystur grænlenskur makríll
undanþeginn banni í Rússlandi Ágætur afli að undanförnu en áta í makrílnum
Morgunblaðið/Börkur Kjartansson
Í kvöldsól Stór hluti flotans var framan af vertíð undan Reykjanesi og þar er þessi mynd tekin fallegt sumarkvöld úr brúnni á Víkingi AK.
Hermann
Stefánsson
Hæstiréttur staðfesti í gær úrskurð
Héraðsdóms Reykjavíkur um að
karlmaður á þrítugsaldri sæti far-
banni til 9. september vegna rann-
sóknar lögreglu á kæru á hendur
honum fyrir meint kynferðisbrot
gegn 15 ára stúlku.
Stúlkan segist hafa farið með
manninum og félögum hans á
skemmtistað um miðjan júlí þar
sem hann gaf henni áfengi. Mað-
urinn bauð henni að hlaða síma sinn
heima hjá honum sem hún þáði.
Þegar þangað hafi komið hafi mað-
urinn haft við hana samfarir gegn
vilja hennar. Maðurinn, sem er er-
lendur ferðamaður segir samfar-
irnar hafa verið með vilja hennar.
Hann hafi ekki vitað að hún væri 15
ára gömul.
Í farbanni vegna nauðgunarrannsóknar
Upplýsingar um fjölda atkvæða á
bak við hvern frambjóðanda í próf-
kjöri Pírata á höfuðborgarsvæðinu
liggja ekki fyrir. Þetta staðfestir
Sigríður Bylgja Sigurjónsdóttir,
framkvæmdastjóri Pírata.
Kosningunum lauk 12. ágúst síð-
astliðinn. Enn er eftir að taka saman
tölurnar úr kosningunum og gefa
þær út. Ekki liggur fyrir hvenær af
því verður.
Efstu sætin óbreytt
Endurtalning í prófkjörinu fór
fram 15. ágúst eftir að Erna Ýr
Öldudóttir hafnaði sæti á listanum.
Samkvæmt lögum Pírataflokksins á
að endurtelja í prófkjöri ef einhver
frambjóðandi hafnar sæti á lista.
Engin breyting varð á efstu sæt-
um listans að lokinni endurtalningu.
johannes@mbl.is
Tölur próf-
kjörs liggja
ekki fyrir