Morgunblaðið - 17.08.2016, Side 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 2016
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
AFGREIÐSLUTÍMI
Mán.–fös. 10–18 | Lau. 11–16
www.betrabak.is
QUICKREFRESH™ ÁKLÆÐI
Rennilás gerir það afar einfalt er að
taka QuickRefresh áklæðið af TEMPUR
HYBRYD dýnunni og þvo.
TEMPUR® HYBRID HEILSUDÝNAN
Frumlegasta hönnun TEMPUR til þessa!
EINA DÝNAN OG KODDINN SEM VIÐURKENND ERU AF
NASA OG VOTTUÐ AF GEIMFERÐASTOFNUNINNI
Upplifðu tilfinninguna
að svífa í þyngdarleysi
Fjölbreytt úrval
heilsukodda
Stillanleg heilsurúm í sérflokki
Knattspyrnusam-
band Íslands
(KSÍ) gerir ráð
fyrir að mótsmið-
ar á heimaleiki
karlalandsliðsins
í undankeppni
heimsmeistara-
mótsins fari hratt
þegar þeir fara í
sölu í dag, að sögn
Klöru Bjartmarz, framkvæmda-
stjóra KSÍ. Hún segir sambandið
hafa lært margt af hvernig evrópska
knattspyrnusambandið (UEFA)
hagaði miðasölu á Evrópumótið í
sumar.
Sala á mótsmiðunum hefst í há-
deginu í dag og þeir gilda á alla
heimaleiki Íslands í undankeppninni.
Um þúsund miðar verða til sölu, um
10% sæta á vellinum, sem er svipað
hlutfall og þegar fyrirkomulaginu
var beitt í fyrsta skipti í undan-
keppninni fyrir EM.
Búist er við mikilli ásókn í miðana
og segir Klara ljóst að sætin á vell-
inum séu of fá miðað við eftir-
spurnina. KSÍ hafi fundið fyrir mikl-
um áhuga á miðunum.
Byrja að
selja móts-
miða í dag
Segir sæti of fá
miðað við eftirspurn
Klara Bjartmarz
Tvær neyðar-
beiðnir bárust
björgunar-
sveitum á
Suðurlandi síð-
degis í gær.
Bíll með fjórum
farþegum fest-
ist í Skyndi-
dalsá í Lóns-
öræfum. Fólkið
yfirgaf bílinn en
treysti sér ekki að vaða í land
vegna straumþunga árinnar, sam-
kvæmt upplýsingum frá Lands-
björg.
Áin náði ferðafólkinu í mitti en
því tókst að halda sér í bílinn í um
það bil 40 mínútur þar til björg-
unarsveitarmenn komu á staðinn,
hjálpuðu fólkinu í land og drógu
bílinn úr ánni.
Á sama tíma var óskað eftir að-
stoð björgunarsveita vegna ferða-
manna sem lent höfðu í sjálfheldu
í hömrunum ofan Reynisfjöru.
Mikið og þungt brim var í fjörunni
og erfitt fyrir björgunarmenn að
athafna sig. Leitað var eftir að-
stoðar þyrlu Landhelgisgæslunnar,
sem síðar var afturkölluð því að
fólkið komst niður heilt á húfi.
Fjórir voru fastir í
Skyndidalsá í gær
Björgun Tvö útköll
á Suðurlandi í gær.
Guðjón Helgason
hefur tekið til
starfa sem sam-
skiptastjóri Ör-
yrkjabandalags
Íslands (ÖBÍ).
Um nýtt starf er
að ræða hjá
bandalaginu,
sem ætlað er að
efla starf Ör-
yrkjabandalagsins enn frekar.
Þetta kemur fram í fréttatilkynn-
ingu frá ÖBÍ.
Guðjón starfaði sem fréttamaður
um langt skeið, m.a. á Fréttastofu
Ríkisútvarpsins, NFS, Stöð 2, Vísi
og Bylgjunni. Þá starfaði hann
einnig um skeið sem fréttaritari
fyrir fréttaveituna AP.
Öryrkjabandalag Íslands er
hagsmuna- og mannréttindasamtök
fatlaðs fólks, langveikra, örorkulíf-
eyrisþega og aðstandenda þeirra.
Aðildarfélög ÖBÍ eru 41 talsins og
telja þau um 29.000 félagsmenn.
Guðjón er nýr
samskiptastjóri ÖBÍ
Guðjón Helgason