Morgunblaðið - 17.08.2016, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 2016
hafðu það notalegt
handklæðaofnum
Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - www.ofnasmidjan.is - sími 577 5177
Eigum úrval af
Eðalfiskur ehf • Sólbakka 4 • 310 Borgarnesi • S. 437 1680 • sala@edalfiskur.is • www.edalfiskur.is
Eðallax
fyrir ljúfar stundir
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Ríkiskaup hafa ákveðið að fram-
lengja tilboðsfrest í smíði nýrrar
Vestmannaeyjaferju um hálfan mán-
uð. Tilboð í smíðina verða opnuð
fimmtudaginn 8. september en áður
hafði verið tilkynnt að þau yrðu opn-
uð fimmtudaginn 25. ágúst.
Þetta á ekki að breyta því hvenær
smíði ferjunnar getur hafist, því að
tíminn sem ætlaður er til að fara yfir
tilboðin hefur verið styttur á móti
um hálfan mánuð. Gildistími tilboða,
sem var 20 vikur, hefur verið styttur
í 18 vikur.
Töldu tímann of skamman
Eins og fram kom í Morgun-
blaðinu í síðustu viku höfðu mögu-
legir bjóðendur, bæði innlendir og
erlendir, bent á að útboðstíminn
væri of stuttur og var þess óskað að
hann yrði framlengdur um nokkrar
vikur. Meðal annars kom fram að nú
væri háannatími sumarleyfa erlendis
og hægt gengi að fá tilboð frá fram-
leiðendum og birgjum.
Öllum slíkum fyrirspurnum svar-
aði Ríkiskaup á þann veg að því mið-
ur væri ekki hægt að framlengja
skilatíma tilboðanna.
Nú hefur þessari ákvörðun verið
breytt og tilboðsfresturinn fram-
lengdur. Að sögn Ragnars Davíðs-
sonar, forstöðumanns þjónustusviðs
Ríkiskaupa, er ástæðan sú að all-
nokkrir þátttakendur hafa farið
fram á lengri frest til að undirbúa til-
boð og var orðið við þeim óskum. En
til að tryggja að það hefði ekki áhrif
á upphaflegan afhendingartíma var
um leið gildistími tilboða, sem vera
átti 20 vikur (sá tími sem mögulega
fer í að meta tilboð), styttur í 18 vik-
ur.
Ragnar segir að eftir að Ríkiskaup
hafi svarað því neitandi að fram-
lengja tilboðsfrestinn hafi bæst við
fleiri aðilar sem óskuðu eftir lengri
fresti. „Það var metið svo að almennt
yrði það þá fremur til hagsbóta fyrir
verkefnið að lengja tilboðsfrestinn,“
segir Ragnar.
Tilboðsfrestur
framlengdur
Gildistími tilboða var styttur á móti
Morgunblaðið/Ómar
Landeyjahöfn Nýr Herjólfur mun
leysa þann eldri af hólmi.
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Umhverfisstofnun hefur gefið fyr-
irtækinu Ísgöngum ehf. leyfi til að
stækka bílastæðið við ísgöngin á
Langjökli, innan friðlandsins Geit-
lands. Sett eru nokkur skilyrði fyrir
leyfinu, m.a. um að öllu raski við
framkvæmdina verði haldið í lág-
marki. Ekki er fallist á það að auka
leyfilegt magn til að geyma olíu á
svæðinu.
Umhverfisstofnun telur að stækk-
un bílastæðis og áframhaldandi
bráðabirgðaaðstaða fyrirtækisins á
Geitlandi muni ekki rýra gildi frið-
lýsta svæðisins. Stofnunin telur ekki
rétt að veita varanlegt leyfi, heldur
til bráðabirgða til eins árs, þar sem
framtíðarsýn fyrirtækisins liggi
ekki fyrir.
Mikið að gera í sumar
Ísgöng ehf. hyggst stækka bíla-
stæðið úr 50x70 m2 í 100x140 m2, en
fyrirtækið opnaði manngerðan ís-
helli í jöklinum fyrir rúmu ári.
Í umsókn til Umhverfisstofnunar
um framkvæmdaleyfið segir m.a. að
þörf sé á stækkuninni vegna fjölg-
unar gesta og til að tryggja öryggi.
Hjalti Gunnarsson, markaðsstjóri
Ísganga, segir ekki liggja fyrir hve-
nær ráðist verði í stækkun stæð-
isins. Það geti orðið í haust eða
næsta vor.
Reiknað er með að 40-50 þúsund
ferðamenn heimsæki göngin á þessu
ári, sem yrði fyrsta heila starfsárið.
„Það hefur verið mjög mikið að
gera hjá okkur í sumar, eins og
mörgum öðrum í ferðaþjónustunni,
og við reiknum með því að það haldi
áfram næsta vetur. Við erum með
lítinn skála og lítið bílastæði og
komin þörf á að stækka stæðið,“
segir Hjalti, en skálinn er opinn frá
vori til vetrarbyrjunar, og vegurinn
að jöklinum þá fær á meðan og
stæðið opið.
Yfir vetrarmánuðina er ekið með
ferðamenn frá Húsafelli að Lang-
jökli og einnig gengur þaðan lítil
rúta yfir sumarið, sem Hjalti segir
að taki mesta kúfinn af umferðinni
um bílastæðið. Engu að síður sé þörf
á stækkun, ekki síst til að koma í veg
fyrir utanvegaakstur og gera stærri
ökutækjum betra rými til að athafna
sig. Að sögn Hjalta hefur verið gott
samstarf um aðstöðuna við fyr-
irtækið Mountaineers, sem er með
sleða- og jeppaferðir á Langjökul.
Ísgöng Ferðamenn heillast af umhverfinu í ísgöngunum í Langjökli.
Bílastæði við ís-
göngin stækkað
Mikil fjölgun gesta að Langjökli
Embætti héraðssaksóknara hefur
ákveðið að fella niður mál sem sneri
að rannsókn á meintri refsiverðri
háttsemi stjórnenda hjúkrunarheim-
ilisins Eirar, í tengslum við rekstur
heimilisins.
Embætti héraðssaksóknara, áður
embætti sérstaks saksóknara, hafði
málið til rannsóknar, en henni lauk
síðla árs 2015.
Tilefni rannsóknarinnar voru
meðal annars ábendingar stjórn-
armanna Eirar frá árinu 2012 og
síðar kærur tveggja lögmanna í
mars og september árið 2013.
Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni, fv. for-
stjóra Eirar, og Emil Theodór Guð-
jónssyni, fv. fjármálastjóra Eirar,
voru gefin að sök fjársvik og Emil
og Sigurði Helga Guðmundssyni,
öðrum fyrrverandi forstjóra Eirar,
var gefinn að sök fjárdráttur.
Niðurstaða rannsóknarinnar í
fyrrgreinda málinu var að sakborn-
ingar hefðu ekki með ólögmætum
hætti haft þann ásetning að blekkja
viðsemjendur Eirar sem keyptu bú-
seturétt af stofnuninni og hafa
þannig fé af þeim. Það sem fram
hefði komið við rannsókn málsins
teldist ekki nægilegt eða líklegt til
sakfellingar um þau meintu brot
sem um væri að ræða.
Hvað síðari þáttinn varðar var
heldur ekki talið að það sem fram
hefði komið við rannsókn málsins
væri nægilegt eða líklegt til sakfell-
ingar í sakamáli. jbe@mbl.is
Héraðssaksóknari fellir niður mál á hendur stjórnendum Eirar
Morgunblaðið /Arnaldur
Eir Saksóknari hefur fellt málið niður.