Morgunblaðið - 17.08.2016, Blaðsíða 20
20 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 2016
Í kvöld verður
sýndur á RÚV þátt-
urinn Popp- og rokk-
saga Íslands, sem
upphaflega var sýnd-
ur 13. mars s.l. Í þætt-
inum segir Bubbi
Morthens: „Útgefand-
inn. Hann mokgræddi
á okkur, það er bara
þannig. Við höfðum
ekki tíkall uppúr
þessu, skítapening.“ Í aðdraganda
ummælanna hafði nafn mitt verið
nefnt. Ég mótmælti þessari að-
dróttun á facebook-síðu minni dag-
inn eftir sem ósannindum með það
markmið að sverta mannorð mitt.
Við það færðist Bubbi í aukana og
sagði m.a.: „Niðurstaðan er og verð-
ur sú að samningar þínir við Ego og
Utangarðsmenn voru gerðir af fyr-
irtæki með yfirburðaþekkingu á
hlutum á meðan við vorum með því
miður enga yfirsýn yfir neitt og al-
gerlega blautir á bakvið eyrun. Þú
nýttir þér það. Já, við skrifuðum
undir.“
Í fyrstu ætlaði ég ekki að standa í
orðræðu við strigakjaftinn Bubba
Morthens en eftir því sem frá hefur
liðið verður þessi opinbera aðför óá-
sættanleg. Það er fullyrt að ég hafi
níðst á óreyndum tónlistarmönnum
haft af þeim tekjur og auðgast á
verknaðinum. Annaðhvort hefur
Bubbi Morthens rök fyrir máli sínu
eða ekki.
Um mitt ár 1980 kom Bubbi
Morthens til mín og bað mig um að
gerast útgefanda sinn. Plata Utan-
garðsmanna Geislavirkir kom út í
árslok en einnig komu út smáskíf-
urnar Ha, Ha, Ha, (Rækjureggae)
og 45 RPM. Eins og samningar ís-
lenskrar útgáfu voru og eru snerust
þeir um að útgefandi tæki áhættu
og tónlistarmaður fengi ágóðahlut ef
útgáfukostnaður næðist til baka.
Utangarðsmenn voru vissulega
fyrirferðarmiklir á íslenskum
tónlistarmarkaði, höfðuðu til nýrrar
kynslóðar en tiltölulega þröngs ald-
ursbils og nutu mikillar velgengni
sem tónleikasveit. Útgáfa efnis Ut-
angarðsmanna skilaði fyrirtækinu
tapi auk þess sem fyrirtækið þurfti
að greiða aðrar skuldir fyrir hljóm-
sveitina. Plágan kom svo út árið eft-
ir og var útgáfa hennar algjört fí-
askó vegna tæknimistaka og vegna
þess að hún seldist langt undir
væntingum og skilaði verulegu tapi.
Ég var á staðnum þegar Bubbi var
rekinn úr Utangarðsmönnum og við
lögðum á ráðin með framhaldið.
Til gamans, ef svo má segja, vitna
ég til viðtals í Vikunni frá því í nóv-
ember 1980, þegar Geislavirkir var
að koma út. Þar segir Bubbi:
„En Steinar hefur reynst okkur
frábærlega vel. Hann hefur hjálpað
okkur í ýmsum per-
sónulegum málum, bara
útaf almennilegheitum.
Hann hefur verið með
ólíkindum almennilegur
við okkur og það er
ekki til að hafa gullkálf-
ana góða, maðurinn er
bara svona vel inn-
rættur.“
Þegar Egó var að
mótast, lá fyrir að fyr-
irtæki mitt hefði ekki
riðið feitum hesti frá
sölu hljómplatna með
Bubba Morthens. Hann hafði valið
til samstarfs í Egó menn með tak-
markaða stúdíóreynslu, sem voru í
annarri vinnu, og nú stóð til að biðja
þá að einbeita sér að undirbúningi
spilamennsku og upptökuvinnu um
nokkurra vikna skeið kauplaust.
Niðurstaðan varð sú að Egó fengi
8% ágóðahlut frá fyrsta eintaki og
sala fyrstu 4.000 eintakanna skyldi
vera fyrirframgreidd. Þetta var nýj-
ung og þýddi að hljómsveitinni voru
tryggðar ákveðnar tekjur og að út-
gefandi tók á sig þann viðbótar-
kostnað. Jafnframt tryggði þetta að
hægt var að hefjast handa strax við
upptökur og útgáfu fyrir sumarmál,
svo hljómsveitin gæti skipulagt sína
útgerð. Þetta gekk upp og Egó mal-
aði gull í tvö ár á spilamennsku sinni
úti um allt land. Breyttir tímar seld-
ust í 4.000 eintökum sumarið ’82 og
Í mynd rúmlega það fyrir jólin og
báðar náðu þær endanlega 5.000
eintökum árið eftir. En slík sala var
fáheyrð í rokktónlist þessa tíma.
Þriðja plata Egó var svo gerð þegar
allt var komið í hund og kött milli
Bubba og hinna meðlimanna og
seldist hún í um 1.500 eintökum og
skilaði miklu tapi.
Fjárhagsleg heildarútkoma vegna
Egó-útgáfnanna uppfært til núvirðis
er: Ágóðahlutur Egó: 2.160.000 kr.
Höfundarlaun (Egó og langmest til
Bubba) 1.968.000. Tap útgefanda:
-2.038.000 kr. Tónlistarmennirnir
fengu sex milljónum meira en útgef-
andinn þegar upp var staðið. Hvoru
megin lenti skítapeningurinn?
Það er alveg ljóst að Bubbi gerði
sér grein fyrir því að það var ekki á
vísan að róa með Egó og í raun fór
árangurinn í fyrstu fram úr vænt-
ingum. Eitt af því sem þar spilaði
með var öflugur stuðningur útgef-
andans við hljómsveitina. Í viðtali
við Vísi frá 23. janúar 1982, rétt áð-
ur en lagt var í fyrstu Egó-
upptökurnar svarar Bubbi Mort-
hens eftirfarandi spurningu blaða-
manns:
„Áttu von á því að Egó komi til
með að njóta sömu hylli og Utan-
garðsmenn sálugu?“
„Ef ég segi alveg eins og er þá á
ég ekki von á því. Það verður ekki
fyrr en eftir a.m.k. 10 ár að hljóm-
sveit fær jafn stormandi undirtektir
og við fengum. Það hjálpaðist allt að
við að stuðla að vinsældum okkar.
Slíkt ástand skapast ekki nærri
strax aftur.“
Fullyrðing Bubba Morthens um
framkomu mína er ekki aðeins
ósönn heldur sögð til að meiða,
meiðyrði. Persónuleg árás og sak-
bending um siðferðislega óhæfu. At-
ferlið sem hann ber upp á mig brýt-
ur algjörlega í bága við allt það sem
ég stend fyrir sem manneskja. Ég
hef ýmugust á auðsöfnun, borgaði
mér aldrei arð út úr rekstri fyr-
irtækja minna og þáði lægri laun en
aðrir fyrir sambærilega vinnu. Ég
hef aldrei nýtt mér veika stöðu ann-
arra aðila til að ná markmiði eða
ágóða, heldur öfugt, reynt að leita
sanngjarnra leiða og rétta hjálp-
arhönd og ég hef aldrei stolið neinu
af neinum!
Ég þekkti Bubba Morthens sem
hæfileikaríkan tónlistarmann, ágæt-
lega innréttaðan og vel meinandi
dreng á tíðum en líka sem sjálfmið-
aðan og hvatvísan tækifærissinna.
Eftir að ég hætti í útgáfustarfssemi,
hafa leiðir okkar nokkrum sinnum
legið saman. Ég fór fyrir nokkrum
árum á tónleika hans í Saurbæj-
arkirku í Hvalfirði, þar sem hann
fagnaði mér með stóru brosi og inni-
legu faðmlagi og hvatti mig til að
kíkja til sín í Kjósina. Þetta ítrekaði
hann svo í nokkur skipti þegar við
hittumst síðar. Og nú opinber árás!
Er athyglissýkin komin á það stig
að hún réttlætir eineltistilburði?
RÚV er framleiðandi þáttanna og
miðillinn sem þá sýndi. Í lögum um
Ríkisútvarpið, fjölmiðil í almanna-
þágu, segir m.a. að í starfsháttum
sínum skuli Ríkisútvarpið:
„Ábyrgjast að sanngirni og hlut-
lægni sé gætt í frásögn, túlkun og
dagskrárgerð, leitað sé upplýsinga
frá báðum eða öllum aðilum og sjón-
armið þeirra kynnt sem jafnast. Og:
„Sannreyna að heimildir séu réttar
og að sanngirni sé gætt í framsetn-
ingu og efnistökum.“
Þegar ég benti yfirstjórn RÚV á
það að hvorki hafi sanngirni verið
gætt né heimildir sannreyndar og
því færi ég fram á að umræddur
kafli með Bubba Morthens yrði
klipptur út, var svarið: Við höfnum
beiðni þinni og málatilbúnaði. Mála-
tilbúnaði? Er það sem það heitir hjá
ríkisstofnunum þegar bent er á hið
augljósa?
Endilega horfið á ósómann í kvöld
í boði málsvara sanngirninnar,
Bubba Morthens og RÚV.
Bubbi, RÚV og sanngirnin
Eftir Steinar Berg
Ísleifsson
Steinar Berg Ísleifsson
» ...eftir því sem frá
hefur liðið verður
þessi opinbera aðför óá-
sættanleg.
Höfundur er ferðaþjónustubóndi
og fv. útgefandi.
Þann 1. janúar síðast-
liðinn tóku gildi nýjar
reglur á Íslandi þar sem
samræmdur staðall um
upplýsingaskipti á fjár-
hagsupplýsingum, svo-
kallaður CRS-staðall, er
innleiddur í íslensk lög.
CRS stendur fyrir Com-
mon Reporting Standard
en markmiðið með staðl-
inum er að koma í veg
fyrir skattaundanskot. Yfir 100 ríki
hafa skuldbundið sig til að innleiða
framangreindan staðal, m.a. Lúx-
emborg, Sankti Lúsía og nú síðast
Líbanon og Panama en síðarnefnda
ríkið hyggst stefna á að fyrstu upplýs-
ingaskiptin muni eiga sér stað á árinu
2018. Með þessum nýju reglum er ís-
lenskum fjármálafyrirtækjum gert að
auðkenna og aðgreina reikningshafa
og raunverulega eigendur reikninga
sem eru skattskyldir í erlendum ríkj-
um fyrir utan Bandaríkin og senda til-
teknar skattaupplýsingar til rík-
isskattstjóra frá og með 1. janúar
2017. Það sama á við um fjármálafyr-
irtæki í erlendum ríkjum sem hafa
skuldbundið sig til þess að taka upp
staðalinn en þau munu senda sam-
bærilegar skattaupplýsingar um
reikningshafa með heimilisfesti í öðru
landi til viðeigandi yfirvalda. Sér-
samningur gildir hins vegar um upp-
lýsingaskipti milli fjölda ríkja og
Bandaríkjanna, svokallaður FATCA
samningur, sem Ísland er aðili að, en
hann er fyrirmynd CRS-samningsins.
Hinar nýju CRS-reglur snerta Ís-
lendinga hér á landi sem eiga reikn-
inga eða fjármuni hjá fjármálastofn-
unum í einhverju þeirra ríkja sem hafa
innleitt CRS-staðalinn þar sem íslensk
skattyfirvöld fá upplýsingar um reikn-
inga íslenskra aðila miðað við 31. des-
ember 2016. Samkvæmt reglugerð nr.
1240/2015 um framkvæmd áreið-
anleikakannana vegna upplýsingaöfl-
unar á sviði skattamála eru hvers kon-
ar eignir tilkynningarskyldar, þ.e.
bankainnstæður, fjárfestingartekjur
(þ.m.t vextir, arður, tekjur af til-
teknum vátryggingasamningum, líf-
tryggingasamningum og aðrar svip-
aðar tegundir tekna) og söluandvirði
af fjáreignum.
Fyrir reikninga í eigu einstaklinga
sem stofnaðir voru þann 1. janúar
2016 eða síðar, ber fjármálastofnun að
kalla eftir yfirlýsingu frá reikningshaf-
anum sem staðfestir skattalegt heim-
ilisfesti reikningshafans. Þessi skylda
á fjármálafyrirtæki, að kalla eftir yf-
irlýsingu um skattalegt heimilisfesti
reikningshafa, er óháð því hversu
miklir fjármunir standa á reikn-
ingnum. Sé skattalegt heimilisfesti
reikningshafa erlendis ber fjármála-
fyrirtækjum að kalla eftir erlendri
skattkennitölu (TIN-númeri) reikn-
ingshafa sé slíkt auðkenni gefið út af
hinu erlenda ríki.
Það er ljóst að þessar reglur munu
veita íslenskum skattyfirvöldum víð-
tæka yfirsýn yfir eignir íslenskra að-
ila erlendis en sífellt fleiri ríki bætast
í hóp þeirra sem hafa innleitt regl-
urnar. OECD telur að ör þróun verði
í innleiðingu CRS-reglna á næstu 12
mánuðum og stefnt er að mótun
nýrra leiða til að tryggja að upplýs-
ingar um raunverulega eigendur
verði innleiddar og mótun stefnu
gagnvart þeim ríkjum sem enn eru
ófús til samstarfs á þessum vettvangi.
Í kjölfar birtingar Panama-skjalanna
vinna G20-ríkin og stjórnvöld víða um
heim að átaki til að auka gagnsæi í
skattamálum svo komið verði í veg
fyrir undanskot skatta og ólögmætt
fjármagnsflæði. Til að mynda hafa
allnokkur OECD-ríki farið af stað
með verkefni um sjálfvirk upplýs-
ingaskipti um raunverulega eigendur
svo komið verði í veg fyrir undanskot
skatta með duldu eignarhaldi.
Nýjar reglur –
Skattyfirvöld fá upp-
lýsingar um eignir
Íslendinga erlendis
Eftir Ragnhildi Elínu
Lárusdóttur og Vig-
dísi Sigurvaldadóttur
»Hvaða þýðingu hafa
nýjar reglur um
upplýsingaskipti á fjár-
hagsupplýsingum fyrir
Íslendinga sem eiga
fjármuni hjá erlendum
fjármálastofnunum?
Ragnhildur Elín
Lárusdóttir
Ragnhildur Elín er lögfræðingur hjá
EY Íslandi og Vigdís er lögfræðingur
hjá EY Danmörku.
Vigdís
Sigurvaldadóttir
Ég var að horfa á þátt í sjónvarpinu
7. ágúst sl. sem hét „Selfoss í 50 ár“.
Þótt mest hafi verið sýnt frá Selfossi
þá var verið að sýna og segja frá hin-
um ýmsu stöðum á Suðurlandi og
hefði mér fundist betra nafn á þætt-
inum t.d. Suðurland.
Það var rætt við athafnamann í
Hveragerði, Sigurð Kárason, en
maðurinn sem rætt var við var Bragi
í Eden en ekki Sigurður. Ef þetta er
rangt hjá mér þá væri gott að það
leiðréttist.
Ein sem horfir stundum á sjónvarp.
Tryggjum velferð landsins
Kæru Íslendingar. Við þurfum að
tryggja velferð okkar vegna of mik-
ils álags ferðamanna. Það þarf að-
skipta gæðunum niður og setja fé í
fleiri málaflokka. Íslendingar þurfa
bregðast við þessu, það þarf að
hækka framlög til Landspítala og
málefna fatlaðra, lagfæra vegakerfið
og bæta löggæslu, svo eitthvað sé
nefnt.
Þá eru gistinætur orðnar allt of
dýrar.
Ókunnugur
Uppreisn gegn fátækt
Ágætu lesendur, þessa dagana
dynja yfir launahækkanir sem ættu
ekki að sjást. Hvernig er með ör-
yrkja og ellilífeyrisþega? Þeir hafa
ekki séð eina krónu í mörg ár og
margir eru upp á ættingja komnir
með ýmsar nauðsynjar. Tannlækn-
ingar ættu að vera fríar fyrir þessa
hópa, ekki þessar smánargreiðslur.
Ég skora á t.d. Böðvar Guðmunds-
son, viðskiptafræðing, ásamt Ör-
yrkjabandalaginu að byrja að safna
undirskriftum á netinu og færa hin-
um nýkjörna forseta við tækifæri og
gefa þjóðinni kost á að kjósa sig frá
þessari vanvirðu sem þeir, sem
minna mega sín í þjóðfélaginu, mega
þola. ASÍ mun aldrei hjálpa okkur,
það hafa þeir aldrei gert. Þetta er
ekki spurning um að komast af,
þetta er spurning um líf og dauða.
Á næstu dögum hækka alþing-
ismenn í launum, þeim er líka sama
um lýðinn.
Marlín.
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is
Suðurland í 50 ár?
Landspítalinn Lesandi vill að opinber framlög til spítalans verði hækkuð.
Móttaka aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lif-
andi umræðu í landinu og birtir
aðsendar greinar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins. Kerfið er auðvelt í notk-
un og tryggir öryggi í samskiptum
milli starfsfólks Morgunblaðsins
og höfunda. Morgunblaðið birtir
ekki greinar sem einnig eru send-
ar á aðra miðla.
Kerfið er aðgengilegt undir
Morgunblaðslógóinu efst í hægra
horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt
er á lógóið birtist felligluggi þar
sem liðurinn „Senda inn grein“ er
valinn.
Í fyrsta skipti sem inn-
sendikerfið er notað þarf notand-
inn að nýskrá sig inn í kerfið. Ít-
arlegar leiðbeiningar fylgja hverju
þrepi í skráningarferlinu. Eftir að
viðkomandi hefur skráð sig sem
notanda í kerfið er nóg að slá inn
kennitölu notanda og lykilorð til
að opna svæðið.