Morgunblaðið - 12.09.2016, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. SEPTEMBER 2016
Enn er bætt um betur með nýju
ReSound heyrnartækjunum
sem gefa eðlilega og
áreynslulausa heyrn.
Taktu þátt í framþróuninni og
prófaðu þessa hágæða tækni.
Aldrei
hefur verið
auðveldara
að heyra
GOLDEN
LOBE
AWARDS
2014
ASSOCIATION OF
INDEPENDENT
HEARING HEALTHCARE
PROFESSIONALS
Most Innovative
Concept 2014
presented to:
Resound - LiNX
made for iPhone
Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur · Sími 534 9600 · heyrn.is
Samfylkingin vill nota prófkjörvið val á framboðslista en
treystir kjósendum þó ekki betur
en svo að þeim eru sett ýmis skil-
yrði.
Frétt Ríkisút-varpsins eftir
að úrslit í Suðvest-
urkjördæmi lágu
fyrir er lýsandi fyr-
ir þetta vantraust:
„Árni Páll Árnason,
fyrrverandi for-
maður Samfylking-
arinnar, hreppti fyrsta sætið í
prófkjöri flokksins í Suðvest-
urkjördæmi. Margrét Gauja Magn-
úsdóttir, fyrrverandi bæjarfulltrúi,
varð í öðru sæti og Margrét
Tryggvadóttir, fyrrverandi þing-
maður Hreyfingarinnar, lenti í
þriðja sæti í prófkjörinu en vegna
reglna um kynjaskiptingu og fram-
gang ungs fólks færist hún niður í
fimmta sæti.
Sema Erla Serdar, stjórnmála-og Evrópufræðingur, endaði í
fjórða sæti í prófkjörinu en færist
upp í þriðja sætið vegna ákvæða
um að frambjóðandi 35 ára eða
yngri sé í einu þriggja efstu sæt-
anna. Guðmundur Ari Sig-
urjónsson bæjarfulltrúi hlaut
fimmta sætið í prófkjörinu en fær-
ist upp í fjórða sæti vegna kynja-
reglu.“
Hvaða sanngirni var í því aðlækka Margréti Tryggvadótt-
ur um tvö sæti til að þjóna tveimur
hliðarskilyrðum flokksins? Það var
vitaskuld fjarri því að vera sann-
gjarnt og ekki að undra að Mar-
grét segði það „alveg hundfúlt að
vera lækkuð niður út af því að
vera gömul kerling“.
Það er tímabært að hætta þess-um kynja- og aldurskvótum
og treysta kjósendum til að raða
listum á lýðræðislegan hátt.
Margrét
Tryggvadóttir
Fórnarlamb
kvótastjórnmála
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 11.9., kl. 18.00
Reykjavík 9 skýjað
Bolungarvík 8 súld
Akureyri 11 léttskýjað
Nuuk 6 heiðskírt
Þórshöfn 12 léttskýjað
Ósló 20 léttskýjað
Kaupmannahöfn 21 léttskýjað
Stokkhólmur 21 heiðskírt
Helsinki 16 skýjað
Lúxemborg 23 heiðskírt
Brussel 22 skýjað
Dublin 16 skýjað
Glasgow 17 léttskýjað
London 21 heiðskírt
París 19 skýjað
Amsterdam 21 léttskýjað
Hamborg 22 skýjað
Berlín 30 heiðskírt
Vín 27 heiðskírt
Moskva 14 alskýjað
Algarve 25 heiðskírt
Madríd 32 heiðskírt
Barcelona 29 léttskýjað
Mallorca 30 léttskýjað
Róm 21 rigning
Aþena 25 rigning
Winnipeg 17 skýjað
Montreal 17 skýjað
New York 26 skýjað
Chicago 19 léttskýjað
Orlando 30 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
12. september Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 6:44 20:04
ÍSAFJÖRÐUR 6:46 20:13
SIGLUFJÖRÐUR 6:28 19:56
DJÚPIVOGUR 6:13 19:35
Börkur Gunnarsson
borkur@mbl.is
„Jú, þeir enduðu í fanginu á mér á
miðvikudaginn,“ segir Hjalti Ax-
elsson, varðstjóri á lögreglustöðinni
á Egilsstöðum.
Tveir piltar frá Alsír og Marokkó
komu til Breiðdalsvíkur á miðviku-
dag og óskuðu eftir hæli á Íslandi.
Að sögn Hjalta höfðu þeir komið
með Norrænu til landsins og farið
með einhverjum hætti til Breiðdals-
víkur, hugsanlega á puttanum eða
fótgangandi en leiðin frá Seyðisfirði
til Breiðdalsvíkur er um 110 – 120
kílómetra löng.
Margir hælisleitendur komu
með Norrænu í vor
Töluvert margir hælisleitendur
komu til landsins með Norrænu í
vor en síðan þá hefur verið lítið um
slíkar heimsóknir, að sögn lögregl-
unnar.
Er ekki óvanalegt að hælisleit-
endur sæki um hæli á Breið-
dalsvík?
„Jú, ég held að þetta sé eina til-
vikið sem hefur komið upp.
Ég veit ekki af hverju þeir báru
hælisumsóknina ekki upp fyrr. Það
er ekki okkar hlutverk að taka af
þeim skýrslu varðandi það.“
Barnaverndarnefnd með málið
í sinni umsjá
Vitið þið eitthvað um þeirra áætl-
anir? Eða hvers vegna þeir komu
hingað?
„Við vitum lítið um þeirra plön
og þeirra ferðalag. Það er bara Út-
lendingastofnun sem mun sjá um
að taka skýrslu af þeim.
Þeir virðast hafa farið í land án
þess að nokkur afskipti hafi verið
höfð af þeim.
Svo er þeirra mál unnið eftir
hefðbundnum ferlum. Þeir voru síð-
an fluttir til Egilsstaða. Þeirra mál
hlaut venjubundinn farveg. Barna-
verndarnefndin á svæðinu hefur
þeirra mál til umsjónar því þeir eru
flokkaðir sem börn, undir 18 ára
aldri og eru þá í forsjá barnavernd-
aryfirvalda. Þannig er staðan í
dag.“
Tungumálaörðugleikar geta
hamlað samskiptum
Voru þeir illa haldnir?
„Sko, já og nei. Kannski ekki
þannig. Þeir virtust ekki vera svelt-
andi, en virtust hafa ferðast í tals-
verðan tíma einhverstaðar og ein-
hverstaðar. En ekki illa haldnir,
þannig.“
Þeir sögðust vera frá Alsír og
Marokkó, hvar ætli þeir hafi hist á
leiðinni?
„Ég veit það ekki. Þeir tala ekki
mikla ensku. Við tölum ekki arab-
ísku. Ég veit ekki hvar leiðir þeirra
lágu saman. Væntanlega einhver-
staðar suður í Evrópu. Við bara
skráum þá inn í kerfið, tökum af
þeim fingraför og ljósmynd og setj-
um þá í gagnagrunninn,“ segir
Hjalti.
Fóru í land án afskipta og sóttu um hæli
Þetta var í fyrsta og eina skiptið sem flóttamenn sækja um hæli á Breiðdalsvík
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Skipaferðir Komu með Norrænu.