Morgunblaðið - 12.09.2016, Síða 23

Morgunblaðið - 12.09.2016, Síða 23
haust eftir að hús og land sem þau höfðu fest kaup á inn við Elliðaárvog var hertekið til afnota fyrir banda- ríska herinn. Árið 1945 var eigninni skilað og þá fluttu þau aftur suður. Árið 1958 festu þau kaup á jörðinni Stöð í Stöðvarfirði, ásamt bústofni, fluttu þangað og stunduðu búskap á fullu til ársins 1985. Þá brugðu þau búi og fluttu aftur til Reykjavíkur og 1989 fluttu þau hjónin í eigin þjón- ustuíbúð að Aflagranda 40. Guðný hóf nám í handmenntadeild Bréfaskólans árið 1984 og stundaði það til 1987. Árið eftir fór hún í Mynd- listaskóla Reykjavíkur og stundaði þar nám til 1993. Hún er listhneigð, naut þess að stunda myndlist á efri ár- um og hélt tvær málverkasýningar, þá fyrri á áttræðisafmæli sínu og sýndi þá 38 verk og síðan í nóvember 1999 í Straumsvík þar sem sonur hennar var að láta af störfum eftir 33 ár hjá fyrirtækinu. Hún hefur notið þess að ferðast með börnum sínum og farið bæði til sólarlanda og í borg- arferðir. Hún fór til Taílands þegar hún var orðin 95 ára. Hún hefur alla tíð haft áhuga á stangveiði og verið fiskin. Eftir að flutt var frá Stöðv- arfirði var farið austur til dvalar á hverju sumri, veitt í Stöðvaránni og farið á sjóstöng. Þetta er nú fyrsta sumarið sem sjóstönginni var sleppt. Eftir lát Jóhannesar árið 2005 bjó Guðný í íbúð sinni fram yfir 100 ára afmælið sitt, en frá því í nóvember á síðasta ári hefur hún dvalið á hjúkr- unarheimilinu Eir og er ánægð með dvölina enda umönnun fyrsta flokks. Fjölskylda Fyrri eiginmaður Guðnýjar var Ingimar Sölvason, f. 1910, fórst með togaranum Braga við Englands- strendur 1940, loftskeytamaður. Seinni eiginmaður Guðnýjar var Jó- hannes Ásbjörnsson, f. að Torfum í Hrafnagilshreppi 26.10. 1911, d. 30.8. 2005, rennismiður og bóndi. For- eldrar hans voru Guðrún Jóhann- esdóttir, f. 30.7. 1866, d. 14.5. 1959, ljósmóðir, og Ásbjörn Árnason, f. 1.5. 1880, d. 12.4. 1962, bóndi. Sonur Guðnýjar og Ingmars og stjúpsonur Jóhannesar er Bjarnar, f. 9.4. 1935, fyrrverandi fjármálastjóri, var kvæntur Nönnu Sigríði Ottós- dóttur sjúkraliða sem lést 2015 og eignuðust þau fjögur börn. Börn Guðnýjar og Jóhannesar eru 1) Guðrún, f. 2.5. 1942, íþróttakenn- ari og bóndi að Fljótshólum, gift Þor- móði Sturlusyni bónda og eiga þau fjögur börn; 2) Jórunn Þorbjörg, f. 5.9. 1943, kaupmaður en með fyrri eiginmanni sínum, Halldóri Guðna- syni vélstjóra, á hún þrjár dætur og með seinni eiginmanni sínum, Dag- bjarti Jónssyni, verslunar- og sjó- manni, á hún einn son; 3) Bryndís f. 16.10. 1945 hárgreiðslumeistari, gift Kolbeini Finnssyni, rafvirkja og kaupmanni, og eignuðust þau fimm börn. 4) Steingrímur, f. 8.6. 1951, d. 18.6. 2016, skipstjóri og útgerðar- maður, en eftirlifandi eiginkona hans er Anna Jóna Hauksdóttir ritari og eiga þau þrjú börn. 5) Björn, f. 30.11. 1953, verktaki í Noregi, kvæntur WilaWan Johannesson og eiga þau einn son, en með fyrri konum sínum á Björn tvö börn; 6) Hansína f. 29.8. 1958, blómakaupmaður, gift Sigurði Péturssyni verslunarmanni og eiga þau fimm börn. Afkomendur Guðnýjar eru 109. Guðný eignaðist fimm bræður. Tveir létust í æsku, tveggja og sex ára, en bróðirinn Pálmi drukknaði á sautjánda ári í Þorlákshöfn árið 1937. Elstur bræðranna var Stefán Jóhann, f. 30.8. 1914, d. 10.5. 2003, skipstjóri í Hafnarfirði, og yngstur þeirra var Pétur, f. 6.10. 1922, d. 30.6. 2009, kaupmaður í Hafnarfirði. Foreldrar Guðnýjar voru Þor- björn Stefánsson, f. á Stöðvarfirði 30.3. 1892, d. 1.9. 1973, og k.h., Jór- unn Jónsdóttir, f. á Viðborði á Mýr- um í Austur-Skaftafellssýslu 3.8. 1878, d. 6.4. 1961. Úr frændgarði Guðnýjar Jónu Þorbjörnsdóttur Guðný Jóna Þorbjörnsdóttir Kristján Jónsson b. á Viðborði A-Skaft., bróður- sonur Þórðar, langafa Þórbergs Þórðarsonar rithöfundar Guðrún Pálsdóttir húsfr. á Viðborði Guðný Kristjánsdóttir húsfr. á Viðborði Jón Guðmundsson b. á Viðborði á Mýrum í A-Skaft. Jórunn Jónsdóttir húsfr. á Stöðvarfirði og í Hafnarfirði Katrín Jónsdóttir húsfr. í Holtum í A-Skaft. Guðmundur Eiríksson frá Einholti í A-Skaft., dó ungur Benedikt Kristjáns- son b. í Einholti Gunnar Benediktsson prestur og rithöfundur Arnleif Stefáns- dóttir húsfr. á Gvendarnesi Gunnþór Guð- jónsson sjóm. og netagerðarm. á Fáskrúðsfirði Pétur Þorbjörnsson kaupm. í Hafnarfirði Stefán Jóhann Þorbjörnsson skipstj. í Hafnarfirði Pálmi Stefáns- son efnaverk- fræðingur Pétur Þorbjörnsson kaupm. í Hafnarfirði Kristín Sigurðardóttir húsfr. á Núpi Þorvarður Þórðarson b. á Núpi í Berufirði Jóhanna Sigurhildur Þorvarðardóttir húsfr. á Grund Stefán Björnsson b. og sjóm. á Grund í Stöðvarfirði Þorbjörn Stefánsson sjóm. á Stöðvarfirði og verkam. í Hafnarfirði Lukka Stefánsdóttir húsfr. á Grund Björn Jónsson b. í Bakkagerði og á Grund ÍSLENDINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. SEPTEMBER 2016 101 ára Guðný Jóna Þorbjörnsd. 95 ára Gróa Þorleifsdóttir 90 ára Óskar Þ. Kemp Þorgeirss. Sveinbjörg Pétursdóttir 85 ára Hilmar Pétursson 80 ára Alda Hanna Grímólfsdóttir Ásta Hallý Nordgulen Halldóra Kristín Þorláksd. Sigmar Ingvarsson Þóra Magnea Halldórsd. 75 ára Ágúst Sverrir B. Sigurðsson Ásgeir Karlsson Ásta Siegfriedsdóttir Hávarður B. Benediktsson Óskar Ásgeirsson Páll Ragnar Gunnarsson 70 ára Anna Sigríður Pálsdóttir Guðjón Ingi Eggertsson Guðrún Björnsdóttir Hlín Gunnarsdóttir Hólmfríður Birna Hildisd. Jón Finnsson Kolbeinn Finnsson Kristbjörg Jónsdóttir Kristinn M. Kristinsson Kristín Björnsdóttir Sólveig G. Ólafsdóttir 60 ára Anna María Ögmundsdóttir Barbara Ferster Einar Guðmundsson Guðrún Björk Eggertsdóttir Guðrún Ingvadóttir Guðrún Sigríður Sævarsd. Gunnar Helgi Sigurðsson Gunnlaugur Guðmundsson Inga Sólveig Friðjónsdóttir Jón Ögmundsson Rannveig Kristmundsdóttir Rósa Björg Andrésdóttir Sigurður H. Bergþórsson Unnur Agnes Hauksdóttir 50 ára Ásgeir Ingvi Jónsson Ásgerður Halldórsdóttir Haraldur B. Siggeirsson Hrönn Arnfjörð Guðbjartsd. Hrönn Gísladóttir Ingibjörg Örlygsdóttir Ólafur Karl Siggeirsson Ólöf Rún Tryggvadóttir Páll Bergþór Guðmundsson Ragnar Páll Jónsson Rósa Signý Baldursdóttir Sigurður Kristjánsson Sólveig Einarsdóttir Svava H. Fuglö Hlöðversd. Þóra Magnea Magnúsdóttir 40 ára Ástríður J. Guðmundsd. Guðný Stefanía Stefánsd. Kristján Karl Guðmundsson Margrét Sigvaldadóttir Sævar Garðarsson 30 ára Alexander Helgason Einar Ingi Sigmundsson Guðmundur Árni Þórðarson Heiðrún Ástríðardóttir Ingibjörg U. Sigmundsd. Ívar Halldórsson Karl Hannes Sigurðsson Loftur Óskar Grímsson Nína Óskarsdóttir Oddur Bogason Vigdís E. S. Halldórsdóttir Þórunn Halldóra Þórðard. Til hamingju með daginn 40 ára Marijana er frá Petrinja í Króatíu en bjó lengi í Serbíu og var í há- skóla þar. Fluttist til Ís- lands 2001 og býr í Njarð- vík. Hún er með meistara- gráðu í mannauðs- stjórnun frá HÍ og sér um fræðslu hjá Allianz. Maki: Arnbjörn Elfar Elíasson, f. 1968, sölustj. hjá Bacco Seaprodcuts. Börn: Arnar Milos, f. 2008, og David Elías, f. 2010. Marijana Cumba 30 ára Harpa Sif er Akur- eyringur, býr í Reykjavík og er hársnyrtir á Eplinu. Sonur: Viktor Örn Brynj- arsson, f. 2012. Systkini: Íris Ósk, Atli og Erna Karen Egilsbörn og Valdís Ósk, Alda Rut og Halldóra Dögg Sigurðar- börn. Foreldrar: Sigurður Hall- dórsson, f. 1959, bifvéla- virki og eigandi Car-X, og Berglind Tulinius, f. 1964, eigandi Sportvers. Harpa Sif Tul- inius Sigurðard. 30 ára Hilmar er Hafn- firðingur, sagnfræðingur og er þróunarstjóri hjá hugbúnaðarfyrirt. Trappa. Maki: Hrafnhildur Ágústsdóttir, f. 1988, lög- fræðingur og vinnur hjá Valitor. Sonur: Emil Ágúst, f. 7.9. 2012, og Hanna Laufey, f. 8.9. 2016. Foreldrar: Emil Hörður Emilsson, f. 1960, og Jó- hanna Sigríður Jónsdóttir, f. 1962, bús. í Hafnarfirði. Hilmar Rafn Emilsson Sigríður Haraldsdóttir hefur varið dokt- orsritgerð sína í lýðheilsuvísindum við Háskóla Íslands. Ritgerðin ber heitið Heilsa í heimabyggð – Heilsufar og notkun heilbrigðisþjónustu eftir bú- setusvæðum á Íslandi (Local health matters – Health and health service ut- ilisation across geographic regions in Iceland). Umsjónarkennari var dr. Unn- ur A. Valdimarsdóttir, prófessor við Læknadeild Háskóla Íslands, og leið- beinandi var dr. Sigurður Guðmunds- son, prófessor við sömu deild. Markmið rannsóknarinnar var að kanna heilsufar og notkun heilbrigðis- þjónustu eftir búsetusvæðum á Íslandi. Áhersla var lögð á að kanna hvort mun- ur væri á sjálfmetinni heilsu, tilteknum fæðingarútkomum og hjarta- og æða- sjúkdómum eftir búsetu innan og utan höfuðborgarsvæðisins þar sem fram- boð á heilbrigðisþjónustu er mismun- andi. Rannsóknin leiddi í ljós svæðis- bundinn mun á heilsu á Íslandi. Á bú- setusvæðum utan höfuðborgarsvæðis- ins eru ýmsar vísbendingar um óhagstæðara heilsufar en á höfuð- borgarsvæðinu. Íbúar utan höfuð- borgarsvæðisins mátu heilsu sína verr en íbúar á höf- uðborgarsvæð- inu og vísbend- ingar voru um mögulegar van- greiningar á sjúkdómum á meðgöngu utan höfuðborg- arsvæðisins. Þá kom í ljós lítils háttar hærri dánartíðni vegna hjarta- og æðasjúkdóma meðal kvenna utan höfuðborgarsvæðisins samanborið við konur innan höfuðborgarsvæðisins. Tíðni útskrifta af sjúkrahúsi og tíðni samskipta við heilsugæslu vegna hjarta- og æðasjúkdóma var almennt hærri utan höfuðborgarsvæðisins. Loks var tíðni nokkurra breytanlegra áhættuþátta hærri utan höfuðborg- arsvæðisins, einkum meðal kvenna. Til þess að vinna gegn svæðis- bundnum mun á heilsu þarf að styrkja heilsugæslu utan höfuðborgarsvæðis- ins. Tryggja þarf virka vöktun heilsu þannig að borin séu kennsl á og brugð- ist sé við sjúkdómum, forstigum þeirra og áhættuþáttum, í meðgöngu og á öll- um æviskeiðum. Sigríður Haraldsdóttir Sigríður Haraldsdóttir er fædd árið 1961. Hún lauk stúdentsprófi frá Mennta- skólanum í Reykjavík árið 1981, BS-prófi í landafræði frá Háskóla Íslands árið 1986 og MS-gráðu í heilsulandfræði frá York University í Toronto í Kanada. Sig- ríður starfar sem sviðsstjóri heilbrigðisupplýsinga hjá Embætti landlæknis. For- eldrar hennar eru Elín Ólafsdóttir og Haraldur Karlsson. Sigríður á tvö börn, Baldur Karl Magnússon og Elínu Ingu Magnúsdóttur. Doktor Hjólavagnar Fást í verslun okkar að Bíldshöfða 10 Stilling hf. | Sími 520 8000 | www.stilling.is/hjolavagnar | stilling@stilling.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.