Morgunblaðið - 12.09.2016, Page 32
MÁNUDAGUR 12. SEPTEMBER 256. DAGUR ÁRSINS 2016
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 517 KR. ÁSKRIFT 5613 KR. HELGARÁSKRIFT 3505 KR. PDF Á MBL.IS 4978 KR. I-PAD ÁSKRIFT 4978 KR.
1. Margir pirraðir vegna lokana
2. „Hundfúlt“ að vera lækkuð niður
3. Ferðatöskurnar skiluðu sér ekki
4. Ragnheiður Elín kveður …
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Rússneskir dagar
í Bíó Paradís
Dagana 15.-18. september verða
Rússneskir kvikmyndadagar haldnir í
Bíó Paradís í samstarfi við Sendiráð
rússneska sambandsríkisins á Ís-
landi, Menningarmálaráðuneyti Rúss-
lands og Northern Travelling Film
Festival. Boðið verður upp á það
besta úr rússneskri kvikmyndagerð,
fjölbreyttar verðlaunamyndir með
rússnesku tali en enskum texta.
Sýning á opnunarmyndinni Journ-
ey to the Mother hefst kl. 20 á mið-
vikudag. Myndin hefur unnið til fjölda
verðlauna á alþjóðlegum kvikmynda-
hátíðum og leikstjóri hennar, Mikhail
Kosyrev-Nesterov, verður heiðurs-
gestur kvikmyndadaganna 2016. Frítt
inn og allir velkomnir.
Þýska hljóm-
sveitin Strom &
Wasser leikur í
Kaldalóni í Hörpu
á morgun og hefj-
ast tónleikarnir kl.
21.
Forsprakki
sveitarinnar er
ljóðskáldið, tón-
listarmaðurinn og aktívistinn Heinz
Ratz. Fyrr á árinu kom út geisladisk-
urinn Reykjavik Projekt með sveitinni
auk þess sem fjölmargir íslenskir tón-
listarmenn tóku þátt í verkefninu. Á
disknum er tónlistararfur Evrópu tek-
inn fyrir, þar sem ska-pönki, rappi, tat-
araskölum, dýraköllum, tónlist austur-
kirkjunnar, balkönskum dönsum og ís-
lenskum stemmum er blandað saman.
Á þessum fyrstu tónleikum sveitar-
innar í Reykjavík koma fram Heinz
Ratz, Ingo Hassenstein, Burkhard
Ruppaner, Enno Dugnus, Luca Seitz og
gestirnir Egill Ólafsson, Ragnheiður
Gröndal og Haukur Gröndal.
Strom & Wasser
leikur í Kaldalóni
Á þriðjudag Norðvestan 10-18 m/s og talsverð rigning N-lands
fram eftir degi en lægir síðan og rofar til, fyrst V-til. Mun hæg-
ari og úrkomulítið syðra. Milt veður.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðan 10-18 m/s, hvassast um landið
norðvestanvert. Rigning en úrkomulítið suðvestan- og vestanlands.
Hiti 6 til 14 stig, mildast sunnan- og austanlands.
VEÐUR
FH-ingar lögðu Valsmenn
að velli, 27:25, í síðasta
leiknum í fyrstu umferð
Olísdeildar karla í hand-
knattleik í Kaplakrika í
gærkvöld. Stjarnan sigraði
Akureyri á laugardaginn
og ÍBV lagði Íslandsmeist-
ara Hauka á sannfærandi
hátt. Í öllum leikjunum
voru nýir leikmenn sem
hafa spilað erlendis
undanfarin ár í stórum
hlutverkum. »4
Nýir menn í
lykilhlutverkum
Stjarnan stendur vel að vígi í einvíg-
inu um Íslandsmeistaratitilinn í
knattspyrnu þrátt fyrir að mikil
meiðsli herji á liðið og markadrottn-
ingin Harpa Þorsteinsdóttir leiki ekki
meira með þar sem hún er ólétt. „Það
eru stundum kannski fjórir leikmenn
að æfa — aðrir eru meiddir. Það
spiluðu margir leikmenn þennan leik
sem geta ekkert æft á milli leikja, en
það sást að við
myndum ekki
láta þetta
stöðva okkur,“
segir fyrirliði
Stjörn-
unnar. »8
Stundum eru bara fjórir
leikmenn á æfingu
„Þetta var lykilleikur upp á fram-
haldið og tapið gerir stöðuna vissu-
lega erfiðari. Ég tel að við verðum að
bera sigur úr býtum í báðum leikj-
unum sem eftir eru til þess að kom-
ast í lokakeppnina. Það er vel raun-
hæft að stefna á það,“ segir Friðrik
Ingi Rúnarsson um stöðu körfubolta-
landsliðs karla eftir ósigurinn gegn
Sviss á laugardaginn. »s
Telur að tvo sigra þurfi
til að komast á EM
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Í vöxt færist að settir séu upp minn-
ingarkrossar á þeim stöðum við þjóð-
vegi landsins þar sem banaslys hafa
orðið. Krossar þessir sjást víða og af
handahófi má
nefna Reykjanes-
braut, Mosfells-
heiði, Sandskeið,
Flóann og Skeiða-
vegamót austan
við Selfoss og í
Þjórsárdal. Á
Vesturlandi má
tiltaka kross sem
er efst í Norður-
árdal uppi undir
sporði Holta-
vörðuheiðar og norðanlands eru
minningarmerki til dæmis á tveimur
stöðum á Ólafsfjarðarvegi, það er á
leiðinni frá Moldhaugnahálsi norðan
við Akureyri til Dalvíkur.
Viðkvæmt fyrir aðstandendur
Krossarnir eru raunar mun víðar
um allt landið en ekki er svo vitað sé
haldin nein skráning um fjölda þeirra
og staðsetningu. „Við höfum tekið eft-
ir þessum krossum en höfum ekki
sérstakt eftirlit með þeim eða skrán-
ingu. Fólk hefur ekki verið að sækja
um sérstakt leyfi fyrir þessu til okk-
ar. Ef þeir eru í eða utan við helg-
unar- og öryggissvæði vegar látum
við kyrrt liggja, enda eru þetta við-
kvæm mál fyrir aðstandendur,“ segir
Svanur G. Bjarnason, svæðisstjóri
Vegagerðarinnar á Suðursvæði.
Sr. Óskar Hafsteinn Óskarsson,
sóknarprestur í Hruna í Árnessýslu,
segir tilkomu minningarkrossanna
um margt athyglisverða þróun.
„Hvernig fólk sem missir ástvini sína
er er afar einstaklingsbundið. Ef það
léttir fólki missinn að setja þessa
krossa upp á slysstað er til nokkurs
unnið. Það er hins vegar miður ef
þetta breytir eðlilegri sorg í þrá-
hyggju. Fyrst eftir slys eru syrgjandi
eftirlifendur gjarnan áfram um að
halda minningu hins látna á lofti og
þetta getur verið hluti af slíku. Lífið
verður þó alltaf að finna sér farveg að
nýju,“ segir Óskar Hafsteinn, sem
bætir við að á ferðum sínum um Suð-
urland sjái hann oft krossa í vegkönt-
unum þar um slóðir.
Áminning um varkárni
„Já, almennt er ég hlynntur þessu,
því krossarnir eru, auk þess að vera
minningartákn, góð áminning til fólks
um að fara varlega í umferðinni.
Þetta er fín forvörn. Svo er þetta líka
eftirtektarvert í því ljósi að nú þegar
svo margir segja að guðstrúin meðal
fólks sé að lognast út af komi þetta
tákn svona sterkt inn – en í þessu efni
er hún afar sterk og logar skært,“
segir sr. Óskar.
Krossum fjölgar við vegina
Slysstaðir æ
oftar helgaðir
minningu látinna
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Kross Minning í vegbrún á Árskógsströnd við Eyjafjörð, en á þeim slóðum hafa orðið banaslys í gegnum tíðina.
Óskar H.
Óskarsson
Þekkt kennimark við hringveginn er
krossarnir við Kögunarhól í Ölfusi,
milli Hveragerðis og Selfoss. Þeir eru
alls 52; jafn margir og fjöldi látinna
var í umferðarslysum á leiðinni milli
Selfoss og Hveragerðis frá 1972 til
2006, árið sem krossinn var settur
upp. Voru krossarnir settir upp m.a. til
að þrýsta á um samgöngubætur.
Kross er trúartákn og vísaði upp-
haflega til dauðans. Þegar krossfestur
Jesús reis upp frá dauðum breytti
hann þeirri mynd. Þá varð krossinn
sigurmerki og er svo enn.
Kennimark og tákn sigurs
HVAÐ MERKIR KROSSINN SEM TRÚARTÁKN?
Ölfus Krossar á sínum stað.