Fréttablaðið - 09.12.2016, Page 26
9 . d e s e m b e r 2 0 1 6 F Ö s T U d A G U r26 s p o r T ∙ F r É T T A b L A ð i ð
FóTboLTi Riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í fótbolta lauk
á miðvikudagskvöldið og er nú vitað hvaða 16 lið halda áfram
keppni eftir áramót, hvaða átta falla niður í Evrópudeildina
og vegferð hvaða átta liða er lokið í Evrópu þetta tímabilið.
Riðlakeppnin að þessu sinni var mikil skemmtun og nóg af
mörkum en sparkspekingar spyrja sig nú hvort gæðin séu
nógu mikil og hvort bilið á milli liðanna sé að breikka.
Í heildina eru spilaðir 96 leikir í sex umferðum í Meistara-
deildinni og að þessu sinni voru skoruð fleiri en fjögur mörk
í 33 leikjum eða í 35 prósent leikjanna. Tíu af þessum 33
leikjum enduðu með jafntefli en þrettán af þessum 33 marka-
súpum enduðu með algjöru rústi þar sem sigurliðið vann með
fjórum mörkum eða fleiri. Sjaldan hafa nefnilega sést jafn
miklir yfirburðir í leikjum og í Meistaradeildinni í ár.
Spennan var ekki mikil en meira og minna var allt ráðið
fyrir lokaumferðina. Eins og síðustu ár var lítið um óvænt
tíðindi í riðlakeppninni þar sem stóru strákarnir fara alltaf
áfram. Bilið virðist vera að breikka á milli stóru liðanna og
þeirra minni en ótrúlega tölur sáust í riðlakeppninni að þessu
sinni eins og 7-0 sigur Barcelona á Celtic. Það var alls ekkert
einsdæmi.
Meistaradeildin er að verða svolítið fyrirsjáanleg þar sem
stærstu og ríkustu liðin komast nær alltaf upp úr riðlakeppn-
inni og síðan lengst í útsláttarkeppninni. Sem betur fer er til lið
eins og Atlético Madrid sem heldur fótboltarómantíkinni á lífi.
Næst á dagskrá í Meistaradeildinni eru 16 liða úrslitin en
til að gefa einhverja mynd af hversu fyrirsjáanleg þau eru er
fínt að skoða aðeins hvernig undanúrslitin hafa verið síðustu
fimmtán ár. Fjórtán mismunandi lið frá sjö mismunandi lönd-
um spiluðu einn eða fleiri leiki í undanúrslitum frá 2001-2006.
Næstu fimm árin, frá 2006-2011, spiluðu ellefu lið frá fimm
löndum að minnsta kosti einn leik í undanúrslitum
Áfram minnkaði fjölbreytnin því síðustu fimm ár, frá 2011-
2016, hafa átta lið frá fjórum löndum spilað í undanúrslitum
Meistaradeildarinnar. Lið frá Frakklandi hafa ekki komist í
undanúrslit síðustu fimm ár og lið frá Portúgal og Hollandi
hafa ekki komist svo langt í rúman áratug.
Það er vonandi að þetta breytist á næstu árum en þangað
til lítur Fréttablaðið aðeins yfir farinn veg í riðlakeppninni
þetta tímabilið og verðlaunar það besta auk þess að afhenda
ein skammarverðlaun.
Fyrirsjáanleg markasúpa
Riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í fótbolta lauk á mið-
vikudagskvöldið en dregið verður í 16 liða úrslitin eftir helgi.
Þau hefjast svo eftir áramót. Fréttablaðið lítur aðeins yfir fjör-
ugar sex leikvikur þar sem mikið var skorað en spennan var
ekki mikil í nokkuð fyrirsjáanlegri riðlakeppni.
Besti leikurinn
Man. City - Barcelona 3-1
Það var mikið af skemmtilegum leikjum fyrir fótboltaáhuga-
menn í riðlakeppni Meistaradeildarinnar þetta tímabilið.
Til dæmis má nefna tólf marka ruglið í Dortmund þar sem
heimamenn unnu Legía Varsjá. 8-4. Ef horft er til gæða
fótboltans, leiks þar sem ekki var hægt að líta af skjánum,
kemur aðeins einn til greina. Það er 3-1 sigur Manchester
City gegn Barcelona á Etihad-vellinum. Sá leikur er það sem
Meistaradeildin snýst um.
skaMMarverðlaunin
Besiktas
Það er auðvelt að benda á eitt af þeim sjö liðum sem unnu ekki
leik í Meistaradeildinni á þessari leiktíð og þá sérstaklega Club
Brugge og Dinamo Zagreb sem fengu ekki eitt stig í riðlakeppn-
inni. Kökuna fær þó tyrkneska liðið Besiktas sem fór til Kænu-
garðs í lokaumferðinni og mætti Dynamo Kiev. Úkraínumennirnir
voru ekki búnir að vinna leik og áttu ekki möguleika á að komast
áfram en Besiktas vissi að sigur gæti komið því áfram ef Napoli
ynni Benfica. Jú, Napoli vann Benfica en Besiktas varð sér til
skammar með því að tapa, 6-0, gegn botnliðinu og missa tvo
menn út af með rautt. Góða skemmtun í Evrópudeildinni.
Besti varnarMaðurinn
adil rami, sevilla
Franski miðvörðurinn spilaði eins og kóngur í hjarta varnarinn-
ar hjá Sevilla sem hélt hreinu fimm sinnum og fékk á sig öll
þrjú mörkin í riðlinum í einum og sama leiknum gegn Juv-
entus í fimmtu leikviku en spænska liðið fylgir gömlu konunni
í 16 liða úrslitin. Rami vann 37 bolta í og við teiginn, átti þrjár
lykiltæklingar, hreinsaði boltann þrettán sinnum frá marki og
varði tvö skot. Þá kláraði hann 83 prósent sendinga sinna.
Besti Markvörðurinn
JBan Oblak,
atlético Madrid
Slóveninn er smám saman að
vinna sér sess á meðal bestu
markvarða heims. Það er eins
og með framherjana hjá Atlét-
ico; liðið er alltaf klárt með
næsta markvörð þegar einhver
fer. Frá De Gea í Courtois í
Oblak, ekki slæmt. Atlético
vann riðilinn með Bayern
München í og hirti 15 stig af 18
mögulegum. Liðið skoraði ekki
nema sjö mörk en Oblak með
trausta Atlético-vörnina fyrir
framan sig hirti boltann aðeins
tvisvar sinnum úr netinu.
Besti MiðJuMaðurinn
riyah Mahrez, leicester
Fáir nýliðar í Meistaradeildinni hafa staðið sig betur en
Leicester. Fáir nýliðar á meðal leikmanna hafa haft jafn mikil
áhrif á lið sem er nýliði og Alsíringurinn Mahrez. Hann skoraði
fjögur mörk og lagði upp eitt en Leicester skoraði varla mark til
að byrja með í keppninni nema hann ætti þar hlut að máli.
nýJa stJarnan
andré silva, Porto
Það hefur aldrei þótt einhver
svakalegur gæðastimpill að
vera framherji frá Portúgal,
landi miðjumannanna og
miðvarðanna. Þessi 21 árs
gamli strákur gæti verið að
breyta þeirri ímynd en hann
fór á kostum með Porto sem
hafnaði í öðru sæti í G-riðli
á eftir Englandsmeisturum
Leicester. Silva skoraði fjögur
mörk og lagði upp önnur tvö
á leið portúgalska liðsins í 16
liða úrslitin.
Besti fraMherJinn
lionel Messi, Barcelona
Það kemur kannski ekkert mikið á óvart að mögulega
besti fótboltamaður sögunnar hafi staðið sig best í riðla-
keppninni. Hann er sjálfur búinn að setja viðmiðið hátt
fyrir löngu en ekki verður annað sagt en að hann hafi
staðið undir öllum sínum gæðakröfum. Messi skoraði
tíu mörk í fimm leikjum, öll með vinstri fæti og níu innan
teigs auk þess sem hann lagði upp tvö mörk fyrir Börs-
unga sem rústuðu sínum riðli í baráttu við Manchester
City. Messi skoraði helming marka Barcelona í riðlinum og
þurfti aðeins fimmtán tilraunir á markið til þess. Þá kláraði
hann 80 prósent sendinga sinna.
0
9
-1
2
-2
0
1
6
0
4
:3
0
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
9
C
-C
9
C
C
1
B
9
C
-C
8
9
0
1
B
9
C
-C
7
5
4
1
B
9
C
-C
6
1
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
7
2
s
_
8
_
1
2
_
2
0
1
6
C
M
Y
K