Fréttablaðið - 09.12.2016, Blaðsíða 70
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
„Þetta kom allt til vegna þess að
Sena hafði samband og bauð mér
að syngja í Höllinni á Jólagestum
Björgvins, það er heiður fyrir mig að
fá að stíga á svið með svona flottum
söngvurum eins og Björgvini Hall-
dórssyni. Ég sagði bara strax já, og
er virkilega spenntur að koma fram
á Jólagestum Björgvins,“ segir Tor-
steinn Einarsson söngvari en hann
mun koma fram með Jólagestum
Björgvins sem troða upp í Höllinni
á morgun.
Thorsteinn mun syngja tvö lög
á tónleikunum, annars vegar dúett
með Friðriki Dór og hins vegar lagið
sitt „Leya“ sem hefur nú þegar feng-
ið yfir 800.000 spilanir á YouTube,
ásamt því að hafa setið á topp 10
listanum í Austurríki í þrjár vikur.
„Ég kem til með að syngja White
Christmas, eða hvít jól ásamt Frið-
riki Dór, svo ætla ég líka að taka
lag eftir mig sem heitir Leya, með
strengjum og stóru bandi, ég hlakka
mikið til,“ segir Thorsteinn.
Þegar Thorsteinn var aðeins
átján ára, hafnaði hann í fjórða sæti
í austurrísku hæfileikakeppninni
Die große Chance, keppnin er með
sama hætti og hinir stórvinsælu
þættir Got Talent, en þess má geta
að sigurvegari Eurovision árið 2014,
Conchita Wurst, tók þátt í keppn-
inni á sínum tíma og lenti í sjötta
sæti.
„Það var mjög gaman að taka
þátt í keppninni, ég fékk að syngja
með þekktu og reynslumiklu fólki í
Austurríki, þetta var mikil reynsla,
og ég lærði mjög mikið,“ segir hann
og bætir við að hann sé virkilega
þakklátur fyrir það.
En ertu orðinn frægur í Austur-
ríki?
„Ég finn fyrir því þegar ég er úti í
búð að fólk vill taka myndir af mér
og svoleiðis. Þetta er samt alls ekk-
ert Michael Jackson-dæmi, en ég
finn fyrir því að fólk þekkir mig,“
segir hann.
Eftir frábært gengi í Die große
Chance gerði Thorsteinn samning
við Sony sem ætlar sér stóra hluti
með hann í framtíðinni.
„Það er virkilega gott að vinna
með Sony, þeir eru orðnir mjög
góðir vinir mínir, við vinnum
mikið saman og þetta er eins og
fjölskyldan mín. Þetta er virkilega
skemmtilegt tækifæri, og ég fæ að
búa til tónlist sem ég fíla sem er
virkilega gott,“ segir hann.
Thorsteinn hefur sungið mikið
undanfarið en hann kom fram á
Donauinselfest í júní þar sem hann
söng fyrir mörg þúsund áhorfendur.
„Það var frábær skemmtun að
spila fyrir framan 40.000 manns, og
allir gátu sungið með,“ segir hann
og bætir við að þetta hafi verið einn
besti dagur lífs hans.
Nóg er um að vera fram undan
hjá Thorsteini en hann mun fljúga
beint til Austurríkis eftir tónleikana
þar sem hann mun koma fram í
jólaþætti þar í landi, með nýjustu
smáskífuna sína, Swingset.
„Það er mjög mikið að gera fram
að jólum og svo er ég bara að fara á
fullt í stúdíótökur, að búa til meiri
tónlist,“ segir Thorsteinn, en hann
ætlar að eyða jólunum í faðmi fjöl-
skyldunnar í Salzburg þar sem hann
býr. gudrunjona@frettabladid.is
Hlakkar til
að koma fram
á Íslandi
Tónlistarmaðurinn Thorsteinn Einarsson sló heldur betur í gegn í raunveruleika-
þættinum Die große Chance í Austurríki árið 2014. Í kjölfarið skrifaði hann undir
plötusamning hjá Sony. Hann mun koma fram á Jólagestum Björgvins í Höllinni.
Thorsteinn mun syngja tvö lög á Jólagestum Björgvins í Höllinni á morgun. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Ég finn fyrir þvÍ
þegar Ég er úti Í búð
að fólk vill taka myndir af
mÉr og svoleiðis. þetta er
samt alls ekkert micHael
jackson-dæmi, en Ég finn
fyrir þvÍ að fólk þekkir mig.
leggur af
stað eftir
Nánari upplýsingar á coke.is
1
dag!
C
o
c
a
-C
o
la
a
n
d
t
h
e
C
o
n
to
u
r
B
o
tt
le
a
re
r
e
g
is
te
re
d
T
ra
d
e
m
a
rk
s
o
f
T
h
e
C
o
c
a
-C
o
la
C
o
m
p
a
n
y.
9 . d e s e m b e r 2 0 1 6 F Ö s T U d A G U r50 L í F i ð ∙ F r É T T A b L A ð i ð
0
9
-1
2
-2
0
1
6
0
4
:3
0
F
B
0
7
2
s
_
P
0
7
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
9
C
-9
3
7
C
1
B
9
C
-9
2
4
0
1
B
9
C
-9
1
0
4
1
B
9
C
-8
F
C
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
7
2
s
_
8
_
1
2
_
2
0
1
6
C
M
Y
K