Fréttablaðið - 09.12.2016, Page 66
meint líkindiErtu með þessu tísti að segja að StopWaitGo séu að stela laginu þínu?„Ég myndi nú ekki alveg segja það. Ég gerði lag fyrir sirka ári
og ég var mjög ánægður með það
og langaði að fá smá „feedback“
þannig að ég sendi þetta á Friðrik
Dór og Ásgeir í StopWaitGo. Síðan
kemur Fröken Reykjavík út og ég
tengdi aðeins við það, fannst það
svolítið svipað og fór að sýna fjöl-
skyldu og vinum. Flestir voru sam-
mála um að þetta væri svolítið líkt.
Ég var bara sáttur, hugsaði að þeir
væru kannski bara að nota „inspo“
frá mér í lagið. Það voru svo margir
búnir að segja mér að þetta væri
svipað þannig að ég ákvað að henda
út tísti og það varð allt vitlaust,“
segir Darri Tryggvason.
Nú eru komin yfir fjögur hundr-
uð læk á tístið og því hefur verið
deilt meira en fjörutíu sinnum.
Hafa þeir svarað eða haft samband
við þig?
„Ásgeir er búinn að svara og
segir að Ragnar bróðir hans hafi
gert lagið. Hann segir að þetta sé
acapella úr Glowie-lagi – sem ég trúi
alveg. Ég ætla ekki að saka þá um að
taka neitt frá mér. Mér finnst flott
að fá viðurkenningu – ég er búinn
að gera tónlist í þrjú ár og hef ekki
fengið neitt svona áður.“
Þannig að þú ferð sáttur frá
borði?
„Nokkurn veginn, pínu svekkj-
andi að þetta hafi verið líkt en
ekki það sama. En heilt yfir er ég
ánægður með að hafa fengið athygli
og viðurkenningu fyrir tónlistina
Tíst um
tveggja laga fer á flug
5-6 kjúklingabringur (þetta er
ekki svo nákvæmt, einn poki af
frosnum bringum er gott)
½ laukur
1 stór eða 2 litlar rauðar paprikur
1 bréf burritos-kryddmix
2 krukkur af salsasósu (medium
eða sterk, jafnvel ein af hvoru)
½ lítri matreiðslurjómi
Smá klípa af rjómaosti (má
sleppa)
Tortillur (1 pakki af minni
gerðinni)
Mozzarella-ostur
Skerið laukinn og paprikuna fínt og
kjúklingabringurnar í litla bita. Hitið
olíu á pönnu við miðlungsháan hita.
Steikið laukinn og paprikuna þar til
byrjar að mýkjast, bætið þá kjúklingn-
um á pönnuna og steikið áfram. Hellið
kryddinu yfir og steikið í smástund til
viðbótar. Hellið salsasósum og mat-
reiðslurjóma yfir og látið suðuna koma
upp. Hrærið rjómaosti saman við sé
hann notaður. Látið sjóða saman í
nokkrar mínútur. Setjið tortillaköku
í botn á eldföstu formi, klippið hana
til eftir þörfum. Setjið kjúklingasós-
una yfir og síðan á víxl tortillakökur
og kjúklingasósu. Endið á kjúklinga-
sósunni. Stráið mozzarella-osti yfir og
setjið inn í 180° heitan ofn þar til ostur-
inn er bráðnaður og kominn með fal-
legan lit. Uppskrift fengin af ljufmeti.com.
Mexíkóskt kjúklingalasanja fyrir 6-8
Uppskriftin kemur af vefnum ljúfmeti.com.
Ég æTla
ekki að
saka þá uM að
Taka neiTT frá
MÉr. MÉr finnsT
floTT að fá
viðurkenningu
– Ég er búinn að
gera TónlisT í
þrjú ár og hef
ekki fengið neiTT
svona áður.
Darri
svona keMur bara
fyrir þegar Menn
eru að gera TónlisT. það er
ekki eins og þeTTa sÉ eins,
það er bara svipaður
fílingur í þessuM löguM.
Pálmi Ragnar
Darri Tryggvason
tísti um möguleg
líkindi ársgamals
lags síns og Fröken
Reykjavíkur, smells
Friðriks Dórs, en
lagið er pródúserað
af StopWaitGo-hópn-
um. Umrætt tíst
hefur farið víða um
samfélagsmiðlana og
sitt sýnist hverjum
um þessi meintu
líkindi laganna.
Stefán þór
Hjartarson
stefanthor@frettabladid.is
Þeir Pálmi
Ragnar Ásgeirs
son, Ásgeir Orri
Ásgeirsson og Sæ
þór Kristjánsson
mynda StopWait
Go en þeir eru
mennirnir á bak
við nánast alla
íslenska popp
smelli.
FRéttablaðið/GVa
mína,“ segir Darri Tryggvason
sáttur, enda hefur nafn hans
ferðast víða í kjölfarið á
tístinu hans.
„Mér finnst þetta bara
mjög fyndið og skemmti-
legt. Ég gerði reyndar
ekki þennan part í lag-
inu, það var bróðir minn
sem gerði hann, Pálmi
Ragnar. Þetta er ekkert
mál og ekki af Darra hálfu
heldur.
Ég var ekki einu
sinni búinn
a ð s j á
s k i l a -
boðin
f r á
Darra, þannig að það er ómögulegt
fyrir okkur að hafa verið búnir að
heyra lagið hans,“ segir Ásgeir Orri
Ásgeirsson úr StopWaitGo inntur
eftir viðbrögðum við tístinu hans
Darra.
„Ég talaði beint við hann Darra og
hann var mjög léttur og sendi mér á
Facebook að hann væri ekki að saka
okkur um að stela neinu. Ég sagði
honum að lagið hans væri geðveikt.
Svona kemur bara fyrir þegar menn
eru að gera tónlist. Það er ekki eins
og þetta sé eins, það er bara svip-
aður fílingur í þessum lögum. Við
notuðum acapelluna af lagi með
Glowie til að búa til þennan húkk
sem um ræðir. Þetta er náttúrulega
acapella sem við eigum og höfum
einir aðgang að, hann hefur notað
eitthvað annað og svona gerist
bara,“ segir Pálmi Ragnar Ásgeirsson,
StopWaitGo-meðlimur og sá sem á
heiðurinn af umræddum hluta lags-
ins Fröken Reykjavík.
„Ég sagði við Darra að hann ætti
endilega að senda mér meira efni og
hver veit nema við byrjum bara að
vinna saman út af þessu, það væri
náttúrulega besta lendingin,“ sagði
Pálmi Ragnar að lokum.
Darri tryggvason vakti athygli
á twitter á miðvikudaginn.
Friðrik Dór er flytjandi Fröken Reykjavíkur en það
er sannarlega ekki fyrsta lagið sem hann vinnur
með StopWaitGo. FRéttablaðið/ERniR
Stjórn Landsbréfa hefur ákveðið að slíta fjárfestingar-
sjóðnum Fyrirtækjabréfum Landsbankans,
kt: 600390-9029 (áður Landsvaki – Fyrirtækjabréfadeild).
Sjóðfélögunum verður sent bréf vegna slitanna.
Nánari upplýsingar veitir Verðbréfa- og lífeyrisráðgjöf
Landsbankans í síma 410 4040 eða í gegnum netfangið
fjarmalaradgjof@landsbankinn.is.
Landsbréf og Landsbankinn.
Tilkynning um slit sjóðs
9 . d e s e m b e r 2 0 1 6 F Ö s T U d A G U r46 L í F i ð ∙ F r É T T A b L A ð i ð
0
9
-1
2
-2
0
1
6
0
4
:3
0
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
9
C
-B
A
F
C
1
B
9
C
-B
9
C
0
1
B
9
C
-B
8
8
4
1
B
9
C
-B
7
4
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
7
2
s
_
8
_
1
2
_
2
0
1
6
C
M
Y
K