Fréttablaðið - 09.12.2016, Page 28
Síða hárinu sveiflað á tónleikum. „Það er auðvitað þægilegt fyrir félagsfælna að
fela sig bak við hárið,“ segir Þráinn. Mynd/Halldór IngI
Vínylsafnarinn Þráinn. „Þessir tveir eru úr hljómsveitinni Korpiklaani en á síðasta tónleikaferðalagi gengum við fleiri kíló-
metra á dag til að finna plötubúðir.“
auðvitað á og það eru ekkert
allir alltaf sammála en við
erum að vinna að sama markinu
og ef allir eru samtaka þá er þetta
minna mál. Við erum allir frekir
og sjálflægir egóistar með sterk
ar skoðanir og þessi blanda virk
ar vel. Enginn amlóðaháttur hjá
Skálmöld! Við krakka sem lang
ar að stofna hljómsveit segi ég:
Gerið það núna, strax! Ekki bíða!
Látið ykkur dreyma um hvernig
tónlistin á að hljóma og byrjið að
æfa ykkur. Þegar þið eruð búin að
æfa ykkur þá æfið þið ykkur að
eins meira og þegar þið eruð búin
að því þá æfið pínulítið meira. Það
er mikilvægt að hlusta á ráðlegg
ingar annarra en þetta snýst samt
alltaf um hve mikla vinnu þið legg
ið í þetta.“
Slakar á við dauðarokk
Hvernig tilfinning er að horfa
framan í öskrandi áhorfendur af
sviðinu? „Líklega besta tilfinning í
heimi. Öll feimni, allt stress og allt
vesen hverfur þegar ég stíg upp á
svið og sé áheyrendur. Að spila
með Skálmöld og upplifa viðbrögð
in sem við fáum er einstakt,“ segir
Þráinn og þakkar vinsældir hljóm
sveitarinnar hjá breiðum hópi fólks
á öllum aldri því, að þeir séu ein
lægir í sinni tónlistarsköpun.
„Við erum heiðarlegir og elsk
um að gera það sem við gerum.
Fólk tengir við það,“ segir hann og
blæs á að rokkheimurinn sé lokað
ur harðhausaheimur sem ástæða
sé fyrir lattelepjandi meðaljón að
óttast.
„Það eru bara rólegheitamenn
í þungarokkinu, maður fær svo
mikla útrás við að spila og hlusta á
harða tónlist. Fleiri ættu að hlusta
á þungarokk, þá væri heimurinn
betri,“ fullyrðir Þráinn og segir
ekkert betra til að róa taugarnar
en dynjandi dauðarokk.
„Ég þarf oftast kraftmikla tón
list til að mér líði vel og dauða
rokkið fær mig til að slaka á. Svo
á ég stundir þar sem ég nýt þess
að hlusta á rólegheitamúsík eins
og Mike Oldfield og klassíkina.
Það var svo gaman að spila með
sinfóníuhljómsveitinni í Hörpu og
ég vona að við gerum þetta saman
aftur. Tónlist er bara tónlist,“
segir Þráinn og þegar hann er
spurður hvað hann sé að hlusta á í
dag eru það jólalögin! En reyndar
líka rokk. „Ég er að hlusta á Para
dise Lost, Vallenfyre, nýju Metall
icaplötuna og nýju Hammer
fallplötuna. Já og Motörhead,
maður á alltaf að hlusta á Motör
head, alla daga, alltaf. Það er betra
fyrir fólk.“
Felur Feimnina
bak við hárið
Þráinn er síðhærður eins og títt er
um þungarokkara og spurður út í
hárið á sér segir hann það ekki ein
ungis þjóna þeim tilgangi að sveifla
því á tónleikum. Lubbinn komi sér
vel til að skýla sér á bak við, sér
staklega þegar spennufall taki við
eftir tónleika.
„Það er auðvitað þægilegt fyrir
félagsfælna að fela sig bak við
hárið. Við höfum frá upphafi vanið
okkur á að fara fram í sal eftir gigg
og heilsað upp á fólk. Ég átti mjög
erfitt með að stíga þetta skref á
sínum tíma. Mér þykir gott að vera
einn eftir tónleika og eftir gigg á
ég til að detta niður í blús sem
tekur smá stund að stíga upp úr en
þetta er ekkert stórmál í dag. En
ég neita því ekki að stundum kemur
sér vel að fela sig bak við lubbann.
Ég byrjaði að safna 14 ára gamall
og nei, ég ætla ekki að klippa mig
stutt,“ segir Þráinn og skellir upp
úr þegar hann er spurður hvernig
hann hirði um hárið á sér; fléttar
hann það jafnvel eða bindur í tagl?
„Ég fæ þessa spurningu óþægilega
oft en ég geri ekkert sérstakt við
hárið. Um daginn var ég reyndar
spurður hvort ég ætti ekki að vera
á hárvörusamningi. Mér líst vel á
það, hendið inn tilboðum!“
ruglaður pabbi
Þráinn býr með Berglindi Rún
arsdóttur og saman eiga þau tvær
stelpur, Elísabetu tíu ára og Bryn
hildi, sem verður fjögurra ára í
janúar. Dæturnar fá tónlistarlegt
uppeldi en Þráinn rekur sinn eigin
tónlistarskóla og segir krökkum
mikilvægt að hafa aðgang að tón
list og hljóðfærum. Sjálfur glamr
ar hann á öll hljóðfæri og fær hljóm
úr þeim öllum, nema trompet. Tón
list sé einfaldlega næring fyrir
sálina. Eldri dóttirin hefur mætt á
nokkra Skálmaldartónleika en ann
ars segist Þráinn ekki ýta Skálmöld
að dætrunum.
„Þær hlusta mikið á tónlist en
eiga eftir að uppgötva þungarokkið,
það kemur allt saman,“ segir hann.
Spurður hvernig pabbi hann sé seg
ist hann „óttalegur ruglukollur“.
„En ég geri mitt besta,“ bætir hann
við. Hann leggi mikið upp úr sam
veru við dætur sínar og fjölskyld
an sé dugleg við að slaka á heima.
„Mér finnst mjög mikilvægt að
fara með yngri stelpuna í leikskól
ann og sækja hana, við tölum mikið
saman á leiðinni og syngjum. Þetta
eru gríðarlega mikilvægar stund
ir sem ég náði líka með eldri stelp
unni á sínum tíma, hún röltir líka
stundum með okkur áleiðis í skól
ann sinn. Við verjum miklum tíma
saman, förum í sund, spilum á spil
og hlustum á tónlist. Við erum líka
góð í að slaka á heima, við erum
ekkert á sífelldu brölti.“
Súrmeti hvunndagS
Einhvern veginn kemur ekki
á óvart að Þráinn er hrifinn af
gömlum og gildum íslenskum mat.
Þorramatur er meira að segja á
borðum hvunndags á heimilinu
þó Þráinn sé líka hrifinn af vel
krydduðum indverskum réttum.
Matargleðinni deilir hann með
föður sínum og stefna þeir á að
gefa út bók. „Hún mun hugsanlega
kallast „Borðað með feðgum“. Fólk
þarf að læra að meta súrmetið og
reykta matinn og ég held að þessi
bók gæti slegið í gegn. Á kápunni
verður mynd af innmat!“
Fólk er kynningarblað
sem býður auglýsendum að
kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana. Í blaðinu er
einnig hefðbundið ritstjórnarefni.
Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
ÚtgefandI: 365 MIðlar | ÁbyrgðarMaður: Svanur Valgeirsson
uMSjónarMenn efnIS: Elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349 | Lilja Björk Hauksdóttir, liljabjork@365.is,
s. 512 5372 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@365.is, s. 512 5367 | Sólveig Gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351
Starri Freyr Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358 | Vera Einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357
SöluMenn: Atli Bergmann, atlib@365.is, s. 512 5457 | Jóhann Waage, johannwaage@365.is, s. 512 5439
| Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.is, s. 512 5433
„Þær hlusta mikið á tónlist en eiga eftir
að uppgötva þungarokkið, það kemur
allt saman,“ segir Þráinn um dætur
sínar, þær elísabetu, sem er hér með
honum á mynd, og brynhildi.
Skatan er komin
á Sjávarbarinn!
Erum byrjuð að framreiða ilmandi
skötu með öllu tilheyrandi.
Alla daga fram að jólum.
Afsláttur fyrir hópa.
Pantanir í síma 517 3131 og 696 5900.
Sjávarbarinn – Grandagarði 9 – sjavarbarinn.is
Skötuveisla
3.600 kr. fyrir
tvo til og með
16.des.
Klipptu flipann
út og taktu með
þér.
2
FYRIR
1
9 . d e s e m b e r 2 0 1 6 F Ö s T U d A G U r2 F ó l k ∙ k y n n i n G A r b l A ð ∙ X X X X X X X XF ó l k ∙ i ∙ l í F s s T í l l
0
9
-1
2
-2
0
1
6
0
4
:3
0
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
9
C
-D
D
8
C
1
B
9
C
-D
C
5
0
1
B
9
C
-D
B
1
4
1
B
9
C
-D
9
D
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
7
2
s
_
8
_
1
2
_
2
0
1
6
C
M
Y
K