Fréttablaðið - 09.12.2016, Qupperneq 10
Q3 vekur eftirtekt
Nýr Audi Q3 er vel útbúinn, lipur og svipmikill.
Hann er skilvirkur og sportlegur, á sama tíma
rúmgóður að innan en smágerður að utan.
Audi Q3 er byggður fyrir nýjar væntingar.
Verð frá 5.490.000 kr.
HEKLA · Laugavegi 170-174 / Audi.is
orkumál „Það virðist hafa myndast
þverpólitísk samstaða um að Eyja-
fjörður og jafnvel Norðurland allt
skuli vera orkusvelt til framtíðar,“
segir Þröstur Friðfinnsson, sveitar-
stjóri Grýtubakkahrepps, í nýjum
pistli á heimasíðu hreppsins.
Þröstur segir flutningskerfi raf-
orku inn á Eyjafjarðarsvæðið vera
sprungið og ekki taki minna en
fimm ár að bæta þar úr. Virkjanleg
fallvötn í Skagafirði og Þingeyjar-
sýslu séu í verndarflokki og vaxandi
andstöðu gæti við gufuaflsvirkjanir
auk efasemda um endingu jarð-
hitans. Allir stjórnmálaflokkar séu
andvígir lagningu háspennulínu yfir
Sprengisand.
„Þeir stjórnmálamenn og einnig
umhverfisverndarsinnar sem ætla
að koma í veg fyrir lagningu línu yfir
Sprengisand eru í reynd að lýsa því
yfir að ekki skuli lengur ríkja jafn-
rétti til búsetu á Íslandi,“ skrifar
Þröstur. „Aðrar leiðir til að leysa
orkuþörf hér á svæðinu eru ein-
faldlega verri í öllu tilliti, hvort sem
horft er til kostnaðar eða umhverfis.
Byggð sem ekki á kost á rafmagni af
pólitískum ástæðum á sér enga von
um að geta vaxið og dafnað eðli-
lega.“
Þá segir Þröstur það hrikalega
hömlun á framfarir og íbúaþróun
að ekki sé hægt að útvega raforku
til þeirra sem áhuga hefðu á að
stofna til nýrrar atvinnustarfsemi.
Gagnaver og önnur meðalorkufrek
starfsemi séu alveg út úr myndinni
næstu árin, jafnvel áratugi.
„Það sem enn verra er, að jafn-
vel þó að takist að tengja vestur til
Blöndu og austur til Kröflu, mun
áfram vanta afl og öryggi í kerfið
til frambúðar meðan ekki tekst að
tengja við virkjanir á suðurhálend-
inu,“ segir sveitarstjórinn meðal
annars í pistli sínum. – gar
Telur Eyjafjörð í orkusvelti
Eyjafjörður þarf meiri orku til að íbúarnir dafni, segir sveitarstjóri Grýtubakkahrepps. Fréttablaðið/PjEtur
NÝJA
SENDIBÍLASTÖÐIN
...á þínum vegum!
568 5000
Jólaplattinn í hádeginu
og um helgar 3.200 kr
BRYGGJAN BRUGGHÚS * GRANDAGARÐI 8 101 REYKJAVÍK
00354 456 4040 * WWW.BRYGGJANBRUGGHUS.IS
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
Byggð sem ekki á
kost á rafmagni af
pólitískum ástæðum á sér
enga von um að geta vaxið
og dafnað eðlilega.
Þröstur Friðfinnsson,
sveitarstjóri Grýtu-
bakkahrepps
9 . d e s e m b e r 2 0 1 6 F Ö s T u d A G u r10 F r é T T i r ∙ F r é T T A b l A ð i ð
0
9
-1
2
-2
0
1
6
0
4
:3
0
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
9
C
-D
3
A
C
1
B
9
C
-D
2
7
0
1
B
9
C
-D
1
3
4
1
B
9
C
-C
F
F
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
9
B
F
B
0
7
2
s
_
8
_
1
2
_
2
0
1
6
C
M
Y
K