Fréttablaðið - 10.11.2016, Side 20
Í kjölfar niðurstöðu kosninganna
hrundu hlutabréf í Asíu. Nikkei-vísi-
talan í Japan lækkaði mest, eða um
5,36 prósent, aðfaranótt miðviku-
dags. Shanghai Composite-vísitalan
lækkaði um 0,62 prósent og Hang
Sen í Hong Kong um 2,16 prósent.
The Guardian greinir frá því
að 35 milljarðar dollara, jafnvirði
3.860 milljarða íslenskra króna,
hafi þurrkast út af hlutabréfamark-
aðnum í Ástralíu. Líklega má rekja
lækkunina til þess að Trump hefur
talað um að leggja álag á innfluttar
vörur frá Kína og að refsa fyrirtækj-
um sem flytja störf til Asíu.
Hrun á
Asíumarkaði
Óvæntur sigur
Trumps hristi
upp í mörkuðum
Hlutabréfamarkaðir í Bandaríkjunum lækkuðu við opnun og
sveifluðust eilítið fram eftir degi. Markaðir heimsins brugðust í
fyrstu illa við óvæntum fréttum af sigri Donalds Trump í for-
setakosningum Bandaríkjanna í gær. Hlutabréfahrun varð
víðsvegar í Asíu og Evrópu. Hlutabréf tóku þó við sér í Evrópu.
Lítil áhrif voru á Íslandi. Gengi Bandaríkjadals og mexíkóska
pesósins veiktist. Sigur Trumps felur í sér mikla óvissu sem
getur haft áframhaldandi neikvæð áhrif á hlutabréfamarkaði
og alþjóðaviðskipti.
Eftir kjör Trumps ríkir nú mikil
óvissa varðandi framtíð alþjóðavið-
skipta að mati sérfræðinga.
CNN Money hefur eftir Lim Say,
yfirmanni fjárfestinga hjá DBS-
bankanum í Singapúr, að alþjóða-
hagkerfið, alþjóðaviðskipti og fjár-
málamarkaðir standi nú frammi
fyrir mikilli óvissu þar sem nýr leið-
togi Bandaríkjanna vill færa landið
nær aðskilnaðarstefnu. Margir ótt-
ast að viðskiptastríð muni brjótast
út.
AGS, OECD og fleiri stofnanir
hafa nú þegar varað við rýrum vexti
í alþjóðaviðskiptum á árinu, og
áhrif af Brexit, ákvörðun Breta um
að yfirgefa Evrópusambandið, bætt-
ust ofan á áhyggjur stofnananna.
Sérfræðingar vara við áætlunum
Trumps um að rifta eða endurrita
NAFTA-fríverslunarsamninginn við
Mexíkó og Kanada. Þeir telja að það
muni hafa mjög truflandi
Fríverslun
í uppnámi
Gengi hlutabréfa í Evrópu hrundi í
gærmorgun. Ástæðan er talin vera
óljós afstaða Trumps til efnahags-
mála. Um morguninn lækkað DAX-
vísitalan í Þýskalandi um næstum
þrjú prósent, en um eftirmiðdaginn
í gær hafði hún hækkað um 0,4 pró-
sent. IBEX-vísitalan á Spáni lækkaði
um nærri fjögur prósent en hafði
hækkað um 1,3 prósent um eftir-
miðdaginn. FTSE 100 í Bretlandi
lækkað um tvö prósent snemma
morguns en hafði svo hækkað um
0,4 prósent síðdegis í gær.
Jöfnuðu sig í
Evrópu
Frá því að úrslit forsetakosninganna
lágu fyrir og fram til eftirmiðdagsins
í gær lækkaði gengi pesósins, gjald-
miðils Mexíkó, gagnvart banda-
ríkjadal allverulega. Pesóinn lækk-
aði um tólf prósent, þegar ljóst var
að Trump væri sigurvegari kosn-
inganna um klukkan sex um nótt-
ina, en hækkaði svo á ný. Um eftir-
miðdaginn í gær hafði gengi hans
lækkað um 8,6 prósent.
Líklega má rekja lækkunina til
þess að Trump hefur lengi heitið
því að reisa vegg á landamærum
ríkjanna og láta Mexíkó borga fyrir
smíðina, og skattleggja peninga sem
innflytjendur senda til fjölskyldna.
Pesóinn í Mexíkó tók dýfu
NÝR BÆKLINGUR STÚTFULLURAF SPENNANDI TÖLVUBÚNAÐI
4BLS
PS4
STÝRIPIN
NI
FYLGIR
NÝKYNSLÓÐÖFLUGRI, HRAÐARI OG BETRI!
Ný og hraðari PRO útgáfa af einni
vinsælustu leikjatölvu í heimi. Netflix,
Youtube ofl. öpp, 1TB harður diskur, HDR
tækni, styður PS VR og 4K leikjaspilun!69.990
PS4PRO
Tölvutek • Reykjavík • Hallarmúla 2 • 563 6900 • Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900 • www.tolvutek.is
Viðskipti
Afstaða Trumps til efnahagsmála er
mjög óljós.
0,0540
0,0525
0,0510
0,0495
0,0480
9. nóv 6:00 12:00
Gengi pesós gagnvart Bandaríkjadal í gær
heimild: xe.com
Gengi hlutabréfa á Íslandi lækkaði,
rétt eins og í öðrum löndum, snemma
í gærmorgun, um 1,3 prósent. Lækk-
anirnar náðust þó að mestu til baka.
Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,76 pró-
sent í gær og gengi hlutabréfa í öllum
nema fimm fyrirtækjum á Aðallista
Kauphallarinnar lækkaði.
„Þetta er ekki svo óvenjulegur dagur
á íslenska markaðnum. Við erum
með 45 daga á árinu þar sem lækk-
unin hefur verið meiri og svo eru við-
skiptin eiginlega í meðaltali. Þetta er
ótrúlega venjulegur dagur þegar öllu
ert á botninn hvolft,“ segir Magnús
Harðarson, forstöðumaður viðskipta-
sviðs Kauphallar Íslands.
„Það kannski hjálpar að við opnum
aðeins seinna en erlendu markaðirnir.
Ef maður ber saman Nordic 40 vísi-
töluna og úrvalsvísitöluna, þá sér
maður að þegar norræna vísitalan
opnar fer hún niður um næstum þrjú
prósent, en þeir eru komnir eiginlega
á sama stað og við þegar við opnuðum
klukkutíma síðar.“
Miðgengi Bandaríkjadals gagn-
vart krónunni hafði í gærmorgun
ekki verið lægra síðan í október 2008.
Gengið hækkaði þó aftur yfir daginn.
Lítil áhrif á hlutabréf á Íslandi
Það kannski hjálpar
að við opnum aðeins
seinna en erlendu markað-
irnir.
Magnús Harðarson,
forstöðumaður
viðskiptasviðs
Kauphallar
Íslands
1 0 . n ó v e m B e r 2 0 1 6 F I m m T U D A G U r20 F r é T T I r ∙ F r é T T A B L A ð I ð
1
0
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:2
5
F
B
0
8
0
s
_
P
0
8
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
3
D
-A
7
9
4
1
B
3
D
-A
6
5
8
1
B
3
D
-A
5
1
C
1
B
3
D
-A
3
E
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
8
0
s
_
9
_
1
1
_
2
0
1
6
C
M
Y
K