Morgunblaðið - 02.11.2016, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 2016
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
„Við hittum þau í þessari viku og er-
um að skilgreina hvað það er sem við
þurfum að taka á og erum að vinna
úr því hvernig við getum samið um
þá þætti og sú vinna er enn í gangi,“
segir Ólafur Loftsson, formaður Fé-
lags grunnskólakennara, í samtali
við Morgunblaðið. Kjaraviðræður
standa enn yfir við Samband ís-
lenskra sveitarfélaga en kennarar
hafa í tvígang fellt nýja kjarasamn-
inga, síðast í byrjun september.
„Það sem stendur mest í okkar
fólki er ekki efni samninganna held-
ur það sem er ekki þar,“ segir Ólafur
en þar vanti að gera betur í launa-
þáttum og atriðum er varða starfs-
umhverfi kennara en ræða þurfi
leiðir til að ná saman í þeim efnum.
„Það er engin vöfflulykt af þessu
og það er ekki komið á þann stað að
vera að klárast,“ bætir Ólafur við og
ef ekki verði náð saman um þessi
efni þurfi félagið að skoða hvaða
leiðir séu færar. „Það kemur fljót-
lega að því að menn þurfi að skoða
aðra möguleika.“ Hann sé þó enn
vongóður um að samningar náist en
næsti fundur er í dag.
„Við getum ekki sætt
okkur við annað“
„Við eigum núna eins árs
samningsleysisafmæli,“ segir Dag-
rún Hjartardóttir, starfandi formað-
ur Félags kennara og stjórnenda í
tónlistarskólum, en ár er síðan
kjarasamningar þeirra urðu lausir
og enn hefur ekki samist við Sam-
band íslenskra sveitarfélaga. Stjórn
Kennarasambands Íslands sendi frá
sér ályktun fyrir helgi og segist hafa
þungar áhyggjur af stöðu deilunnar.
Dagrún segir störf tónlistarkenn-
ara sambærileg störfum kennara en
kröfum þeirra um sambærileg laun
sé ekki mætt. Verkfall sé ekki raun-
hæfur kostur í stöðunni til að knýja
á um leiðréttingu launa. „Við mun-
um hamra áfram á þessu réttlæt-
ismáli. Við getum ekki sætt okkur
við annað.“ Fundur er áætlaður í
dag.
Í gær skrifaði Guðríður Arnar-
dóttir, formaður Félags framhalds-
skólakennara, undir samkomulag
um að allar frekari hækkanir, sem
gerðardómur dæmdi félagsmönnum
BHM, gildi fyrir framhaldsskóla-
kennara 2016 og 2017. Í staðinn
gangist framhaldsskólakennarar
undir friðarskyldu út október á
næsta ári. laufey@mbl.is
„Engin vöfflulykt“
Grunnskóla- og tónlistarkennarar ræða enn kaup og kjör
Friðarskylda framhaldsskólakennara út október á næsta ári
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
15,2 milljarða króna afgangur verður
af samstæðu A- og B-hluta borgar-
sjóðs á næsta ári, gangi fjárhags-
áætlun Reykjavíkurborgar fyrir árin
2017-2021 eftir. Hún var lögð fyrir
borgarstjórn í gær.
Í inngangi greinargerðar með
frumvarpi að fjárhagsáætlun, segir
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri
að meginniðurstaða áætlunarinnar
fyrir árið 2017 sé að umskipti hafi
orðið í rekstrinum.
„Þröngri stöðu og halla hefur ver-
ið snúið í afgang, án þess að hækka
skatta. Með skipulegum vinnubrögð-
um og framlagi starfsfólks og stjórn-
enda allra sviða hefur náðst utan um
þróun rekstrarkostnaðar og tekjur
hafa einnig aukist,“ segir þar.
Ennfremur segir að árið 2017
verði metár í byggingu íbúðarhús-
næðis, borgin hafi lagt sérstaka
áherslu á að tryggja aukið magn
leigu- og búseturéttaríbúða.
Afgangur eykst jafnt og þétt
Gert er ráð fyrir að rekstrarnið-
urstaða samstæðu A- og B-hluta
verði jákvæð allt fram til ársins 2021
og að afgangur stigmagnist. Þannig
gerir áætlunin ráð fyrir að árið 2021
verði 34,7 milljarða króna afgangur
af samstæðunni.
Ástæðan fyrir 15,2 milljarða króna
afgangi á næsta ári er í greinargerð-
inni sögð aðhald í rekstri Orkuveitu
Reykjavíkur og matsbreytingar á
fjárfestingaeignum Félagsbústaða
hf.
Á tímabilinu er gert ráð fyrir
auknum fjárfestingum og aukast
þær úr 16,3% af tekjum árið 2015 í
23,6% af tekjum á árið 2018 en lækka
síðan og árið 2021 verða þær orðnar
12% af tekjum borgarsjóðs.
Auknar lántökur fylgja fjárfest-
ingunum, en í greinargerðinni segir
að þær nemi um fjórtán til átján
milljörðum króna ár hvert á tíma-
bilinu. Afborganir langtímalána séu
þó umfram nýjar lántökur og nettó
niðurgreiðsla skulda nemi tveimur
til fjórum milljörðum króna árlega.
Þá er ráðgert að veltufé frá rekstri
aukist úr 31,1 milljarði árið 2015 í
47,1 milljarð árið 2021, þannig skap-
ist svigrúm til fjárfestinga.
Áætla um-
skipti í rekstri
borgarinnar
Fjárhagsáætlun til ársins 2021 kynnt
Morgunblaðið/Ómar
Reykjavík Fjárhagsáætlunin var
lögð fyrir borgarstjórn í gær.
Borgarstjórnarflokkur Sjálf-
stæðisflokks sendi frá sér til-
kynningu um áætlunina þar sem
segir að þrátt fyrir rekstrarbat-
ann sjáist ekki merki um að
skuldir og skuldbindingar sam-
stæðu A- og B-hluta lækki.
„Þær verða áfram rétt um
300 milljarðar kr. og skuldir A-
hluta munu hækka úr 80,7 millj-
örðum kr. í 91 milljarð kr. milli
ára. Þá benda áætlanir einnig til
þess að samstæða Reykjavíkur-
borgar verði yfir löglegu há-
marki skuldahlutfalls skv. sveit-
arstjórnarlögum til a.m.k.
ársins 2020 en lækkun skulda-
hlutfalls er drifin áfram af
hækkun tekna eins og segir í
kynningu á frumvarpinu að fjár-
hagsáætlun.“
Þetta þýði að Reykjavík verði
áfram meðal skuldugustu sveit-
arfélaga landsins þrátt fyrir
óhemjugóð ytri skilyrði.
Skuldir
lækka ekki
GAGNRÝNA ÁÆTLUNINA
„Þetta var gaman. Þeir ljómuðu þegar komið var til
baka,“ segir Ástvaldur Óskarsson, faðir Ingva Ástvalds-
sonar en þeir feðgarnir voru í hópi langveikra barna og
foreldra sem Landhelgisgæslan bauð í útsýnis- og æf-
ingaflug upp í Hvalfjörð og á Þingvöll í gær. Petra Fann-
ey Bragadóttir, móðir Frosta Jay Freeman tók í sama
streng. „Þeir höfðu gaman af þessu. Minn strákur var þó
svolítið hræddur um mömmu sína þegar ég var látin síga
niður á jörð og hífð aftur upp í þyrluna.“
Flugferðin er hluti af samfélagsverkefni Landhelgis-
gæslunnar í tilefni af 90 ára afmæli hennar á þessu ári.
Hefur einstaklingum sem glíma við erfið veikindi verið
boðið að kynnast starfi Gæslunnar og um leið að upplifa
eitthvað ævintýralegt.
Á myndinni eru Martha Jónasdóttir og Ástvaldur Ósk-
arsson með Ingva, Petra Fanney Bragadóttir með
Frosta Jay Freeman. Drengurinn í miðið er Jóhann
Grétarsson, vinur Frosta. Í áhöfninni voru Viggó Sig-
urðsson, Helgi Rafnsson, Björn Brekkan og Andri Jó-
hannsson.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ljómuðu eftir ævintýraferð
Langveikir í flug með þyrlu Landhelgisgæslunnar
Leikarinn og
handritshöfund-
urinn Benedikt
Erlingsson og
leikstjórinn Dag-
ur Kári Péturs-
son undirbúa nú
tökur á kvik-
mynd um Egils
sögu Skalla-
grímssonar.
Benedikt er sjálf-
ur framleiðandi myndarinnar en
umsjón með félagi hans hefur Anna
Lísa Björnsdóttir.
„Þetta er stórt og viðamikið
verkefni og við erum bara að leggja
af stað. Eins og allt sem kemur Agli
Skallagrímssyni við, er verkefnið
mjög stórt, eðli málsins samkvæmt.
Þegar þú ert kominn inn í hans áru
verðurðu mjög alþjóðlegur. Hann
var fyrsta stóra poppstjarnan okk-
ar,“ segir Benedikt Erlingsson.
Kvikmyndin verður í fullri lengd,
yfir tvær klukkustundir að lengd og
verður að miklu leyti tekin upp á
Englandi.
Benedikt er ekki aðeins handrits-
höfundur og framleiðandi myndar-
innar, því að öllum líkindum mun
hann túlka Egil sjálfan á tilteknu
æviskeiði hans.
Að sögn Benedikts verða leikarar
kynntir til sögunnar milli jóla og
nýárs og munu þeir koma á óvart
að sögn Benedikts. „Þetta verður
ákveðin bomba,“ segir hann.
Egils saga Skalla-
grímssonar á filmu
Leikaravalið mun koma á óvart
Benedikt
Erlingsson
Töluvert um útstrikanir
817 kjósendur Framsóknarflokks-
ins í Norðausturkjördæmi strik-
uðu yfir nafn efsta frambjóðand-
ans, Sigmundar Davíðs Gunn-
laugssonar, fyrrverandi forsætis-
ráðherra og formanns flokksins,
eða færðu hann neðar á listann.
Samsvarar það 18% kjósenda
listans. Í Suðvesturkjördæmi
strikuðu 563 kjósendur Viðreisn-
ar yfir nafn Þorgerðar Katrínar
Gunnarsdóttur sem skipar efsta
sæti listans. Eru það 8,2% kjós-
enda listans.
1.253 kjörseðlum var breytt í
Norðausturkjördæmi. „Þetta er
mjög hátt hlutfall útstrikana, mið-
að við það sem áður hefur verið,“
sagði Gestur Jónsson, formaður
yfirkjörstjórnar, í samtali við
Morgunblaðið í gær.
Langflestar breytingar urðu á
kjörseðlum Framsóknarmanna eða
alls 905 og flestir áttu við nafn
Sigmundar. Töluvert var einnig
um útstrikanir og endurröðun á
kjörseðlum Vinstrihreyfingarinnar
– græns framboðs. 155 sinnum var
nafn Steingríms J. Sigfússonar,
efsta manns listans, strikað út.
Það eru 3,4% þeirra sem krossuðu
við V. Þá áttu 127 við nafn Björns
Vals Gíslason, varaformanns
flokksins, en hann skipaði 3. sæti
listans. Gestur sagði að yfirkjör-
stjórn Norðausturkjördæmis hefði
sent niðurstöður sínar til lands-
kjörstjórnar í fyrrakvöld, sem yfir-
færi nú þau gögn sem send hefðu
verið.
Samkvæmt skýrslu yfirkjör-
stjórnar Suðvesturkjördæmis voru
flestar breytingar á lista Sjálf-
stæðisflokksins, alls 781. Þannig
strikuðu 274 yfir nafn Bjarna
Benediktssonar, sem er 1,5% kjós-
enda. Einnig var töluvert átt við
nöfn annarra efstu frambjóðenda
flokksins. Eygló Harðardóttir fékk
172 útstrikanir sem eru 4,25% af
atkvæðum Framsóknarflokksins.
Þórhallur Vilhjálmsson, ritari
landskjörstjórnar, sagði að stjórn-
in yfirfæri nú gögn af öllu landinu,
og áætlað væri að gefa það út á
mánudaginn, 7. nóvember, hver
niðurstaðan væri.
Sigmundur Davíð með 817 útstrikanir í NA-kjördæmi
Þorgerður Katrín með 563 útstrikanir í SV-kjördæmi